Fálkinn - 11.07.1966, Síða 20
Sorctyct œtlaði sér að verða kvik-
myndastjarna, en hana skorti
hœfileika. Nú er Ira prinsessa
Fiirstenberg að byrja að leika í
sinni fyrstu kvikmynd, og aðeins
reynslan getur sýnt hvort hún
fellur á prófinu eins og fyrirrenn-
ari hennar eða verður raunveru- *
leg stjama.
HÚN segist vera hamingjusöm. En
hún er það ekki. Hún brosir glað-
lega til ljósmyndaranna sem umkringja
hana hvar sem hún fer og felur sig bak
við rándýr sólgleraugun frá Courréges,
hvít og gul, aðeins til sjö pör í heim-
inum. Hún sekkur sér niður í dagleg
störf, fer yfir kvikmyndahandrit, les inn
á segulband, gengur til tannlæknisins
reglulega til að láta rétta framtennurn-
ar, mátar búningana sem hún á að nota
í nýju kvikmyndinni sinni, lærir á bíl,
af því að hlutverkið krefst þess, að hún
kunni að aka, en hingað til hefur henni
þótt þægilegra að hafa einkabílstjóra.
Hún kvartar ekki, þó að henni iíði illa.
Hamingjusöm er hún ekki. Hvað amar
að henni? Ira Fúrstenberg er á megr-
unarkúr.
Henni hættir alltaf til að fitna, og hún
er gríðarlegur sælkeri. Alla sína ævi
hefur hún orðið að neita sér um að
borða eins og hana langaði til, af bví
að það eyðilagði fegurð hennar, og síðan
hún ákvað að gerast leikkona hafa ún-
urnar skipt enn meira máli en áður.
Og Ira er mesti mathákur. Hún vildi
Ira Fúrstenberg hefur alltaf lifað í
munaði, hún er ættgöfug og rík og þarf
ekki að vinna, en henni er farið að
leiðast iðjuleysið og vill gjarnan verða
fræg stjarna til tilbreytingar.