Fréttablaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 26
26 12. september 2009 LAUGARDAGUR
Þ
egar rætt er við hátt-
setta íslenska lög-
reglumenn um vél-
hjólasamtökin Hells
Angels er óhætt að
fullyrða að verulega
þungt sé í þeim hljóðið. Vítisengl-
ar eru enda skilgreindir víða um
heim sem skipulögð glæpasam-
tök. Þeir hafa nýlega haslað sér
völl á Íslandi og lögregla óttast að
þeir gætu hleypt aukinni hörku í
íslenska undirheima. Í ljósi
reynslu erlendra starfsbræðra
forðast lögreglumenn meira að
segja að ræða um samtökin undir
nafni.
Sjálfir segja Vítisenglar af
og frá að þeir stundi skipulagða
glæpi, þótt finna megi skemmd
epli í öllum hópum, og saka yfir-
völd um hræðsluáróður. Hells
Angels sé ekkert annað en
bræðralag venjulegra stráka og
manna sem einbeiti sér fyrst og
síðast að því að aka mótorhjólum
og passa upp á sig og sína.
Veita ekki viðtöl
Eins og fram hefur komið hlaut
vélhjólaklúbburinn Fáfnir á dög-
unum stöðuhækkun í Hells Ang-
els-samtökunum og kallast nú
Hells Angels Prospect. Af því
tilefni gaf Ríkislögreglustjóri
út heljarinnar yfirlýsingu um
ógnirnar sem að þjóðfélaginu
steðjuðu vegna þessa og lagði
til að klúbbar af þessu tagi yrðu
hreinlega bannaðir með lögum.
Einar „Boom“ Marteinsson,
nýr forseti hinna tilvonandi Vítis-
engla, neitaði að veita Fréttablað-
inu viðtal vegna þessarar umfjöll-
unar; sagði að það væri stefna
klúbbsins að veita ekki viðtöl.
Einar vildi heldur ekki gefa upp
hversu margir meðlimir klúbbs-
ins væru, en samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins eru skráð-
ir meðlimir eitthvað í kringum
tuttugu talsins.
Ekki fæst uppgefið hver skil-
yrðin fyrir inngöngu eru, fyrir
utan það að vera karlmaður og
á Íslandi þarf að hafa ástríðu
fyrir Harley Davidson-hjólum.
Annars konar hjól eru tekin í
sátt sums staðar annars staðar í
heiminum.
Líkt og í öðrum Hells Angels-
klúbbum ríkir ákveðið skipu-
lag í þeim íslenska. Forseti er
æðstur, og næst honum standa
varaforseti, gjaldkeri og ritari.
Önnur embætti tíðkast einnig, til
dæmis eins konar agavörður (e.
sergeant at arms), sem sér um að
menn hagi sér með friði og spekt
á fundum og samkomum.
Hafa kennt sig við Vítisengla lengi
Þrátt fyrir að Fáfnisliðar hafi ein-
ungis nýlega verið kenndir við
Hells Angels opinberlega er það
ekki spánnýtt fyrir þeim sjálf-
um. Þeir hafa árum saman haft
það markmið að ganga til liðs við
samtökin og raunar er það svo
að fyrir hálfu öðru ári gerðust
þeir opinberir áhangendur Vítis-
engla og tóku þá þegar upp nafnið
Hells Angels Hangaround eins og
tíðkast með klúbba í slíkri stöðu.
Fáfnisnafnið var því í raun lagt
af fyrir nokkru, þótt það væri enn
notað í almennri umræðu.
Til þess svo að öðlast Prospect-
stöðuna þurftu þeir að kynn-
ast erlendum Vítisenglum betur
og vinna fyrir þá ýmis verk, til
dæmis sinna gæslu á samkom-
um og afgreiða á bar. Næsta stig
er að verða fullgildir Vítisengl-
ar. Sjálfir vita þeir ekki hvenær
það verður, en Ríkislögreglustjóri
hefur sagt í tilkynningu að það
gæti orðið strax á næsta ári.
Getur hafa verið leiddar að því
innan lögreglunnar að tugmillj-
ónasvik nokkurra ungra manna
úr Íbúðalánasjóði hafi verið að
undirlagi Fáfnisliða, jafnvel til að
liðka fyrir stöðuhækkun klúbbs-
ins hjá Vítisenglunum. Samkvæmt
heimildum blaðsins hefur lögregl-
an nú horfið frá þessari skoðun og
lítur svo á að svikin hafi líklega
verið verk áhangenda Fáfnis, sem
vildu ganga til liðs við klúbbinn.
Þrátt fyrir það hefur Fréttablaðið
eftir áreiðanlegum heimildum að
einn fullgildir meðlimur Fáfnis,
eldri bróðir eins ungu mannanna,
hafi verið handtekinn vegna máls-
ins og yfirheyrður eftir húsleit á
heimili hans. Honum var síðan
sleppt.
Ítrekaðar komur háttsettra Engla
Vélhjólaklúbburinn Fáfnir, nú
Hells Angels Prospect, er að
verða þrettán ára gamall. Klúbb-
urinn blés til mikils fagnaðar í
mars sem frægt var þegar hann
flutti úr klúbbhúsi sínu til margra
ára við Frakkastíg í nýtt húsnæði
í Hafnarfirði.
Þá greip lögregla til viðamikilla
ráðstafana til að koma í veg fyrir
að erlendir Vítisenglar kæmust í
opnunarhófið, með þeim rökum að
koma svo margra félaga úr skil-
greindum skipulögðum glæpa-
samtökum í einu ógnaði þjóðar-
öryggi og allsherjarreglu. Nálega
öðrum tug var vísað frá landinu
og íhuga þeir nú réttarstöðu sína
vegna málsins. Veislan fór með
öllu friðsamlega fram.
