Fálkinn - 11.07.1966, Blaðsíða 49
• Snyrting
Framh. af bls. 48.
Við verðum að klæða andlit-
ið svo næst kemur „make up“
sérstaklega ef við ætlum út.
(Ath. hingað til hef ég per-
sónulega rekið mig á að vara
sem auglýst er „litað dagkrem"
er hreint • „make up“ og þarf
þar af leiðandi að leggja vernd
undir.)
Berið make up á með því
að leggja þrjá depla á sín
hvora kinn, tevo á enni einn
á nef og höku. Breiðið úr þessu
á léttan hátt smátt og smátt í
sömu áttir og krem eða mjólk
er borin á. Aldrei að nudda
inn í húðina.
Þá er sett laust púður yfir
allt andlit og þar sem skýjað
er út á hálsinum.
Veljið litina varlega svo ekki
sé of áberandi að andlitið sé
með „make up“. Hafið litinn
sem eðlilegastan eða aðeins
tóninum dekkri.
Steinpúður eða fast púður
lokar húðinni og gefur henni
ekki tækifæri til að nærast.
Þar af leiðandi getur húðin
skemmst. Þessa tegund af púðri
má nota til að setja yfir nefið
eftir að fullkomin snyrting er
búin.
Augnskuggar eru látnir á
undan púðrinu ef þeir eru í
krem formi og talkumi þrýst
á á eftir. Augnskuggar úr
dufti eru látnir á eftir púðrinu.
Augnabrúnablýantur á að
vera mildur á lit og settur á
með smá strokum.
Augnlína er alltaf vinsæl en
sækir lítið út á við. Bezt þykir
fljótandi augnlína sem hægt er
að þvo með blautri bómull.
litir eru margir, en þó æski-
legt að nota ekki svartan. Hann
þykir alltof dökkur á íslenzku
kvenþjóðina.
Augnháralitur er einnig
margvíslegur og á að notast
í samráði við lit augnanna og
lit þeirrar augnsnyrtingar sem
fram hefur farið.
Varalitir eru margvíslegir
eftir smekk, háralit, augnalit,
húðarlit, aldri og tízku. Oft er
„make up“ lagt undir þá tveir
litir nú mikið notaðir er þá
fyrst dekkri liturinn borinn á
og síðan sá Ijósari.
Munið að mjög æskilegt er
að nota góða maska einu sinni
í viku, en notið maska sem
búnir eru til af reyndum efna-
fræðingum og þá maska sem
er ætlaður þinni húðgerð.
Andlitsböð og andlitshreins-
un er ómetanlega góð með
vissu millibili og rétt með-
höndlun húðarinnar þess á
milli er það bezta fyrir húðina.
Forðist sápu og vatn. Það er
sódi í allri sápu sem situr svo
eftir á húðinni og ertir hana.
Blandið ekki snyrtivörum
saman. Ef keyptar hafa verið
snyrtivörur í samræmi við húð-
gerð, þá notið þær, því þá að-
eins gera þær gagn.
Athugið. Árangurinn sést
með árunum.
Þ. Á.
Donnr gefur vinsælustu plötuna frá
Hljóöfæraverzlun Sigríöar Helgadóttur
Galdurinn er sá að finna plötuna, sem er falin cinijvers
staðar á síðurn Fálkans. — Að verðlaunum fær sá fundvísi
nýja plötu, sem liann velur sér eftir listanum hcr að neðan
og platan er auðvitað frá Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helga-
dóttur í Vesturveri. — Drcgið vcrður úr réttum laúsnum.
Vinsælar plötur í dag:
1. Like a Baby — Len Barry.
2. You Are a Better Man Than I — Yardbirds.
3. Instant Party — The Who.
4. Cheating — The Animals.
5. I Cant Let Go — The Hollies.
Platan er á hlaðsíðu
Nafn:....................................
Heimili: ................................
Ég vel ínér nr............ Til vara nr.
Þórður R. Magnússon, Hraunhvammi 4 Hafnarfirði.
VINNINGS MÁ VITJA Á SKRIFSTOFU FÁLKANS.
ar fáu stundir, sem hún var
n , , ekki að vinna.
9 Ung Stulka oskast Tvisvar sinnum hafði hún orð-
-----------------------ið að fórna frídeginum sínum,
Framh. af bls. 47. en henni sárnaði ekki lengur að
_______________________ geta ekki sótt námskeiðið. Hún
fann enga löngun hjá sér eftir
erum saman, vil ég hafa þig út að segja Ringmor frá Paul. Það
af fyrir mig. hafði aðeins verið í fyrstu ...
Þennan tíma sem við erum meðan ástarhrifni hennar var
saman...? Lotta glennti upp taumlaus og barnaleg og þarfn-
augun af ótta, sem hún bægði aðist einhvers til að stæra sig
frá sér áður en hann náði að við. Nú vildi hún í eigingirni
festa rætur í undirvitundinni. hafa hann ein. Þess vegna svar-
Hann átti að sjálfsögðu við þess-aði hún himinglöð: „Ekki neitt,"
þegar hann spurði hvað hún ætl-
aði að gera við frídaginn sinn.
— Fyrirtak, sagði hann. Þá
ætla ég að fara með þig niður
á ströndina. Þú þarft að komast
út í sólina og sjóinn þegar þú
ert svona mikið innivið. Við fá-
um dásamlegt veður, við getum
tekið mat með okkur ... Ég get
keypt flösku af víni þegar ég
fer til borgarinnar á morgun.
— Ferðu til borgarinnar? Hún
gat varla leynt vonbrigðum sín-
um.
Framh. f næsta blaði.
BANGSI
OG
LISTA-
VERKIÐ
Eftir stutta rannsókn komst Lálti lögga
að gáfulegri niðurstöðu. „Hér hafa
glæpamenn verið að verki.“ tilkvnnti
hann. „Ég vona, að þú haldir ekki. að
eg hafi kundið mig siálfur,1' sagði
Bangsi háðslega. „Leystu mig nú!“
Þegi þú eins og steinn!“ urraði Ieyni-
lögregluþjónninn. „Þú ruglar mig með
þessu kjánalega masi þínu.“ Bangsi
þagnaði og fór að reyna að losa sig úr
böndunum. En það varð árangurslaust.
Á meðan var Marío að reyna að losa
sig úr sínum fjötrum. Loksins gat hann.
slitið kaðalinn í sundur. „Gott!“ sagði
hann ánægjulega og virti fyrir sér
flækjuna fyrir neðan sig. „Á hvorur.i
endanum hangir nú foringi mir.n?“
FALKINN
48