Andvari - 01.01.1949, Blaðsíða 26
22
Barði Guðmundsson
ANDVARI
vik, og þá er þeir voru búnir, reri að þeim maður á báti og
festi bátinn við skipið, en gekk síðan upp á skipið til fundar
við Kolbein. Kolbeinn spurði þenna mann að nafni. „Hrapp-
ur heiti ég,“ segir hann. „Hvað vilt þú mér?“ segir Kolbeinn.
„Ég vil biðja þig“, segir Hrappur, „að flytja mig um haf.“
„Hvers son ert þú?“ segir Kolbeinn. Hrappur svarar: „Ég
er son Örgumleiða Geirólfssonar gerpis.“ Kolbeinn spyr:
„Hver nauðsyn er þér á?“ „Ég liefi vegið víg eitt, segir
Hrappur. „Hvert víg er það?“ segir Kolbeinn, „eða hverjir
eru til eftirmáls?“ Hrappur svarar: „Ég hefi vegið Örlyg
Örlygsson, Hróðgeirsonar hins hvíta, en til eftirmáls eru
Vopnfirðingar.“ „Þess get ég, að sá hafi verr, er þig flytur,“
segir Kolbeinn. Hrappur mælti: „Vinur er ég vinar míns
— en geld ég það, er illa er til mín gert, enda skortir mig eigi
fé til að leigja farið.“ — Síðan tók Ivolbeinn við Hrappi.
Svo sem kunnugt er, hefur Njáluhöfundur í fyrra hluta
sögu sinnar stuðzt við Laxdælu. Þangað hefur hann vissu-
leg sótt nafnið Víga-Hrappur. í frásögninni um aðför Þorgils
Höllusonar að Helga Harðbeinssyni er komizt þannig að orði:
„Og áður þeir stigu á bak reið maður að þeim þjóðsýnilega.
— Þessi maður kvaddi Þorgils kunnlega. Þorgils spyr hann
að nafni og kynferði, og svo hvaðan hann væri kominn.
Hann kveðst Hrappur heita og vera breiðfirðskur að móður-
kyni, — og þar hefi ég upp vaxið. Hefi ég nafn Víga-Hrapps
og það með nafni, að ég er engi dældarmaður." Er hér átt
við ójafnaðarmanninn Víga-Hrapp Sumarliðason á Hrapps-
stöðum, sem Laxdæluhöfundur hafði áður greint frá. Eins
og Víga-Hrappur Sumarliðason býr Víga-Hrappur Njálu á
Hrappsstöðum. Eins og Hrappur hinn yngri kemur Víga-
Hrappur Njálu til sögunnar sem flóttamaður. Báðir leita þeir
á náðir manna, sem kenndir eru við mæður sinar. Báðir eru
Hrapparnir ódælir, svikulir og margmálir. Báðir láta lífið
fyrir spjótslagi. Þorgils Hölluson spyr Víga-Hrapp um ætt-
erni hans. Kolbeinn Arnljótarson er látinn gera hið sama, og
fvlgir þá svarið: „ég er son Örgumleiða Geirólfssonar gerpis.“
Það má heita sjálfgefið, að Njáluhöfundur hafi haft föður-