Fálkinn - 11.07.1966, Page 37
Keith Moon fékk heldur
óblíðar móttökur, þegar
hann kom of seint í tán-
ingaklúbbinn, sem WHO
áttu að skemmta í. Er hann
kom ekki á tilsettum tíma
hófu þeir leik sinn án hans,
en er þeir voru að flytja
hið góðkunna My Gcncra-
tion birtist Keith og geng-
ur eins og ekkert sé að
trommunum sínum, en á
næsta andartaki skall
gítarinn hans Pete Towns-
end í höfðinu á honum og
Keith steinlá. Um þetta
segir hann:
Ég hef ekki ennþá kom-
izt að raun um, hvað skeði
í raun og veru. Allavega
er augað í mér blátt og
bólgið. Ef svona nokkuð
kemur fyrir aftur, þá yfir-
gef ég hljómsveitina.
Sfegmn í höfuðið
með gítar!
Pete Townsend segist
hafa verið orðinn upp-
stökkur og æstur yfir þvi,
hvað Keith kom seint og
þegar eitthvað úr trommu-
settinu hans féll um koll
og lenti á fætinum á mér,
þá sauð upp úr. Ég sneri
mér snöggt að honum með
gítarinn á lofti. Það var
ekki ætlunin að meiða
hann, en ég missti gítarinn
úr höndunum á mér og
hann hafnaði í höfðinú, á
Keith. Helgina á eftir fór
ég heim til hans með það
fyrir augum að ræða þetta
leiðinda mál, en hann vildi
ekki hleypa mér inn.
Þetta segir Pete og nú er
spurningin, hvort þetta
ríður WHO að fullu.
Major-rod
kanadisku veiðistangirnar, þessar úrvals-
stangir eru fóanlegar nú á íslenzkum mark-
aði í fyrsta sinn á því bezta verði er hér hefur
þekkzt.
BARNASTANGIR kr. 130,00 og 160.00
SILUNGSSTANGIR kr. 225,00 og 465.00
LAXASTANGIR kr. 365,00 og 465.00
9 FETA FLUGUSTANGIR verð kr. 795.C0
og 1195,00
SPORTVAL
Laugavegi 48
Sími 14390
SPORTVAL
Hafnarfirði
Simi 51938
FÁLKINN
37