Fréttablaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 1
HELGARÚTGÁFA
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI12. september 2009 — 216. tölublað — 9. árgangur
VÍTISENGLAR 26
ERLENDIS Í REYKJAVÍK
Mótmælandi
Íslands allur
HELGA MINNST 30
Hvernig er hægt að
ferðast án þess að
ferðast?
RÖKSTÓLAR 24
Flosi Ólafs og Inga
Lind setjast á
ruggustól
TVÖ SÉRBLÖÐ
FYLGJA Í DAG
HAUST Í LAUGARDALNUM Haustið skartaði sínu fegursta í Laugardalnum í gær. Þeir Ólafur Knudsen og Breki Björnsson létu ekki nokkra polla stöðva sig á hjólabrettunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Eru Vítisenglar
bræðralag eða
bófagengi?
VIÐTAL 34
MENNTAMÁL Rektorar Háskóla
Íslands og Háskólans í Reykjavík
hafa átt samtöl um sameiningu
eða víðtækt samstarf háskólanna.
Þetta staðfestir Kristín Ingólfs-
dóttir, rektor Háskóla Íslands,
í samtali við Fréttablaðið. Ekki
er þó um formlegar viðræður að
ræða. Háskólarnir í landinu eru
sjö talsins og víðtækt samstarf
þeirra á milli hefur verið rætt.
„Ég er þeirrar skoðunar að við
þær kringumstæður sem nú ríkja
í fjármálum ríkisins verði ekki
hjá því komist að skoða í fullri
alvöru alla kosti sem geta leitt til
hagræðingar og um leið styrk-
ingar háskólastarfsemi í land-
inu, og láta ekki staðar numið við
það sem yrði einfaldast í fram-
kvæmd heldur leita að því sem
getur skilað mestum ávinningi,“
segir Kristín.
„Ef við skoðum hvaða sam-
eining myndi skila langmestum
fjárhagslegum ávinningi er það
sameining Háskóla Íslands og
Háskólans í Reykjavík. Á því leik-
ur enginn vafi. Ég vil ekki nefna
neinar tölur í þessu samhengi en
þarna yrði um umtalsverðar fjár-
hæðir að ræða. Slík sameining
yrði hins vegar töluvert flókin og
viðkvæm og vanda þyrfti afskap-
lega vel til verka. Úr slíkri sam-
einingu kæmi hins vegar mjög
öflugur skóli, sem myndi mæla sig
og keppa við erlenda háskóla.“
Um samstarf við aðra háskóla
segir Kristín að einföld hugmynd
væri að taka upp sameiginlega
innritun, sem myndi skila fjár-
hagslegum ávinningi en ekki
valda þáttaskilum.
„Ein sameining sem nefnd
hefur verið er möguleg sameining
Háskóla Íslands og Landbúnaðar-
háskólans,“ segir Kristín.
Stefán B. Sigurðsson, rektor
Háskólans á Akureyri, segir að
sameining við skólana í Reykja-
vík sé ekki inni í myndinni af
hans hálfu.
„Yrði farið út í sameiningu
þýddi það í raun að háskólinn hér
yrði lagður niður,“ segir Stefán.
- shá
Stóru háskólarnir
ræða um samstarf
Samstarf eða sameining Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík hefur komið
til tals á milli rektora skólanna. Sameining myndi skila miklum ávinningi.
FÓLK Þýski leikarinn Daniel Brühl
hefur samþykkt að leika stórt hlut-
verk í kvikmyndinni Kóngavegur 7
í leikstjórn Valdísar Óskarsdóttur.
Brühl hefur vakið mikla athygli
fyrir leik sinn í Tarantino-mynd-
inni Inglourious Basterds sem
nú er sýnd í kvikmyndahúsum
borgarinnar. - fgg / sjá síðu 62
Daniel Brühl á Íslandi:
Þýsk stjarna í
Kóngavegi 7
heimili&hönnunLAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 2009
LYKILL ÆTLAÐUR HENNI Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur heldur einna mest upp á lítinn lykil sem hún fann á göngu upp á fjalli.
BLS. 3
ÍSLENSKT HANDVERK Á VEFNUM Litlu búðirnar heitir vefsíða sem verið er að hanna,
en þar verður hægt að nálgast ýmiskonar íslenskt
handverk og náttúruvörur á einum stað.
BLS. 2
HÁGÆÐA BREIÐTJALDPHILIPS 42PFL8404H
TILBOÐ
299
FREMSTAR Í HÖNNUNFJALLAÐ UM FJÓRAR KONUR SEM HAFA MARKAÐ DJÚP SPOR Í SÖGU ÍSLENSKRAR HÖNNUNAR Á UNDANFÖRN-UM ÁRUM OG UNNIÐ TIL FJÖLDA VIÐURKENNINGA.
Beint flug til Taílan
ds
Ævintýrin færast
nær Íslendingum
10
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABL
AÐSINS UM FERÐALÖ
G ]
SEPTEMBER 2009
ferðalög Borgarferðir í haust Spennandi kostir í boði
BLS 4
VIÐ ERUM LÍKAMLEGA
LITLIR LEIKARAR
Siggi Sigurjóns, Karl Ágúst
og Örn Árna á fjalirnar