Vaka - 01.11.1928, Page 132

Vaka - 01.11.1928, Page 132
38« ORÐABELGUR. [vaka] sem samið hefur verið um fornbókmenntir íslendinga á erlendu máli. Þegar W. P. Iver féll frá og W. A. Craigie fluttist til Vesturheims fyrir nokkurum árum, virtust óvænlegar horfur fyrir þessi fræði í Bretlandi. Var auðsætt, hví- líkur skaði það væri, ef íslenzk fræði yrði afrækt með þessari miklu öndvegisþjóð. Engin tunga er betur til þess fallin en enska að bera boð frá smáþjóðunum út um viða veröld, þar sem heita má, að hún sé lesin og numin um heim allan. Englendingar hafa og jafnan sýnt það, að þeir skilja menningu vora og bókmenntir flest- um erlendum þjóðum betur, ef þeir koma auga á þær. Þeir eru ferðamenn miklir og vex ekki í augum að kynnast landi og þjóð af eigin sýn og raun, og höfð- ingsskapur þeirra og frjálsmannleg hugsun er enn mjög i ætt við fornöldina. Og þvi fer betur, að hér virðist munu svo fara, að maður komi í manns stað. Þótti mér jafnvel furðu sæta nú i haust, er eg kom í nokkura enska háskólabæi, hver gróður þar er í þessum efnum. Er þó íslenzka hvergi kennd að höfuðnámsgrein enn sem komið er, heldur brot eitt af enskunámi. Eftirmaður W. P. Kers í Lund- únum er R. W. Chambers, en W. A. Craigies í Oxford J. R. Tolkien. Báðir eru þeir sérfræðingar í engilsax- nesku, en kenna þó líka íslenzku. Hvorugur þeirra hef- ur enn komið til íslands, en próf. Tolkien hefur siðustu ár haft íslenzkar stúlkur á heimili sínu, talar islenzku prýðilega og les nútímabókmenntir, jafnframt hinum fornu, með iiemöndum sínum. í Cambridge er Miss B. S. Phillpotts aðalkennarinn í íslenzkum fræðum. Hún er hin lærðasta kona og skörungur í hvívetna, hefur gert merkilegar rannsóknir um forna menningu og bók- menntir (Kindred and Clan (1913), The Elder Edda and Ancient Scandinavian Drama (1920)), farið fótgangandi um ísland þvert og endilangt, og standa fáir henni á sporði að þekkingu og skilningi á þjóðinni að fornu og nýju. Miss Phillpotts hal'ði um margra ára skeið svo umsvifamiklum störfum að gegna, er hún hafði á liendi forstöðu Westfield College í Lundúnum og Girton College í Cambridge, að hún gat lítt gefið sig að vís- iiídaiðkunum. En nú hefur hún horfið aftur að fræð- um sínum og má mikils vænta af kennslu hennar og rit- störfum framvegis. Hún hefur nú í smíðum bók um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Vaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.