Andvari - 01.01.1931, Blaðsíða 45
Andsarl
Síra Eiríkur Briem, prófessor.
41
inn. Var með því þyngsla steininum rutt af námsbraut
piltsins. Maður þessi varð síðar velmetið ljóðskáld. Til-
einkaði hann Eiríki fyrsta ljóðakver sitt í þakklætisskynl
Utan úr sveitum var hann beðinn fyrir fjölmarga pilta,
er ætluðu í skóla, og þess óskað, að hann leiðbeindi
þeim og gerðist fjárhaldsmaður þeirra. Lét hann sér mjög
annt um þá, er hann tók þannig að sér, og var óþreyt-
andi í því að hlynna að þeim og leysa vandamál þeirra.
Merkur maður hefir sagt mér eftirfarandi sögu, er snerti
einn skólabróður hans, er var í fjárhaldi hjá síra Eiríki.
Piltur þessi var nokkuð vínhneigður, og var það á vit-
orði kennara. Eitt sinn, er hann var setztur að skriflegu
prófi, veiktist hann skyndilega og fékk uppsölu og varð
að hætta við prófið. Kennarar töldu víst, að þetta stafaði
af því, að hann hefði neytt víns, og voru flestir kennararnir
og stiftsyfirvöldin sammála um að vísa honum alveg frá
Prófi. En reyndar var pilturinn höfuðveikur og hafði
stundum fengið slík köst án sérstakra orsaka, og vissu
það sumir skólabræður hans. Eiríkur var í nokkrum
vanda staddur, því að ekki þóttist hann geta liðsinnt
Pilti, er brotið hefði skólareglurnar. Kallaði hann þá
heim til sín tvo pilta, er hann þóttist mega treysta.
Voru þeir í heimavist með áðurnefndum pilti og honum
handgengnir, og var annar þeirra sögumaður minn. —
öað hann þá að segja sér það sanna í þessu máli, hvort
Pilturinn hefði neytt víns á undan prófinu. Kvaðst hann
freysta þeim til að segja sér, eins og væri, því að það riði
sér á miklu. Gátu þeir með góðri samvizku fullvissað
hann um, að svo hefði eigi verið, því að þeir höfðu verið
með honum daginn áður og hann gengið til hvílu jafn-
snemma sem þeir. Létti yfir Eiríki, er hann fékk þetta
að vita. Nokkrum stundum síðar var hann ferðbúinn
°2 söðlaður hestur kominn heim til hans. Þegar hann