Vaka - 01.11.1928, Page 101

Vaka - 01.11.1928, Page 101
[ vaka] ENSKIR SKÓLAK. 355 En flestir nemendur dvelja þó lengur, eitt til tvö ár, í skólunum. Þau árin hafa þeir mikið frjálsræði um nám sitt. Flestir velja þá einhverjar höfuðnámsgreinar, sem þeir aðallega ætla að leggja stund á. Skólasveinar eru svo margir, árgangurinn venjulega um tvö hundr- uð, að sérnámið veldur ekki vandkvæðum, en þó eru hafðir færri i bekk síðustu árin, svo að kennararnir geti sinnt nægilega hverjum einstökum nemanda. Höfuðkostur þessara skóla er heimavistin. Þykir sumum að vísu full langt gengið á Englandi í því að hrifsa unglinga á þroskaskeiði frá heimilunum. Um áhrif heimilanna á uppeldið má að vísu segja margt fagurt og satt, þegar um góð heimili er að ræða. En margt foreldrið hefir nú á tímum fáar tómstundir til að sinna börnunum, og fjöldi enskra höfðingja dvelur um langt skeið æfinnar í öðrum löndum. Þrátt fyrir allt gott, sem hægt er að segja um göfgi heimilisins, þykir þó raunin vera sú, að uppeldið í heimavistar- menntaskólunum gefist bezt að því er drengi snertir. Þar temst margt, sem félagslíf heimtar í daglegri um- gengni við jafnaldra. Tími vinnst til að iðka ýmsar listir, söng og hljóðfæraslátt með leiðsögn kunnáttu- manna. Kennarar og nemendur hafa með sér „klúbba“, sem Ieggja stund á ýms fræði, bókmenntir, náttúru- sögu o. fl. íþróttir eru iðkaðar eina til tvær stundir á degi hverjum. Heimavistin er heilt hverfi. Skólasvein- ar skiftast á húsin, og húsfélagar halda vel saman. Nýsveinar hafa engin forrétlindi. Vegur þeirra fer eftir því, hvernig þeir reynast. En sá, sem aflar sér trausts og vinsælda, getur komizt til vegs og virðingar innan síns húsfélags. I þeim stöðum reynir oft á stjórn- vizku og umhyggju fyrir öðrum. Er það hin fyrsta tamning á stjórnarhæfileikum margra, sem síðar eru settir yfir meira og verða máttarstoðir hins brezka heimsríkis. Einu sinni á viku er gengið í kirkju. Þar prédikar skólastjórinn, þó flestir séu þeir leikmenn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Vaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.