Andvari - 01.01.1931, Blaðsíða 82
78
Fiskirannsóknir.
Andnri
fiski, sem hann hafði fengið úti við Rit daginn áður.
Smokkfiskurinn er veiddur á allt að 15 fðm. dypi, vana-
legast á 4 8 fðm., mest á 3 —5 fðm., og það tekst
jafnvel að lokka hann upp að yfirborði. Hann veiðist
nokkuð jafnt í björtu og dimmu, en bezt í rökkri og
aftureldingu (í ljósaskiptunum). ísfirðingum finnst hann
stækka meðan hann er í Djúpinu; framan af jafn smár,
síðar stærri og stærri, og einstaka allt af fram úr skar-
andi stórir innan um. Annars kvað vera mikil áraskipti
að komu hans í Djúpið: Hann kom þar ekki 1881—
1891, en svo úr því við og við til 1909. Svo hvarf hann
aftur í 10 ár; 1919, 1920 og 1921 kom hann svo og
dálítið 1922, en ekki fyrri en í október, og svo úr því
hin síðustu árin, nema ekkert 1930.
Þriðju ferðina á »Skallagrími* fór ég á tímabilinu
3.—14 maí í vor er leið til djúpmiðanna fyrir SA-
ströndinni, á Stokksnesgrunni, Papagrunni, Berufjarðarál,
Hvalsbakshalla og Litla-Djúpi. Hafði ég áður verið á
þessum slóðum á sama skipi vorið 1926, sbr. skýrslu
mína 1925 26, bls. 67—70, og nú vildi ég gjarna vera
þar aftur og sjá, hvort nokkurar verulegar breytingar
væru nú á fiskinum þar frá því, sem var fyrir 4 árum.
Við fórum frá Reykjavík kl. 2 að morgni og fengum
snarpan vind og nokkurn sjó á móti, er komið var fyrir
Reykjanes; var farið yfir innanverðan »Bankann«, o:
Selvogsbanka til þess að gá að, hvort nokkuð mundi
þar um að vera, vorum jafnvel að hugsa um að »skoða«
Hraunið, en hættum við, þar sem ekki sást annað af
skipum, en nokkurir Færeyingar, og héldum svo rak-
leiðis austur fyrir land. Nokkurir togarar voru fyrir
vestan Eyjar, 10 í utanverðum Mýrdalssjó, þar sem þeir
kvað fá töluvert af fiski eftir lokin, einkum ýsu, og