Fálkinn - 11.07.1966, Blaðsíða 3
HVADA JAPÖNSK MYNDAVÉL
ER FULLKOMNUSTI DAG?
MOTt) VEftft tft t>Atl I
Skoöiö Konica Áuf°
og þér muniö sannfærast
Konica
Auto
vegna þess að hún hefur
nýja gerð aí f'Nuspólu.
NO eru mistök < iilmuþræðslu
35 mm filma úr sögunni
Linsa Hexanon, Ijúsop 1,8
Nákvæmur CDS Ijósmælir
Fjarlægðarmælir
Sjálfvirk, eða hraði 1:500 sek.
IGEVAFÓTÓ Austurstræti 6 S'imi 229551
Hún spennti greipar og
lagði aftur augun. Svo sagði
hún: — Gerðu þetta, Jónas
minn! Ég er ekki að biðja
þig mín vegna, en hana
mömmu vantar svo tilfinn-
anlega tengdason!
■K
— Hvers vegna ertu að
skæla? Spurði maðurinn
konuna sína, er hún hafði
grátið langa stund.
— Ég man það ekki, svar-
aði hún, — en ef ég hefði
enga ástæðu til þess, mundi
ég varla vera eins reið þér
og ég er...
Sendillinn hefur sagt hús-
bóndanum ósatt og hann
verður mjög reiður og les
yfir stráknum: — Veiztu
hvað verður úr sendlum,
sem segja ósatt?
Sendillinn: — Sölumenn!
*
Mjög horaður maður situr
við hliðina á feitum bakara
í strætisvagni og segir: —
Eiginlega ættu farþegar að
greiða farmiðann eftir vigt.
— Þá yrðuð þér að fara
gangandi, svarar bakarinn,
því að engum mundi finnast
borga sig að taka yður með.
-x
— Pabbi, er nokkur mun-
ur á girnd og ást?
— Já, það er eins og dag-
ur og nótt, drengur minn.
Kalli (sýnir Palla hörunds
flúr á handleggnum á sér):
— Líttu á!
Palli: — Var þetta ekki
sárt?
Kalli: — Nei, — ekki fyrr
en hann pabbi sá það.
*
Það hafði verið bruni í
vefnaðarvöruverzluninni og
hún auglýsti útsölu á lérefti,
sem hafði skemmst í brun-
anum. Frú Kjalfells kemur
inn og spyr eftir léreftun-
um, en þau eru uppseld.
— Æ, hver skrambinn,
segir hún. — Viljið þér gera
svo vel að segja mér hvenær
brennur hjá ykkur næst?
Guðjón Mozart var sölu-
maður og seldi píanó. Einu
sinni þegar hann kom óvænt
heim, sat gestur með konuna
hans í fanginu og var að
kyssa hana. — Hvað á þetta
að þýða, öskraði Mozart, —
og hver er þessi maður?
— Æ, komdu sæll og
blessaður, sagði hún. — Má
ég kynna þig fyrir honum
Sókrates Brandsen. Hann
ætlaði að kaupa af þér
píanó.
— Segirðu það satt? Hróp-
ar Guðjón Mozart himinlif-
andi. — En hvers vegna er
hann að kyssa þig?
— Ég veit ekki, muldraði
hún. Líklega hefur honum
snúist hugur.
ÁBSHÁTlÐIB
BRÚÐKAUPSVEIZLUE
FEBMIN G AE VEIZLUB
TJARNARBÚÐ
SlMl ODDFELLOWAHÚSINU SfMI
19000 19100
SÍÐDEGISDRYKKJUR
FUNDAEHÖLD
FÉLAGSSKEMMTANŒt
FÁLKINN 3