Fréttablaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 8
8 12. september 2009 LAUGARDAGUR
1. Hvaða útrásarvíkingur hefur
bæst í hóp þeirra sem höfðað
hafa mál á hendur fréttastofu
Stöðvar 2?
2. Hversu mörgum sófasettum
var stolið úr verslun Patta ehf. í
vikunni?
3. Hvað heitir gabonski
leikmaðurinn sem slegið hefur
í gegn með knattspyrnuliði
Grindavíkur í sumar?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 62
HEILBRIGÐISMÁL Á annað þúsund
manns hafa nú veikst af svína-
flensu hér á landi að því er talið er.
Frá 29. júní til 6. september voru
skráð samtals 1.078 tilfelli með
inflúensulík einkenni, eða stað-
festa inflúensu, í rafrænan gagna-
grunn heilbrigðiskerfisins. Þar af
voru 492 karlar og 586 konur. Flest
tilfellin eru í aldurshópnum 15 til
34 ára. Flest eru skráð á Vestur-
landi og á höfuðborgarsvæðinu
en fæst í Vestmannaeyjum. Svo
virðist sem faraldurinn sé fyrr
á ferðinni á höfuðborgarsvæðinu
og hann berist seinna út á land, að
Vesturlandi frátöldu.
Haraldur Briem sóttvarnalæknir
segir að sjálfsagt séu tilfellin mun
fleiri því það séu alls ekki allir
sem leiti til læknis þótt þeir fái
einkenni inflúensu.
Í byrjun september höfðu svo
176 manns greinst með svínaflensu
á landinu, sem staðfest var á veiru-
fræðideild Landspítala. Þar af
voru 96 karlar og 80 konur. Ekki er
vitað um alvarleg veikindi af völd-
um veirunnar hérlendis. Öll stað-
fest tilfelli síðastliðnar tvær vikur
voru af innlendum toga.
Sóttvarnalæknir minnir á að
handþvottur sé mikilvægasta sýk-
ingavörnin, því snerting, bein og
óbein, sé lang algengasta smitleið
sýkla milli manna. -jss
Flest tilfelli á höfuðborgarsvæðinu og Vesturlandi, en fæst í Vestmannaeyjum:
Rúmlega þúsund með svínaflensu
HARALDUR BRIEM Ekki leita allir til
læknis þótt þeir séu með einkenni
inflúensu.
SKATTAR Talsmenn stjórnarand-
stöðunnar vilja að ríkissjóður leiti
nýrra tekna frekar en að hækka
skatta um 28-30 milljarða króna á
næsta ári eins og stefnt er að. Auk
hærri skatta hyggur ríkisstjórnin
á 33-35 milljarða niðurskurð.
Neytendasamtökin og fleiri
hafa hvatt ríkið til að hækka beina
skatta eins og tekjuskatt frekar
en óbeina skatta og vörugjöld en
þau síðarnefndu hafa áhrif á vísi-
tölu og höfuðstól og greiðslubyrði
lána. „Ég held að við þær aðstæður
sem eru nú verði að blanda þessu
talsvert saman,“ segir Árni Þór
Sigurðsson, þingmaður VG. Hann
segist vilja kanna leiðir til að tak-
marka áhrif skattahækkana á
vísitölugrunn lána.
Þór Saari, þingmaður Borgara-
hreyfingarinnar, segist ósam-
mála hugmyndafræði ríkisstjórn-
arinnar; ríkið eigi mikla ónýtta
tekjumöguleika. Hann vill endur-
skoða samninga við álfyrirtæki og
tryggja ríkinu tekjur af orkusölu.
Eins vill hann afnema kvótakerf-
ið. „Það er löngu kominn tími til
að þjóðin njóti arðs af þeim auð-
lindum sem hafa ýmist verið gefn-
ar útgerðinni eða leigðar erlend-
um stórfyrirtækjum á spottprís,“
segir Þór, en verði farið í skatta-
hækkanir séu beinar skattahækk-
anir æskilegri en óbeinar vegna
áhrifa á skuldir heimilanna.
Illugi Gunnarsson, þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokksins, og
Birkir Jón Jónsson, varaformaður
Framsóknar, leggja áherslu á að ná
niður stýrivöxtum Seðlabankans
og auka skatttekjur með auknum
umsvifum í atvinnulífinu.
„Það verður að ná niður vöxt-
um Seðlabankans og fara í að nýta
orkuauðlindir og aðrar auðlindir
til að efla hagkerfið,“ segir Illugi.
Birkir Jón útilokar ekki skatta-
hækkanir í framtíðinni, „en þá
verða heimilin að geta staðið undir
því,“ segir hann og minnir á þá
áherslu sem framsóknarmenn hafi
lagt á að skuldir heimilanna verði
lækkaðar. Það þoli enga bið.
Illugi leggur einnig áherslu á
að ríkið nýti sér hugmyndir Sjálf-
stæðisflokksins og afli um það bil
þrjátíu milljarða tekna á næsta ári
með því að skattleggja inngreiðsl-
ur í lífeyrissjóði en hætti að skatt-
leggja útgreiðslur eins og nú er
gert. Það hafi engin áhrif á ráð-
stöfunartekjur launþega, þótt það
dragi vissulega úr þjóðhagslegum
sparnaði og dragi úr völdum og
áhrifum lífeyrissjóða.
peturg@frettabladid.is
Vilja að ríkið nýti
nýja tekjumöguleika
Breytt skattlagning lífeyrissjóða, lægri stýrivextir, aðgerðir fyrir heimilin og
skattlagning álfyrirtækja og útgerðarinnar eru stjórnarandstöðu ofarlega í
huga. Hún vill frekar leita slíkra leiða en hækka skatta eins og stefnt er að.
