Andvari - 01.01.1949, Side 65
ANDVARI
Framtið skógræktar á Islandi
61
unduni þaðan. Ef til vill mætti og reyna hér fáeinar barr-
viðartegundir úr háfjöllum Canada og Bandaríkjanna, en um
þær skal ekki fjölyrt að sinni.
Ur Norður-Noregi getum við aðeins flutt tvær harrviðar-
legundir.
Skógarfura (Pinus silvestris, L.) vex um allt Tromsfylki,
nenia yztu strendur og eyjar. Hún verður um 20 metra á hæð,
°8 viður hennar er afbragðs smíðaviður. Voxtur hennar nemur
l|m 2 og upp í 4 teningsmetra á hvern hektara lands á ári, þar
sem vel lætur. Árið 1939 kom nokkuð af fræi úr Maalselvdal
hingað til lands. Plöntur af því voru settar víða. í Vaglaskógi
eru nú margar þeirra um metra á hæð og virðast vaxa eins
vel og heima hjá sér. í Haukadal í Biskupstungum eru og
nni tvö þúsund plöntur, og er vöxtur þeirra jafnvel enn betri
en plantnanna á Vöglum. Furan vex helzt í ófrjórri holtajörð,
°8 því er varlegra að velja henni ekki of frjóa mold. En hún
þarf skjóls með i uppvextinum, og verður jiví að setja hana i
kjarrlendi eða skóg.
Rauðgreni (Picea abies) vex ekki nema norður undir
heimskautsbaug í Noregi af sjálfsdáðum, en það hefur verið
gi’óðursett með ágætum árangri norður alla Noregsströnd,
allar götur norður að 70. breiddarstigi. Hefur það borið fræ
norður í Lyngenfirði, og því er ástæðulaust að ætla annað en
að það geti tekið ágætum þroska víða hér á landi. Rauðgrenið
vex miklu hraðar en skógarfuran og gefur mjög góðan smíða-
V1ð. En það þarf frjórri jarðveg heldur en furan.
Hér á landi hefur nokkuð af rauðgreni verið plantað á
Hallormsstað, en allt mun það ættað langt sunnan úr lönd-
11 ni- Hefur það samt komizt upp í 8 metra hæð og borið
hroskað fræ einu sinni eða tvisvar. Norðlæg afbrigði rauð-
grenis ætlu því að geta vaxið hér ágætlega vel, og kostur mun
u nð fá mismunandi afbrigði, sem unnt væri að rækta bæði
Sl'nnan lands og norðan.
Síberiskt lerki (Larix sibirical vex um endilanga Síberiu
°8 vestur til Rússlands. Vesturtakmörk þess eru sunnan við
Hvítahafið. Lerkið getur orðið mikið tré og er hraðvaxta.