Þetta var ekki í fyrsta sinn sem
hópi Vítisengla var vísað frá land-
inu. Þá eru einnig fjölmörg dæmi
um það að háttsettir Vítisengl-
ar, einkum frá Norðurlöndum,
hafi komið hingað til lands á síð-
ustu mánuðum og árum að taka
út störf Fáfnis og skemmta sér.
Meðal þeirra er Leif Ivar Kristi-
ansen, forseti Vítisenglanna í
Noregi, sem vakti athygli hér-
lendis í kringum teitina í mars
með ummælum þess efnis að ef
íslensk yfirvöld vildu stríð þá
myndu þau fá stríð.
Óttast átök í undirheimunum
En það er ekki endilega stríð við
íslensk yfirvöld sem lögreglan
hérlendis óttast mest, heldur að
hugsanlega slái í brýnu á milli
Vítisenglanna og gengja og glæpa-
hópa sem þegar eru umsvifamikl-
ir í undirheimum Íslands. Dæmin
að utan eru sannarlega til staðar,
þótt meðlimir Hells Angels telji
margir hverjir að þau hafi verið
blásin óþarflega upp.
Og þá þarf ekki að leita lengra
en til Norðurlandanna. Skemmst
er að minnast stríðsins sem
geisaði í fyrrahaust á milli Vítis-
engla og gengja af annarri kyn-
slóð innflytjenda í Kaupmanna-
höfn. Þau átök hófust þegar
meðlimur áhangendaklúbbs Hells
Angels skaut annarrar kynslóð-
ar innflytjanda til bana með vél-
byssu. Í kjölfarið hófust heiftar-
leg átök þar sem handsprengjum
var meðal annars kastað að höfuð-
stöðvum Hells Angels og nokkrir
særðust alvarlega í skotárásum.
Þá er ógleymt stóra mótorhjóla-
gengjastríðið í Skandinavíu um
miðjan tíunda áratuginn, þar sem
Hells Angels og Banditos kljáðust
heiftarlega með þeim afleiðingum
Bræðralag eða bófagengi?
Vélhjólasamtökin Hells Angels eru komin með annan fótinn til Íslands. Lögreglan er áhyggjufull en Vítisenglarnir sjálfir telja
slíkar áhyggjur með öllu óþarfar. Stígur Helgason kynnti sér íslenska klúbbinn og tengsl hans við Vítisengla.
Samtökin Hells Angels Prospect eiga sér nokk-
urra ára sögu hér á Íslandi. Þau hétu áður Fáfnir,
eða Fafner MC, og lutu lengst af stjórn Jóns
Trausta Lútherssonar, dæmds ofbeldismanns
sem varð landsfrægur að endemum þegar hann
réðst á hóp lögreglumanna í Leifsstöð árið 2003
og gekk í kjölfarið berserksgang á ritstjórnarskrif-
stofum DV vegna umfjöllunarinnar um málið.
Jón Trausti hefur síðan hlotið dóma fyrir
ofbeldisverk, meðal annars að ganga í skrokk
á manni ásamt félaga sínum úr Fáfni, og míga
síðan yfir hann.
Samhliða því að klúbburinn fékk stöðu
prospect-klúbbs yfirgaf Jón Trausti forsætið og
varaforsetinn til margra ára, Einar ‚Boom‘ Mart-
einsson, kenndur við barinn De Boom Kicker í
Hafnarstræti, tók við. Þessar vendingar hafa að
vonum vakið athygli. Spurt er hvers vegna Jón
Trausti hættir í klúbbnum þegar hann er við það
að ná sínu höfuðmarkmiði og er loks kominn
með annan fótinn inn í Hells Angels.
Raunin er hins vegar sú að Jón Trausti átti ekki
frumkvæðið að viðskilnaðinum, heldur naut
hann ekki lengur trausts félaga sinna. Þeim þótti
hann ekki hafa það til að bera sem einkenna
þyrfti forseta Hells Angels-klúbbs, væri of bráður
og bærist of mikið á. Þeir vildu að hann hætti
og hann sá sér þann kost vænstan að hlíta þeim
óskum.
Jón Trausti er nú fluttur til Noregs og það
er samdóma álit heimildarmanna blaðsins að
hann kunni að eiga erfitt uppdráttar þegar og
ef hann snýr aftur heim. Hann hafi bakað sér
marga óvildarmenn hérlendis og það geti reynst
honum illa nú þegar hann hefur ekki lengur
bakland í klúbbnum.
GAMLI FORSETINN Jón Trausti varð oft umfjöllunar-
efni fjölmiðla vegna slæmrar hegðunar. Hér sést
hann trylltur í Leifsstöð árið 2003. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
NÝI FORSETINN Einar „Boom“ Marteinsson var
áður varaformaður við hlið Jóns Trausta en er nú
tekinn við af honum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VÍGALEGUR Með nafnbótinni Prospect fengu hinir íslensku tilvonandi Vítisenglar heimild til að bera hluta merkis Hells Angels
á vestum sínum. Þeir hafa nú saumað landsmerkið neðst á vestin og MC í hvítum ferhyrningi rétt fyrir ofan, eins og sjá má á
myndinni. Fullgildir meðlimir fá síðan að hafa „Hells Angels“ saumað efst, á móti landsmerkinu, og Höfuð dauðans, opinbert
merki Vítisenglanna, í miðið. Það má sjá hér til hliðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Forvitnileg foringjaskipti á tímamótum