Fálkinn - 11.07.1966, Side 34
sportbíl, með blæjuna dregna
niður. Lotta stóð út við glugga
og sá hann; hún sá sólina stafa
geislum sinum á jarpt hár hans
og hjarta hennar æddi af stað
með alla hennar heilbrigðu skyn-
semi. Aldrei hafði neinn hlýtt
bjöllunni jafn fúslega og hún
þegar hringt var úr forsalnum.
— Frúin hringdi, sagði hún
með andköfum en leit ekki á
frúna heldur á unga manninn,
sem stóð þarna og brosti við
henni undrunar og ánægjubrosi,
kom til hennar og heilsaði með
handabandi og sagði: — Sæl,
ég er Paul. Og þú ert Lotta,
sem mamma lét senda sér frá
landi ísbjarnanna.
— Lotta, ekki Lotte, sagði
hún til að leiðrétta framburð
hans og þau hlógu bæði þegar
hann reyndi að hafa upp eftir
henni.
— Vildi Lotta gjöra svo vel að
bera farangur sonar míns upp,
srgði Mrs. Gardiner stuttaralega
og sneri við þeim baki með van-
þóknun og hvarf inn í bókastof-
una.
— Það er nú varla hægt að
láta stúlku bera fyrir sig ferða-
töskurnar, andmælti Paul og tók
af Lottu ferðatöskuna sem hún
var í þann veginn að lyfta upp.
Hönd hans straukst við hendi
hennar, hann brosti aftur og
sagði: — Ég hélt að það væru
ýkjur að allar sænskar stúlkur
væru laglegar, en það virðist
vera heilagur sannleikur.
Eftir það leið ekki á löngu
áður en Lotta stóð fyrir framan
spegilinn í herbergi sínu og
reyndi að sjá sjálfa sig með
augum Pauls. Var hún í raun
og veru iagleg? Heima í Broköp-
ing í Smálöndum hafði hún
aldrei efast um það. Hún hafði
átt nóg af kunningjum bæði á
skólaárunum og eftir að hún
fór að vinna í Sparisjóðnum.
Einn pilturinn hafði meira að
segja sagt að hún væri eins og
innrammað listaverk þar sem
hún sat í gjaldkerastúku sinni.
Hárið var reyndar ekki sem
verst, gullbjart með rauðleitum
blæ, sítt og hálfslétt með upp-
sveigðum broddum. Og húðin
var gallalaus ef hún púðraði
yfir freknurnar. Munnurinn var
í stærra lagi en það gerði ekk-
ert til, það gaf henni aðeins
skemmtilegan svip. Og tennurn-
ar voru mjallhvítar og beinar.
Glefsgjarnar myndi einhver hafa
kallað þær. Hún hnykkti til
höfðinu og brosti og reyndi að
sýnast glefsgjörn, en siðan stik-
aði hún niður til Mrs. Gardiner
og sagðist ætla að taka eftir-
miðdagslestina því nú þyrfti hún
að fara á námskeiðið.
Mrs. Gardiner hafði oftsinnis
verið stutt í spuna en hún hafði
aldrei áður sýnt af sér ómeng-
aða vonzku. Það gerði hún núna.
Hún stóð snögglega upp af dýr-
indis chippendalbekknum og
þrátt fyrir smæð sína tókst
Framh. á bls. 41.
HÖSEIGENDUR
ALCON 1“ dæiurnar eru auðveldar í notkun,
hafa lágan brennslukostnað, og eru mjög létt-
ar. Við höfum selt tugi slíkra dæina, og aliar
hafa reynzt framúrskarandi vei.
ALCON 1“ dælan dælir 7000 ltr. á klst.
Verð kr. 4.906,00.
Slöngur, barkar og rafmagnsdælur í
flestum stærðum fyrirliggjandi.
ÚTVEGUM %
g AILAR GERÐIR OG \
™ CTIEDAIB » P aviiiia |
| STÆRÐIR AF DÆLUM^
GiSLI JÓNSSON & CO.HF.
SKÚLAGÖTU 26 S'lMI 11740
JAMES BOIVÐ - JAMES BOND - JAMES BOJXD
Njósnarinn og kvennagullið
JAMES B0ND
007 - 007
í nýrri sögu:
I þjónustu hennar hátignar
JAMES BOND sögurnar seljast nú
meira um allan heim en nokkrar
aðrar njósnarasögur.
í þjónustu hennar hátignar
er komin i bókaverzlanir
um allt land.
JAMES BOAD - JAMES BO XD - JAMES BO XD
34
FALKINM