Fálkinn - 11.07.1966, Page 44
bókstaílega eins og dans á rós-
um þegar hún batt tuskur ura
fæturna og renndi sér yfir bón-
ið eins og skautasvell.
— Þetta er eins og bezta
skemmtun, sagði Paul og náði í
gítarinn. Hann hallaði sér upp að
dyrastafnum og lék fyrir hana
en hún dansaði fyrir hann og
gólfið varð sífellt hálla og meira
gl.iáandi. Hún gleymdi stóru
svuntunni, sem hún var með og
fannst eins og hún kæmi fram
á leiksviði.
Þrátt fyrir þá fullyrðingu
Eileenar að þetta væri ekki tími
veizluhaldanna, komu gestir á
miðvikudaginn. — Ef keriingin
segir nú að ég geti ekki heldur
farið á námskeiðið í dag, þá segi
ég upp starfinu, hótaði Lotta
þegar hún sá gegnum glugga
hvar bill stanzaði við garðshlið-
ið. Tii öryggis sagði hún þetta
á sænsku, þar sem það tjóaði
ekki að kalla tilvonandi tengda-
móður sina „kerlingu" og auk
þess hafði hún enga löngun til
að segja upp starfinu.
Þennan dag var teið borið
fram á svölunum. Lotta ók vagn-
inum með brauði, smjöri og
kökum út í sólskinið og gætti
þess jafnframt að virða gest-
ina fyrir sér. Annar þeirra var
tíu árum yngri systir Mrs.
Gardiner sem Eileen hafði sagt
henni frá. Patricia Morris hét
hún og var ieikkona að atvinnu.
Það var nærri hægt að sjá það
á henni, svo glæsiiega búin var
hún, með silfurhvitt hár og stór,
dökk dádýrsaugu og húð sem
minnti á eplablóm. Hún hélt
áfram samtalinu við systur sína
án þess að virða Lottu viðtals.
öðru hvoru tók hún fram í
fyrir sjálfri sér með því að
snúa sér að manninum, sem sat
við hiið hennar og kurra: — Er
það ekki satt, John elskan? John
elskan tuldraði eitthvað til sam-
þykkis en hann hlustaði ekki á
þær. Hann horfði á skrúðgarð-
inn og á hundinn og á Lottu,
sem stóð þarna með litla hvíta
mittissvuntu og hjákátlegan,
fallandi borða um höfuðið. Þann-
ig yrði hún að vera, þegar gest-
ir kæmu, hafði Eileen sagt, og í
flýtinum hafði Lotta ekki haft
tækifæri til mótþróa.
Lotta átti ekki auðvelt með að
lesa úr augnaráði hans. 1 því
var sambland af kátínu, viður-
kenningu og nokkurri illkvittni.
Að sínu ieyti var hann ekki
ólaglegur en hann átti einhvern
veginn ekki við í þessu umhverfi.
Hann virtist of hrjúfur og ófág-
aður og langir fótleggir hans
sköguðu allt of langt fram. Án
þess að taka út úr sér pípuna,
virti hann Lottu fyrir sér gegn-
um ský af bláleitum reyk og
sagði: — Eru svona fyrirbæri
til ennþá?
— John, elskan, geturðu ekki
talað við fólk í fimm mínútur
án þess að vekja athygli á þvi
að þú sért af almúgaættum?
sagði Patricia brosandi og við
systur sína sagði hún: — Allir
44 FÁLK4NN
blaðamenn þjást vist af þjóð-
félagslegum komplexum, eða
hvað það nú heitir. Þeir ota þeim
fram. En ég verð að samsinna
John í því að það er ekki oft,
sem maður rekst á ósvikna, lif-
andi stofustúlku nú á dögum,
jafnvel ekki hjá fólki af ykkar
stétt.
Lotta gat ekki fundið neina
ástæðu til að tefja lengur á svöl-
unum, en þegar hún fór heyrði
hún Mrs Oardiner skýra frá því
að reyndar væri þetta nú ekki
ósvikin stofustúlka, heldur því
miður aðeins sænsk au pair
stúlka.
Hvort þessar upplýsingar voru
nóg til að vekja athygli Johns á
henni, eða hvort Mrs. Gardiner
hafði sagt eitthvað fleira vissi
Lotta ekki, en þegar hún bar
fram kvöldverðinn fann hún að
hann horfði á hana með áber-
andi áhuga. Það var eitthvað
hvasst og skarpskygnt í gráum
augum hans, sem gerði hana
ringlaða. Henni fannst eins og
kastljósum væri beint að sér
meðan hún hellti rauðvíni í glös-
in og það gerði hana svo óstyrka
og klaufalega að hún hellti niður
á dúkinn.
— Afsakið sagði, hún og sendi
Mrs. Gardiner snöggt, biðjandi
augnaráð. Það er vegna þess að
ég er dálítið að flýta mér til þess
að komast á námskeiðið í
kvöld...
— Gestir mínir hafa engan
áhuga á kvöldáætlunum yðar,
tók Mrs. Gardiner fram í fyrir
skip -sérstaklega framleitt fyrir sjálfvirkar þvottavélar
þvottur meS
Blæfagur fannhvítur
Skip
Sjálfvirka þvottavélin yðar verður fyrst full-
komin, er þér notið Skip —því það er ólíkt
venjulegu þvottadufti.
Skip fyllir ekki vél yðar með froðu, sem
veldur yfirrennsli og vatnssulli, og minnkar
þvottahæfni hennar, heldur verður skolunin
auðveld og fullkomin.
Pvottahcefni Skip er svo gagnger að þér fáið
ekki fannhvítari pvott.
Notið Skip og sannfærist sjálf.