Fálkinn - 11.07.1966, Blaðsíða 7
til óþæginda. Þá er víst, að yrði Gunnar í framboði myndu
hægri menn telja hann sinn mann, en eins og fyrri daginn
hafa svokallaðir vinstri menn ekkert tromp á hendinni, utan
eitthvert hrafl af fyrrgreindum smáborgurum, sem gætu hugs-
að sér að verða mátulega vinstri sinnaðir í tilefni dagsins.
Óhætt er að fullyrða að nú þegar liggi eitt framboð ljóst
fyrir, og það getur allt eins farið svo, að Gunnar Thoroddsen
verði sjálfkjörinn í embættið. Vinstri menn eiga þó einn mót-
leik, sem er í sjálfu sér álíka sundurleitur og vinstri öflin
í landinu. Þessi mótleikur er framboð Jóns Helgasonar, pró-
fessors, þess manns sem hefur lengst og mest rýnt í hinar
fornu skræður. Við höfum áður sýnt Dönum sérstaka virkt
með því að kjósa, við lýðveldistökuna, þann mann fyrir for-
seta, sem með miklum ágætum hafði setið í Danmörku sem
fulltrúi landsins á viðkvæmum tímum í sambúð þjóðanna.
Danir sýna okkur enn mikla velvild með því að afhenda okkur
handritin, sem næst frelsinu eru burðarásinn í tilveru okkar.
Jón Helgason hefur lengi gætt þessara bóka. Hans starf hef-
ur ekki verið stjórnmálalegs eðlis, og hann er íslenzkastur
allra manna. Með framboði hans til forseta, myndum við
sýna umheiminum hve mikils við metum fræði vor og þá
menn sem bezt um þau sýsla. Jón er nógur alvörumaður í
þjóðmálum til að halda vel og virðulega á þeim málum, sem
forsetaembættið snertir. Hann er menntur betur en flestir
íslendingar, og skapat, hvað stjórnmálin snertir, greinilega
andstöðu við þann aðila, sem fullyrt er að verði í framboði.
Aftur á móti mun framgirni hans svo skoplítil að eflaust
verður erfiðleikum bundið að orða þetta mál við hann. Að
minnsta kosti vildi ég ekki láta fela mér að hlera hann. Þó er
lengi hægt að mæla menn rökum, og framboð Jóns Helga-
sonar, prófessors, við forsetakjör myndi engan skaða, allra
sízt hann sjálfan.
Skáld eins og Jónas
SUMIR verða skáld í augum almennings áður en þau byrja að
yrkja. Jafnvel fyrstu tilraunir þeirra ei’u hendar á lofti
og fjallað um þær af velþóknun þeirra, sem þui’fa að upp-
götva menn í tíma og ótíma. En svo höfum við átt okkar
leyniskáld sem hafa ort í kyi’rþey og orðið stórir seinna,
þegar stói’skáld samtímans voru liðin undir lok. Þannig var
um Jónas Hallgrimsson. Jón Helgason, prófessor, ber öll ein-
kenni hins íslenzka leyniskálds. Menn tala gjarnan af kappi
*
Bið á skrifstofum
Fálki minn góður!
Ég tek undir með Grími sem
skrifaði þér fyrir nokkru um
bið á opinberum skrifstofum.
Hann leggur til að maður eigi
að heimta kaup fyrir biðtím-
ann. Ég er meðmæltur því. Það
er ósvífni að tefja fyrir mönn-
um með Því að láta þá biða.
En það er annað sem mig lang-
ar til að jagast um. Það eru
þessi óskaplega löngu andar-
tök sem koma þegar maður
hringir og spyr eftir einhverj-
um skrifstofujaxlinum. Fyrst
er ekki víst að manni sé svar-
að strax, og svo kemur tyggi-
gúmmíjóðlandi kvenpersóna í
simann, síðan er manni vísað
manna á milli með misjafn-
lega löngum andartökum, og að
lokum getur farið svo að sam-
bandið slitni áður en nokkur
botn er fenginn í málinu. Ég
er ekki skapbetri en svo að ég
bið fyrir mér útvortis eftir slík-
ar viðtökur.
Skalli.
