Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1949, Page 85

Andvari - 01.01.1949, Page 85
andvaju •Alþýðumenntun og skólamál á íslandi á 18. öld 81 stjórnarinnar, að fáir bændur — líkast til er hér átt við al- l>ýðu yfirleitt — geti lesið og skrifað, og leiði þetta til megnrar vaiiþekkingar í kristnum fræðum. Menn hins lútherska rétttrúnaðar höfðu alla tíð lagt mesta óherzlu á kirkjusókn og prédikun guðsorðs í kirkjunum. Þeg- ;ir dró fram um aldamótin 1700, tók meira og meira að bera á tví, að ýmsum nægði þetta engan veginn. Safnaðarguðrækni var góð, og það var heimilisguðrækni líka, en þegar öllu var a hotninn hvolft, reið mest á því, að hver einstaklingur hlyti sein fullkomnasta fræðslu um þau efni, er vörðuðu eilífa sálu- hjálp hans. Hin heilögu fræði kristindómsins bar að innræta senr bezt hverjum manni allt frá barnsaldri, og til þess að svo niætti verða var nauðsynlegt, að menn lærðu að lesa. Heittrúarstefnan svo kallaða — pietisminn — sem lét állmikið sín taka á Norðurlöndum á öndverðri 18. öld og raunar lengur, en átti upptök sín í Englandi og náði einkum miklum '•ðgangi í Þýzkalandi —, stefndi reyndar lengra en að endur- ''akningu í hreinum trúarefnum. Forvígismenn hennar vildu láta kærleiksboðskap og bræðralagshugsjón kristninnar koma fram í verki með ýmsum hætti, í samhjálp og samstarfi, þar seni aftur á móti rétttrúnaðarstefnan lagði mesta áherzlu á hreina trú, játningar og ytri siðaform hinnar sannhithersku hirkju. Starfsenri heittrúarmanna beindist því öðrum þræði að félagsíegum umbótum, trúboði, stofnun líknarhæla og heimila fyrir munaðarlaus börn o. s. frv., en hér kom einnig greina aukin og bætt alþýðufræðsla, fyrst og fremst um skrift og lestur, svo að menn gætu fært sér í nyt guðrækileg 1 ’k er vakið fengju þá til umhugsunar um sálarheill sína, skyldurnar við meðbræður sína og skapara sinn. Má því telja, að heittrúarstefnan ætti hinn mesta þátt í að vekja áhuga a alþýðufræðslu, sem víða verður vart um þetta bil og fer Vaxandi, er á öldina liður, enda styrkir þá fleira til (upplýs- 1Irgarstefnan). Hér á landi var þó umbótum í fræðslumálum landsmanna á 18. öld fyrst hreyft af biskupum landsins, er á cr*gan hátt stóðu heittrúarstefnunni nærri, þeim Jóni Vídalín °g Steini Jónssyni. En reyndar voru það menn heit-

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.