Fálkinn - 11.07.1966, Page 36
«
í SVIÐSLJÓSINU
BtNEUIKT VICGÓSSOIM SKRIFAR FYRIR UIMGA
Atriði úr kvikmyndinni Help.. George Harrison í litskrúðugum
einkennisbúningi
THE BEATEES liNDIRBIJA
SÍiMA ÞRIÐJU KVIKMYND
The Beatles hafa eins og kunnugt er leikið í tveim kvik-
myndum, A hard day’s night og Help. Báðar hafa þessar mynd-
ir notið fádæma vinsælda hjá unga fólkinu. Nú þegar er
farið að athuga möguleika á þriðju myndinni og hefur m. a.
komið til tals, að myndin verði gerð eftir handriti Richard
Condon, A talent for loving. Við skulum athuga, hvað Walter
Shenson, kvikmyndaframleiðandi segir um þetta:
Beatles er ekki nauðsynlegt að leika í sinni þriðju kvik-
mynd. Alla vega verður sú áætlun athuguð vandlega, áður en
hafizt verður handa af fullum krafti. Því eins og piltarnir
segja: „Ef við erum ekki ánægðir með eitthvað sérstakt lag,
þá er sú upptaka ekki notuð á plötuna." En á þennan hátt er
ekki hægt að hafa á með kvikmynd, hún verður veskú að
birtast á hvíta tjáldinu, hvort sem hún er léleg eða frábær.
Hinar tvær myndirnar tókust mjög vel og það, sem meira
er, piltarnir komu skemmtilega á óvart með sínum prýðilegu
leikhæfileikum. Hingað til hafa piltarnir leikið sjálfa sig ef
svo má segja, en þessi þriðja mynd verður frábrugðin, hvað
þetta snertir. f myndinni er gert ráð fyrir, að þeir flytji 6—7
lög, en hvernig þær senur verða teknar, veltur á því, hvaða
kvikmyndahandrit verður fyrir valinu. Mér hafa borizt yfir
40 handrit, en enginn endanleg ákvörðun hefur verið tekin
um það, hvaða handrit verði notað. Það hefur komið fram sú
hugmynd að láta einn úr Beatles leika aðalhlutverkið, en ekki
þá alla. Persónulega er ég ekki hrifin af þeirri hugmynd.
SINATRA
Náði efsta
sætinu
Það vakti óhemju athygli,
þegar góði gamli Frank Sin-
atra komst í efsta sæti vin-
sældarlistans í Bretlandi með
lagið Strangers in the night
og ýtti þar með Rolling
Stones laginu Paint it black
til hliðar. Það er orðið langt
síðan Sinatra hefur átt lag í
efsta sætinu, en þetta sýnir
svo ekki er um villzt, að lengi
lifir í gömlum glæðum, og
EIMAR
☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆☆
FÓLKID
einmitt um sama leyti er dótt-
ir hans, hún Nancy Sinatra
með lag ofarlega á listanum,
en það eru litlar líkur til þess,
að hún hrekji pabba gamla af
toppnum.
EIIXIAR JÚLÍLSSOIM:
Hún verlur að kunna
a5 laga gott kaffi
Ég vil hafa hana frekar
hlédræga og umfram allt, að
hún hafi áhuga á músík og
þá sérstaklega klassískri.
Ég hef ekkert við það að
athuga, þó hún fari út að
skemmta sér án mín, en það
er í alla staði heppilegra, að
það sé á þeim dansstað, er
Pónik leikur, svo ég geti haft
auga með henni.
Stúlkan mín á að vera ljós-
hærð, stuttklippt, með blá
augu. Já og ekki má gleyma
því, að ég vil hafa hana frek-
ar granna og ekki það há-
vaxna, að ég þurfi að líta upp
til hennar.
Þá verður blessuð hnátan
að hafa góða kímnigáfu. Ef
það er nokkuð, sem mér leið-
ist í fari stúlku, þá er það,
ef hún er hlæjandi í tíma og
ótíma. Nauðsynlegt er, að hún
eigi gott með að halda uppi
samræðum og þá á ég við, ef
hún talar um allt annað en
hljómsveitina, hitann og
þrengslin á dansgólfinu.
En ég vil umfram allt, að
hún bendi mér á mína galla
í sambandi við sönginn, fram-
komu O. fl.
Hún þarf að vera kurteis,
en þægileg í viðmóti og hafa
frjálslega framkomu, og auð-
vitað þarf hún að vera fyrir-
myndar húsmóðir og barngóð.
Það er algert frumskilyrði, að
hún kunni að laga gott kaffi,
því ég er forfallino kaffi-
drykkjumaður.
36 FÁLKJNN
o