Svar:
1 erlendum fyrirtækjum er
mikiö kapp lagt á aO rödd
stúlkunnar sem svarar í símann
sé viöfelldin og hún tali fag-
urt mál. Á þessu er nokkur mis-
brestur hér. ÞaO nægir ekki
aO kunna aO segja „góOan dag-
inn“. Annars þakka ég bréf
Skalla. ÞaO er von aO honum
leiöist biö og snúningar.
Pennavinir
Tveir ungir menn hafa skrif-
SVART
HÖFÐI
SEGIR
um hin og þessi skáld dagsins, en þegar þeir eru háttaðir,
þá fletta þeir upp í ljóðabók, sem þeir eiga fyrir sig og hafa
engin orð um við aðra. Þessi bók heitir Úr landsuðri og er
safn ljóða eftir Jón. Síðan eru brot úr þessum ljóðum notuð
til áréttingar í mæltu máli og rituð án alls yfirlætis eins
og tungan sjálf, en viðhorfið til skáldsins kemur m. a. fram
í því að hann er metinn til jafns við snotra hagyrðinga, við
úthlutun listamannalauna. Þetta er þó varla vegna þess að
hann sé talinn lélegt skáld. Þeir vita bara ekki hvað þeir
eiga að gera við hann, frekar er sláttumaður við grænan
álagablett innan um allan hálminn. Fram til þessa hafði lög-
fræðingur og guðfræðingur setið forsetastólinn að Bessastöð-
um. Nú mundi kominn tími til að hin lögfróðu og guðvísu
element hvíldust um sinn, þegar þessu kjörtímabili lýkur, og
upp hefjist tímabil skáldskapar og fræða.
Laxness og prófessorinn
EÐLILEGT er að komið hafi til orða að fá Halldór Laxness
til að bjóða sig fram í forsetakosningum. Þar kemur til
að láta sér notast af þeirri miklu frægð, sem Laxness á að
fagna. Hins vegar eru ýmsir agnúar á því að blanda Nóbels-
verðlaunaskáldi í Bessastaðapólitík, því ekki verður landið
að nóbelslandi við það frekar en kýrnar hans Faulkners. Þá
er alltaf gott í framsókn að tefla mörgum fram í sviðsljósið
til þess að breiðfylkingin vei’ði sem sigurstranglegust. Og
nokkur breiðfylking ýrði úr þeim Jóni Helgasyni og Halldóri
Laxness, þegar Jón væri kominn í Bessastaði, annar virtur
um öll Norðurlönd fyrir þau fræð ein, sem alltaf hafa verið
íslenzkra manna, hversu vítt sem þau hafa borizt, og hinn
aðlaður í heimi bókmenntanna fyrir endurnýjun margrómaðs
íslenzks sagnastíls.
Jafnágætur maður og Gunnar Thoroddsen fengi vii’ðulegan
og verðugan keppinaut þar sem Jón Helgason er. Báðir eru
þeir tengdir hinu síðara sjálfstæðismáli okkar, og Jón þó
meir, þar sem hann hefur lifað og hrærzt innan um handritin
í áratugi. Báðir hafa þeir skoðanir sem geta skipt mönnum í
fylkingar. Tækizt vinstri mönnum að fá Jón Helgason í fram-
boð mundi það verða fyrsta raunverulega samstaðan sem næð-
ist í þeim sundurleita hópi. Slíkt yrði auðvitað harmsefni frí-
múrurum oddfellóum og öðrum ginnheilögum smáborgara-
klíkum, sem halda að öll menning og fræði séu ekki annað
en vondur kláði á sálinni.
að pósthólfinu og beðið fyrir
nöfn sin tií birtingar. Svo vilja
Þeir að einhverjir á þeirra reki,
strákar eða stelpur, taki sér
penna í hönd og skrifi þeim.
Piltarnir heita:
Herren Nagy Attila
Postlagei'n 8000
Miinchen 32
Germany West.
Herra Attila er tvítugur að
aldri og áhugamál hans eru
frímerkjasöfnun, segulbands-
upptökur, landslagskort, eld-
spýtnastokkar, peningar, kvik-
myndir og bókmenntir.
Árni Garðarsson
Háholti 28
Akranesi.
Árni óskar eftir bréfasam-
bandi við pilta eða stúlkur á
aldrinum 15—16 ára.
FALKINN
7