Fréttablaðið - 12.09.2009, Blaðsíða 30
30 12. september 2009 LAUGARDAGUR
S
kyrslettur á forseta Íslands og
konu hans, biskup Íslands og þing-
menn við setningu Alþingis hinn
10. október 1972 voru ekki fyrstu
mótmæli Helga. Þegar hann flutt-
ist til Reykjavík rúmlega tvítugur að aldri
árið 1940 tók hann að leita þess réttar síns
að verða leystur undan skírnarsáttmála sem
hann hafði staðfest þrettán ára unglingur.
Ráðamenn og forráðamenn Þjóðkirkjunn-
ar skelltu skollaeyrum við beiðnum hans.
Hann kærði þá biskup Íslands fyrir mann-
réttinda- og stjórnarskrárbrot. Málið fór
fyrir Hæstarétt og var þar vísað frá. Helgi
sendi árið 1964 öllum þingmönnum bréf um
mál sitt og átti eftir að senda þingmönnum
mörg bréf til viðbótar. Mál hans fór fyrir
Mannréttindadómstól Evrópu en var vísað
frá. Hann tók að mótmæla við kirkjulegar
athafnir, bæði fyrir söfnuði og við kirkjur,
og var þá oft tekinn úr umferð. Hann ónýtti
sáttmála sinn fyrir söfnuði í Dómkirkjunni
í október 1966. Hagstofan neitaði að breyta
skráningu á ónýtingu sáttmálans. Við ítrek-
un í bréfi til allra þingmanna svöruðu tveir
menn honum: Bjarni Benediktsson og Lúð-
vík Jósepsson, og lýstu sig vanmáttuga að
hjálpa honum.
Við þingsetningu 1971 kynnti Helgi sér
aðstæður við þinghúsið og árið eftir fór
hann í bæinn í strætó með úthrært skyr og
sérbúinn hanska til að sletta skyri á göng-
una frá Dómkirkjunni eftir hina hefðbundnu
messu fyrir setninguna. Eftir sletturnar
þrjár á forsetann, frú Halldóru, biskup og
þingmenn var hann handtekinn og hafður
í haldi í nokkra daga, sagði hann í viðtali
við Mannlíf árið 1997. Hann fastaði, líka á
Kleppi þar sem hann var vistaður og greind-
ur af geðlæknum. Hann var síðar látinn
sæta geðrannsókn.
Á áttunda áratugnum hélt Helgi mótmæl-
um áfram, sletti tjörublöndu á Stjórnarráð-
ið sem hann kallaði „gamla tukthúsið við
Lækjartorg“ og þinghúsið. En allt kom fyrir
ekki. Árið 1982 var hann ásakaður um að
hafa brennt til grunna kirkjuna sem hann
var skírður í og neitaði hvorki né játti þeirri
sök.
Síðustu árin varð mótmælastaða Helga
daglegur viðburður og æ pólitískari. Hann
tók sér jafnan stöðu á Langholtsveginum og
stóð þar lengi dags. Hann tók saman bók um
baráttu sína og heimildarmynd var gerð um
hana. Hann var afar kjarnyrtur maður, jafn-
vel fornyrtur, og hafði sérstakan orðaforða
sem hann beitti í málsvörnum sínum.
Nú verður þessi látni baráttujaxl og
kommúnisti lagður til hinstu hvílu og ofur-
vald íslensku þjóðkirkjunnar stutt lögum og
reglum íslenska lýðveldisins mun um síðir
koma honum í vígða mold, því hinum trú-
lausu eru engin grið gefin, jafnvel ekki út
fyrir gröf og dauða. Frjáls vilji má sín lítils
mót bókstafnum. Lífsbarátta Helga Hóseas-
sonar sannar það eftirminni-
lega.
Mótmælandi Íslands allur
Helgi Hóseasson smiður varð í lifanda lífi dæmi um mann sem hélt uppi stöðugum mótmælum um það sem honum þótti
miður í samfélagi mannanna. Hann smíðaði sér eigin táknheim með heitum og nafngiftum og beindi andófi gegn forystu í
utanríkismálum og borgaralegri réttarskerðingu en fyrir betra lífi í heiminum til handa öllu mannkyni. Í upphafi var andóf hans
einskorðað við þau mannréttindi að verða leystur undan skírnarsáttmála þjóðkirkjunnar sem hann hafði sem barn og unglingur
gengist við. Páll Baldvin Baldvinsson skoðar nokkrar myndir frá mótmælaferli Helga.
MÓTMÆLANDI ÍSLANDS Helgi heima með nokkur af spjöldum sínum sem hann fór með víða en stóð oftast með á Langholtsveginum. Nú hefur galleríisti í Reykja-
vík keypt nokkur þeirra og kallar þau listaverk.
SNÚINN NIÐUR Helgi liggur í götunni og yfir
honum eru fimm lögregluþjónar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HELGI HÓSEASSON HÚSASMIÐUR MÓTMÆLIR Lögreglumenn hlaupa til, þingmenn frá hægri
bregðast við: Ólafur Jóhannesson, Einar Ágústsson, Magnús Kjartansson, Magnús Torfi Ólafs-
son, Magnús Jónsson, Hannibal Valdimarsson, Gunnar Thoroddsen lokar augunum, Lúðvík
Jósepsson beygir sig fram og lengst til hægri í hópnum eru Þórarinn Þórarinsson og að baki
honum Matthías Mathiesen og Gils Guðmundsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HELGI HÓSEASSON HÚSASMIÐUR MÓTMÆLIR Fyrsta gusan fallin og önnur í loftinu. Hvorki
heiðursvörður lögreglu né þingmenn bregðast við en frú Halldóra sýnir viðbrögð.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BINDIND-
ISMAÐUR
Á EITUR
Helgi neytti
hvorki víns né
tóbaks og var
reglumaður um
allt í sínu lífi. Hér
mótmælir hann
tóbaki og bendir
á skaðsemi
þess.