ALÞINGI Stjórnarandstaðan vill auka umsvif atvinnulífsins, skattleggja auðlindanotk-
un, lækka stýrivexti og grípa til aðgerða til að lækka skuldir heimilanna frekar en að
hækka skatta eins og ríkisstjórnin telur nauðsynlegt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÖGREGLUMÁL Fjórir karlmenn
hafa verið úrskurðaðir í gæslu-
varðhald til 24. september
að kröfu lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu.
Mennirnir, þrír á þrítugsaldri
og einn undir tvítugu, eru grun-
aðir um aðild að innflutningi á
fíkniefnum hingað til lands frá
Danmörku.
Um er að ræða amfetamín í
kílóavís.
Málið hefur verið unnið í
samvinnu við dönsk lögreglu-
yfirvöld en nokkur önnur lög-
regluembætti hérlendis auk toll-
yfirvalda hafa átt aðkomu að
rannsókninni. - jss
Fjórir í gæsluvarðhaldi:
Tóku amfeta-
mín í kílóavís
ATVINNA Ríflega þriðjungur laun-
þega hefur tekið á sig skerðingu
launa eða starfshlutfalls frá
hruninu í október 2008.
Í Morgunkorni Íslandsbanka
segir að þótt launakostnaður
hafi hækkað lítillega í flestum
atvinnugreinum á öðrum fjórð-
ungi ársins skýrist það „einna
helst af þeim orlofsuppbótum
sem gerðar voru upp á tíma-
bilinu“.
Í Morgunkorni segir að nokk-
uð ljóst sé „að staða launþega
er orðin mun veikari en áður og
hafa margir hverjir tekið á sig
launalækkanir til þess að sleppa
við uppsagnir. Flest bendir til að
þróun í þessa átt komi til með að
halda áfram á næstu mánuðum.“
- pg
Vinnumarkaður:
Þriðjungur
með skert kjör
UNDANTEKNING Laun lækkuðu í
byggingariðnaði en hækkuðu í mörgum
öðrum atvinnugreinum milli árs-
fjórðunga vegna samningsbundinna
orlofsuppbóta.
UMHVERFISMÁL Sjö samtök hafa
kært þá ákvörðun Umhverfis-
stofnunar að veit Orf Líftækni
hf. leyfi til útiræktunar á erfða-
breyttum lyfjaplöntum á Íslandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu
sem send var fjölmiðlum í gær.
Að kærunni standa Dýravernd-
unarsamband Íslands, MATVÍS,
Náttúrulækningafélag Íslands,
Náttúruverndarsamtök Suður-
lands, Neytendasamtökin, Slow
Food Reykjavík og Verndun og
ræktun.
Kærendur telja að ákvörðun
Umhverfisstofnunar samræmist
hvorki gildandi lögum um erfða-
breyttar lífverur og sleppingar
þeirra út í umhverfið né stjórn-
sýslulögum landsins. - kg
Ræktun á lyfjaplöntum:
Ákvörðun um
leyfi kærð
MENNTUN Stúdentaráð Háskóla
Íslands fagnar þeirri ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að leggja
aukið fjármagn til Lánasjóðs
íslenskra námsmanna. Þetta
kemur fram í ályktun sem ráðið
sendi frá sér í gær.
Í ályktuninni kemur fram að
Stúdentaráð hafi á undanförnum
mánuðum bent ítrekað á þau bágu
kjör sem námsmönnum bjóðast.
Ráðið telji ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar vera framfaraskref og
samræmast að einhverju leyti því
lokatilboði sem ráðið lagði fram í
lánasjóðsviðræðunum fyrr í vor.
Hækkunin sé þó ekki eins há og
stúdentar höfðu vonað, en hér sé
stigið skref í rétta átt að mann-
sæmandi lágmarkskjörum fyrir
stúdenta. - kg
Stúdentaráð HÍ:
Fagnar ákvörð-
un ríkisstjórnar
Ákærður fyrir flöskuárás
Tæplega þrítugur maður hefur verið
ákærður fyrir sérstaklega hættulega
líkamsárás, en honum er gefið að sök
að hafa slegið mann í höfuðið með
glerflösku. Sauma þurfti sex spor í
höfuð þolandans eftir árásina. Hann
krefst 685.500 króna í bætur.
DÓMSTÓLAR
ársávöxtun
14,0%
16,4% 16,4%
3 ár
11,4% 5 ár
ársávöxtun
Sjóður 5Ríkisskuldabréf – Sjóður 7Löng ríkisskuldabréf –
12,9% 3 ár
10,3% 5 ár
*
*Skv. sjodir.is þann 31. ágúst 2009
* Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð. Hafa ber í huga að eign í verðbréfasjóði eða fjárfestingarsjóði getur bæði hækkað eða lækkað, allt eftir þróun á markaðsverði þeirra. Ríkisskuldabréf - Sjóður 5 og Löng ríkisskuldabréf - Sjóður 7, eru verðbréfasjóðir skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og
fjárfestingarsjóði. Íslandssjóðir hf. er rekstrarfélag sjóðanna. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu Íslandsbanka hf., www.islandsbanki.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðanna og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti.
Íslandssjóðir hf. er sjálfstætt fjármálafyrirtæki í eigu Íslandsbanka. Íslandssjóðir reka verðbréfa- og
fjárfestingarsjóði fyrir einstaklinga og fagfjárfesta.
Nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum Eigna- og lífeyrisþjónustu Íslandsbanka á Kirkjusandi
í síma 440 4920 eða á www.islandssjodir.is
VEISTU SVARIÐ?