Fálkinn - 11.07.1966, Blaðsíða 6
26. tbl. — 39. árg. — 11. júlí 1966.
EF Nl
SVARTHÖFÐI SEGIR ....................
ALLT OG SUMT ........................
HVERNIG EIGA KARLMENN AÐ VERA........
MEST LESNI HÖFUNDUR í HEIMI .........
JAMES BOND ..........................
ÞJÁNING .............................
UPPREISN í KVENNAFANGELSI ...........
PRINSESSA í ATVINNULEIT .............
LEIKIÐ FJÓFMENT, framhaldssaga eftir Hildu
Lawrence .......................
HJÚSKAF ÆVINTÝRI ..............
FURÐUR OG JARÐAR, eftir Hjört Hall-
dórsson .......................
SLÁTRUN Á STEPPUNNl .................
UNDARLEGIR HLUTIR ...................
UNG STÚLKA ÓSKAST, ný framhaldssaga eftir
GuniIIu Hjelmars ..................
STJÖRNUSPÁ ..........................
í SVIÐSLJÓSINU ......................
BARNASAGA ...........................
SNYRTING ............................
6— 7
8— 9
10—13
14—15
16
17
18—19
20—21
22—24
25
26—27
28—30
31
32—34
35
36—37
47
48
FORSÍÐUMYND: Síldarsöltun á SeySisfirði. — Ljósmynd:
W. Keith.
í NÆSTA BLAÐI verður grein með
teiknimyndum úr túristahringferð til
Gullfoss og Geysis með „Lönd og
Leiðir“. Þá er grein sem kallast Hinn
fjólublái draumur, og er þar um að
ræða frásagnir af LSD nautn með
myndum af fólki sem er undir LSD-
áhrifum. Ennfremur er mikil frásögn
um Norðmenn sem fóru á báti yfir
Atlantshaf fyrir um hálfri öld. Þá
birtum við rússneska grein um gáf-
ur og afrek höfrunga, en það er nú
talið sannað að höfrungar og hnísur
séu æðstu skepnur jarðarinnar fyrir
utan manninn, ef hann stendur þeim
þá ekki að haki. Sumartízkan verður
kynnt og einnig verður kynnt leik-
konan Raquel Welch sem leikur í
kvikmyndinni „Milljón ár fyrir
Krist“. Þetta er nú það helzta fyrir
utan föstu þættina en þeir eru eins
og venjulega.
Ritstjóri: Sigvaldi H.iálmarsson (áb.). Blaöamenn: Steinunn S.
Briem, Grétar Oddsson. Ljósmyndari og útlitsteiknari: Rúnar
Gunnarsson. Framkvcemdastjóri: Ilrafn Þórisson. Auglýsingar:
Fjóla Tryggvadóttir. Dreifing: Kristján Arngrímsson. Útgefandi:
Vikublaðið Fálkinn h.f. Aösetur: Ritstjórn, afgreiösla og auglýs-
ingar: Grettisgötu 8, Reykjavik. Símar 12210 og 16481. Pósthólf
1411. — Verð í lausasölu 30,00 kr. Áskrift kostar 90,00 á mánuði,
á ári 1080,00 kr. Setning og prentun kápu: Félagsprentsmiðjan h.f.
Prentun meginmáis: Prentsmiðja Þjóðviljans. Myndamót: Mynda-
mót h.f.
6 FÁLKiNN
NOKKUÐ er síðan menn fóru að ræða næsta forsetafram-
boð hér á íslandi. Er talið að núverandi forseti, herra
Ásgeir Ásg son muni hætta störfum áður en kjörtímabili
lýkur. Dönsk blöð birtu í vetur langan lista yfir hugsanlega
frambjóðendur við forsetakjör og veit enginn hvaðan sá listi
er kominn. Hins vegar varð séð á nafnatalningunni, að ekki
er hugmyndafluginu fyrir að fara hjá okkur íslendingum
frekar en fyrri daginn. Þarna voru tilnefndir nokkrir smá-
borgarar, sem koma aldrei til með að bæta einum drætti
við í þjóðarásjónuna, hversu sem þeir kunna annars að vera
dyggðugir embættismenn. í kjölfar þessara tilgáta kom svo
frétt um það, og enn í dönsku blaði, að Gunnar Thoroddsen
ambassador í Kaupmannahöfn yrði frambjóðandi Sjálfstæðis-
flokksins í forsetakosningunum. Þetta þóttu eðlilega nokkur
tíðindi hér á landi, en dýrðin stóð ekki nema einn dag eða
svo, því að Morgunblaðið svaraði að bragði og sagði að aldrei
hefði komið til orða að Sjálfstæðisflokkurinn byði Gunnar
fram til forseta. Gat tvennt verið til í þessum skollaleik.
Annars vegar gátu féndur Gunnars hafa sett þetta á svið til
að geta lýst því yfir að Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekkert með
hann hafa lengur. Hins vegar gat danska fréttin alveg eins
verið komin frá vinum Gunnars, sem vildu fá fram svar,
svo hægt væri, ef það yrði neikvætt, að snúa sér til manna
úr öðrum flokkum og leita stuðnings þeirra við framboð
Gunnars á þeim forsendum að formlegt samband hans við
Sjálfstæðisflokkinn væri endanlega rofið.
Fyrir utan að hverfa af vettvangi stjórnmála með nægum
fyrirvara, settist Gunnar að í Kaupmannahöfn þegar rétt stóð
á tungli í handritamálinu og verður nú sá ambassador sem
að likindum kemur með handritin heim, eftir að Danmörk
gistu höfðingjar á borð við Sigurð Nordal og Stefán Jóhann
Stefánsson. Báðir voru miklir áhrifamenn okkur til hags í
þessu máli, þótt með ólíku móti væri. Gunnar yrði því eins
konar handritaforseti, ef hann næði kosningu og væri það
mikill búhnykkur á brokkgengum stjórnmálaferli.
Mótleikur vinstri manna
GUNNAR THöRODDSEN myndi eflaust hafa mikið fylgi
hér í Reykjavik og eflaust mundi forusta Sjálfstæðis-
flokksins drattast tií að styðja hann, þegar til alvörunnar
kæmi, eða a. m. k. íara út í neitt sérabjarnaáform honum
Kvæði um
ungan mann
Kæri Fálki!
Einu sinni heyrði ég kvæði
um ungan mann sem ætlaði að
fara að opinbera trúlofun sína
með unnustu sinni. Hann var í
öðrum landshluta, en þegar
hann kom heim þá var hún
dáin. En hann setti hringinn
upp með henni þrátt fyrir það.
Mikið langaði mig til að heyra
þetta kvæði, ef það eru nokkur
tök á því.
Með fyrirfram þökk.
Lísa,.
Svar:
Því miöur, Lisa, viö hér hjá
Fálkanum Jiekkjum ekki ]>etta
kvæöi. En vitaö er aö fyrir
nokkrum áratugum voru róm-
antísk kvæöi um raunálegar
sögur algeng og vinsœl meö ál-
þýöu manna. Ef til viil er þetta
eitt þeirra. Ekki er okkur hér
kunnugt hvort nokkur liefur
tekiö sér fyrir liendur aö safna
þeim, en ungar stúlkur skrif-
uöu þau upp lvver hjá annarri
og þannig breiddust þau út.
Flest voru undir einhverjum
lögum og voru oft rauluö.
Meöal slikra kvœöa var
„Hjálmar og Hulda".
Ef einhver af lesendum Fálk-
ans kannast viö kvæöiö um
unga manninn sem opinberaöi
meö unnustu sinni látinni þá
vcerum viö þákklát aö fá aö
vita um þaö.