Andvari - 01.01.1931, Blaðsíða 103
Audviri
Fiskirannsóknir.
99
Garðurinn hefir verið sfeyptur út frá eyrinni til
þess að verja hana frekari skemmdum af hálfu sjávar-
ins, sem smá-sleikti úr henni, og eyddi þannig beztu
vörn kaupstaðarins móti sjávargangi. Garðurinn er um
30 m langur, og er víst hugsunin að Iengja hann út á
marbakkann, ef hann með því mætti draga úr hinu all-
tilfinnanlega sjávarróti, sem getur orðið við bryggjurnar,
þegar stormur stendur inn flóann (ég sá það í sumar í
NA-rumbunni).
Fiskmjölsverksmiðjan er þýzk, stofnuð af Dr.
Paul 1927. Hún vinnur mjöl úr hausum og hryggjum
og úrgangsfiski (t. d. skráplúru og steinbít) og sækir
hráefnið til fiskimanna í öllum nágrannafjörðum. Tekur
oiótorbátur það á bryggjunum, svo að fiskimenn þurfa
ekkert fyrir því að hafa og fá 12 kr. fyrir fonnið; þykir
•nörgum það fundið fé (sem áður fór í sjóinn) og sparar
þeim burtflutning á því. — Eg skoðaði verksmiðjuna;
hún malar 50—60 hálfsekki á dag og borgar sig víst
sæmilega. Minntist ég á það við forstjórann, Einbjör,
hvort eigendurnir mundu ekki vilja færa út kvíarnar og
Sera hana líka að síldarmjölsverksmiðju, en ekki var á
honum að heyra, að þeir mundu verða líklegir til þess.
Meðan »Selfoss« stóð við á Búðareyri, hafði ég fæki-
f®ri til að skoða afla af mótorbát, sem Björn Malm-
kvist gerir út, og fenginn var um morguninn á lóð úti
’ Reyðarfjarðarmynni; var það svipaður fiskur og ég
hafði áður séð í Nesi: mest þorskur og stútungur, fátt
þyrsklingi og enginn undir 40 cm lengd; flestir sem
^9 sá (meðan gert var að) fómir, einn með 2 hálfmeltar
stórsíldir. Svo var töluvert af stórýsu og kurlýsu, nokk-
Urir steinbítar og 2 smálúður. Alls og alls góður afli.
Bæði ? aflanum í Nesi og í þessum afla sá ég nokk-
Ura þorska með greinilegum nefaförum. Var það