Vaka - 01.11.1928, Page 40
294
KINAH ÓL. SVEINSSON:
[vaka]
Suinir vísindaraenn hafa talið hana bera vott um irsk
áhrif, og varla verður með rökum hrakið, að nafnið
Rigr sé þaðan. En hvort nokkuð í anda kvæðisins kann
að vera örvað af írskum áhrifum eða ekki, skal með
öllu ósagt lótið, enda mun erfitt að festa hendur á þvi.
Kvæðið segir frá Ríg, sein er á ferðalagi um jörðuna
og hittir fyrir sér þrenn hjón, Áa og Eddu, Afa og
Ömmu, Föður og Móður. Hann nýtur gestrisni þeirra
og gerist ættfaðir mannanna. í frásögninni er stígandi:
fátæklegast er hjá Áa og Eddu, og eru af þeim komn-
ar þræla ættir. Sýnu rikmannlegra er hjá Afa og
Ömmu og eru þaðan komnar karla ættir, bændur og
búalið. Miklu glæsilegast er hjá Föður og Móður, og
ber öll merki vaxinnar menningar; eru þaðan komnar
jarla ættir. Jarl, son Móður, kveðst Rígur eiga og kenn-
ir honum rúnir og gerir hann landeiganda. En einn
sona hans, er Konur ungur heitir,
kunni rúnar,
ævinrúnar
ok aldrrúnar.
Hann þreytir rúnar við Ríg jari og kann betur, og ríð-
ur síðan brott. Král<a, er situr á kvisti, segir honum
frá Dan og Danp, sem eiga dýrri hallir og æðra óðal en
þeir frændur — en þar lýkur kvæðinu.
í þessari frásögn er ekki annað en beinagrind kvæð-
isins, en jafn-afmarkaðir eru áfangarnir í því sjálfu og
hér er i yfirlitinu, og það eru hinar nákvæmu og stór-
rnerku lýsingar á stéttum manna, sem gera það jafn
slíemmtilegt og það er. Stígandin getur engum dulizt, sem
l<væðið les, neðan frá og upp eftir, frá þrælnum til kon-
ungsins. En þessi stígandi er ekki einungis af ósjálfráð-
um listakröfum, svo sem þegar i ævintýrum er sagt
fyrst frá trölli með einu höfði, en síðan kemur annað
með tveimur, og loks þriðja með þreinur, heldur er
hér ákveðin liugsun bak við. Nöfnin segja til þess, að
eitt er komið af öðru. Edda, Amma, Móðir, hér er ætt-