Andvari - 01.01.1931, Blaðsíða 7
Andvari
Síra Eiríkur Briem,
prófessor.
Með þjóðhátíðarárinu 1874 hefst framsóhnartímabil í
ævi þjóðar vorrar. Stjórnarbótin, er vér þá fengum, veitti
oss fjárforræði og umráð Yf*r opinberum framkvæmdum
innanlands. — Þá reið þjóðinni á miklu að geta sýnt
það í verkinu, að hún væri fær um að siýra málum sín-
um svo, að til viðreisnar horfði, án þess þó að tefla
fjármálum landsins í nokkra hættu. Atvinnumál þjóðar-
innar og menningarmál höfðu verið í mestu niðurlæg-
ingu, sjálfstraust þjóðarinnar og sjálfsbjargarviðleitni var
iömuð eftir margra alda þvingun af hendi erlendrar
stjórnar. Á tímunum, sem þá fóru í hönd, var þjóðin
svo gæfusöm að eiga allmarga ágæta menn, er beittu
sér fyrir framframamál hennar með festu og áhuga,
en þó með hæfilegri varfærni og fullum skilningi á því,
hve mikilsvert það væri, að þjóðin treysti svo fjármál
sin, að hún þar gæti staðið sjálfbjarga. í hópi þessara
manna var Eiríkur prófessor Briem. Hann otaði sér að
vísu ekki mjög fram í opinberum málum og var ekki
bardagamaður á við ýmsa aðra. En hann var eigi að
síður rnikill áhugamaður um framfarir og lét sér annt
um hag þjóðarinnar og að auk framsýnn og vitur mað-
ur, sem hugsaði þau mál frá mörgum hliðum, sem hann
var viðriðinn. Lét hann mikið til sín taka, þar sem
hann var að etarfi með öðrum, og áorkaði þá oft meira