Fréttablaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 64
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
SEPTEMBER 2009
...allra ódýrast er að plana ferða-
lögin langt fram í tímann. Það er
ekki til lengur neitt „hopp“ eins og
það var og hét í gamla daga.
...frá borgum eins og London
og Kaupmannahöfn er hægt að
komast hvert á land sem er. Ætlir
þú að fara eitthvert aðeins lengra
má finna margar ódýrar ferðir
þaðan, og þá jafnvel heima í stofu
á internetinu. Til að komast til
London eða Kaupmannahafnar frá
Íslandi er svo hægt að velja á milli
flugfélaganna Icelandair, Iceland
Express, British Airwaves og SAS.
. ..ætlir þú til dæmis að fljúga í
gegnum Kaupmannahöfn mælum
við sérstaklega með vefsíðu flug-
félagsins Sterling: www.sterling.
dk Frábær síða með mjög góðum
tilboðum. www.kronerejser.dk er
ekki síðri.
...ætlir þú frekar að fljúga í
gegnum London er síðan www.
lastminute.com helber snilld. Ekki
síðri er síðan www.cheapflights.
co.uk. Og sólardýrkendur athugið!
Á www.clickair.com eru mjög ódýr
flugfargjöld til Spánar.
...sértu blankur en finnst þú
engu að síður hreinlega verða að
komast í skíðaferð eða siglingu
á Karíbahafinu er alltaf hægt
að redda sér! Við fátæklingarnir
elskum síðuna www.iglu.com
Þar smellirðu einfaldlega á þær
tegundir af pakkaferðum sem þig
langar í en ferðirnar eru flestar
farnar frá Bretlandi og auðvelt er
að koma sér til London. Við höfum
til dæmis fundið okkur æðislega
vikuskíðaferð fyrir aðeins 30.000
krónur!
...íslenska síðan www.ferdalangur.
net er ansi góð. Sér í lagi ef þú
ert að leita að ódýru hóteli en
hótelbókunarvefurinn þar er mjög
góður. Þar inni má líka finna fullt
af alls konar upplýsingum um
ferðalög og tengla inn á marga
skemmtilega hluti. Að góðum
tilboðum ógleymdum.
SNIÐUG RÁÐ FYRIR ÓDÝR
FERÐALÖG
Ferðalangar geta lent í því að taskan týnist um stundar-
sakir eða sé jafnvel send á rangan flugvöll. Þeir sem eru
með kreditkort eru tryggðir að nokkru leyti fyrir slíku.
Hjá VISA má nálgast nákvæmar upplýsingar um hvers
konar tryggingar eru í boði á valitor.is. Ferðalangar eru
hvattir til að kynna sér kosti og galla hvers greiðslu-
korts.
Besta tryggingin er hjá Platinum-korti TM, en þar eru
korthafar tryggðir fyrir allt að áttatíu þúsund krónum.
Algengast er að tryggingin sé 24 þúsund krónur, en
VISA-korthafar geta haft samband við SOS-Internation-
al sem er hluti af ferðatryggingu VISA-kreditkortsins.
Korthafar Master Card eiga einnig völ á þjónustu SOS-
International sem er alþjóðleg stofnun. Á heimasíðu
MasterCard, borgun.is, má nálgast allar upplýsingar
um tryggingar á farangurstöf, en Platinum-kortið býður
bestu kjörin eða 80 þúsund krónur.
ÞEGAR TASKAN TÝNIST
VITA er lífið
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
Brekkurnar
bíða þín á Ítalíu
VITA er í eigu Icelandair Group
og flýgur með Icelandair
á vit ævintýranna.
Verð 180.600 kr.
og 15.000 Vildarpunktar
á mann miðað við 2 í herbergi. Innifalið: Flug,
flugvallarskattar, gisting, hálft fæði og íslensk
fararstjórn. Almennt verð er 190.600 kr.
Verðdæmið miðast við ferðina 30. janúar.
Olympia
Á góðum stað í um 200 metra fjarlægð frá
lyftum og í tveggja mínútna göngufjarlægð frá
aðalgötu miðbæjarins í Selva. Lögð er áhersla á
þægilegt og heimilislegt andrúmsloft og góða
þjónustu við gesti.
Verð 157.900 kr.
og 15.000 Vildarpunktar
á mann miðað við 2 í herbergi. Innifalið: Flug,
flugvallarskattar, gisting, hálft fæði og íslensk
fararstjórn. Almennt verð er 167.900 kr.
Verðdæmið miðast við ferðina 30. janúar.
Alpen hotel Vidi
Hlýlegt með vistlegri herbergjum en búast má
við af þriggja stjörnu hóteli. Miðbærinn í
göngufæri. Hálft fæði innifalið í gistingunni.
Spennandi kostur á góðu verði.
Flugáætlun
30. janúar
6., 13., 20. og 27. febrúar
Madonna di Campiglio
Selva 7 dagar
7 dagar
Fararstjórar:
Einar og Anna
Hjá VITA getur þú lækkað verðið á ferðinni
þinni um allt að 10.000 kr. með 15.000 Vildarpunktum.
Auk þess eru veittir 2.500 Vildarpunktar fyrir allar
keyptar ferðir í leiguflugi með VITA. Þannig öðlast þú
stöðugt fleiri tækifæri til þess að njóta lífsins.
Þú getur notað
Vildarpunktana
hjá okkur
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
4
72
78
0
9.
20
09