Fálkinn - 11.07.1966, Qupperneq 48
ÁÐUR KR. 1DB
NÚ KR. BB
SAMA STÆRÐ
Sf\i Y R T IVÖRIJR HF.
LAUGAVEGI 2.0
^ÍMAR 11D2D • 11 □ 21 - 3 S □ 3 3
Til hreingerninga
og i
uppþvottinn
Heildsölubirgðir
Kristján Ó. Skagfjörð
Sími 24120
IDLIT lli; HÁLS
AÐ er ekki sjaldan að
kona eða ung stúlka
með slæma húð, reynir
allt mögulegt til að bæta
útlit sitt. Þetta er ein-
mitt það sem ekki má
koma fyrij'.
Konan á aðeins að nota
vörur sem eru sérstaklega
ætlaðar þeim. Áður en
nokkuð er látið á húðina
þarf konan að vita um
ástand húðarinnar.
Farið gætilega með
húðina, verndið andlit og
háls jafnt og líkaminn er
klæddur.
Eðlileg húð er mjúk,
fíngerð og hrein en getur
fengið smá bólur stöku
sinnum. Húðin er hvorki
feit né þurr og „make
up“ helzt mjög vel á húð-
inni. Eðlileg húð heldur
áfram að vera eðlileg að-
eins með réttri umhugs-
un.
Þurra húð skortir líf,
viðkvæm gagnvart veðr-
áttunni, roki og sól og
hrukkast auðveldlega,
eldist oft fljótt. Mjög
þurr húð flagnar iðulega
og eru óþægindi í húðinni
algeng.
Öll húð þornar með
aldrinum, að vísu geta
verið undantekningar
eins og í öllu öðru.
BLÖNDUÐ HÚÐ
Þessi húð getur verið
eðlileg eða afar þurr t. d.
í kringum augun, kinn-
um og enni með fitu nið-
ur miðandlitið um nef og
höku. Það er afar mis-
jafnt, hversu mikil fita
eða þurrkur er á hverjum
andlitshluta.
Þessi húðgerð er algeng
og þarf að hugsa um
hana sem eðlilega húð eða
þurra húð og sérstök at-
hygli veitt feitu hlutun-
um.
FEIT HÚÐ
Þar sem húðin er afar
feit er auðvelt að sjá fit-
una á yfirborði húðar-
innar. Feit húð er frek-
ast grófgerð með stórum
svitaholum og húðormum
(fílapenslar). „Make up“
helzt illa á húðinni.
Feit húð hrukkast seint.
Venjulega er að finna
feita húð hjá konum og
körlum innan við 35 ára
aldur.
Það má gera mikið
fyrir feita húð með ná-
kvæmri umhugsun mat-
aræðis og góðri hreinsun
húðarinnar.
Það skal tekið fram að
hér er ekki rætt um húð-
tegundir þær sem eiga að
vera undir eftirliti lækn-
is.
MEÐFERÐ OG
NOTKUN Á SNYRTI-
'VÖRUM
Að kvöldi: Öll húð
þarf hreinsun, notið ann-
að hvort hreinsunarkrem
eða hreinsunarmjólk. Það
er gott að breyta til öðru
hvoru.
Berið á húðina með
fingrunum, frá miðand-
liti og út og upp á við,
upp ennið og kringum
augnkrók, niður hálsinn.
Þurrkið með andlitsserví-
ettu á sama hátt. í sum-
um tilfellum er æskilegt
að nota volgan barna-
svamp til að taka krem-
ið eða mjólkina af and-
litinu.
Þetta hreinsar yfirborð
húðarinnar, þ. e. a. s. ryk
make up og svita sem
liggur ofan á.
Notið gott andlitsvatn,
sem hæfir húðgerðinni til
að taka óhreinindi sem
liggja ofan í svitahol-
unum. Andlitsvatn dreg-
ur húðina saman eftir
SIMYRTIIMG
eftir
Þórdísi Ámadóttur
snyrtisérfrœðing
að hreinsunarkrem eða
mjólk hefur opnað hana
og stemmir húðina af.
„Uppfrískun".
Látið andlitsvatnið í
bómull, fremur litla til
að ekkert fari til spillis.
Þrýstið á andlit og háls,
en gætið þess að andlits-
vatn sem inniheldur eitt-
hvert magn af alkoholi
má ekki leggja undir aug-
un.
Næringarkrem er nauð-
synlegt hverri konu.
Veðrátta okkar er afar
breytileg og alltaf verður
andlitið að þola mest. Við
klæðum líkamann mörg-
um lögum fata og slíkt
hið sama verður að gera
fyrir andlitið. Berið nær-
ingarkrem á andlit og
háls á sama hátt og
hreinsunarkrem. Létt og
lipurlega, leikið við húð-
ina. Maður kaupir ekki
nýja, húð.
Að morgni er nóg að
dúmpa andlitsvatni á húð
ina, en ekki setja hreins-
unarkrem eða mjólk.
Látið því næst eitthvað
til að verja húðina við
utanaðkomandi óhrein-
indum t. d. mjólk, sem
er sérstaklega ætluð húð-
inni. Létt krem eru líka
mikið notuð að deginum,
sérstaklega ef húðin á
það til að flagna. Notið
samt ekki feit krem að
degi til.
Mjólkin er borin á á
sama hátt og fyrr er
greint frá. Frá miðandliti
út og upp á við. Upp enn-
ið. Kringum augun inn
að innra augnkrók og
niður hálsinn.
Framh. á næstu síðu.
48
FALKINN