Vikan - 12.09.1963, Blaðsíða 10
Fólk á|;
fförnum
<
Síðari hluta júlímánaðar óku
blaðamaður og ljósmyndari Vik-
unnar fram á þennan bíl, þar sem
hann stóð — eins og sjá má — nokk-
urn veginn upp á endann 70—80
metra utan vegar austur í Skaftár-
tungum. Ökumaðurinn svaf í aftur-
sætinu. Honum sagðist svo frá,
að hann hefði verið þarna á
ferli um nóttina, orðinn syfjað-
ur, og ók út fyrir veginn til
þess að leita sér að stað, þar sem
hann gæti sofið í friði. Vonandi hef-
ur honum orðið næðissamt i gjót-
unni; hann virtist að minnsta kosti
vera allsæmilega út sofinn, þegar
hann fannst.
í sumar var Vikumaður á ferð
norður á Tjörnesi, þar sem þessi
bíll stóð utan vegar og hafði
greinilega endastungizt á mikilli
ferð. í b'lnum var enginn —
hvorki sofandi né vakandi. Það
er ótrúlega mikið um það, að
skemmtiferðir úti um landið endi
með því, að bílarnir fara annað
hvort upp á endann eða upp í loft,
og sjaldnast er neinu um að kenna
öðru en ökumanninum sjálfum.
Þótt sumarferðatímanum sé nú lok-
ið á þesTu ári, er rétt að athuga þess-
ar tvær myndir og festá þær sér
vel í minni, því til þess eru vítin
að varast þau.
«
<
Hann kemur sennilega
oftar til Akureyrar en
nokkur annar, ef frá
eru taldir b'lstjórarnir
hjá Norðurleiðum og
flugmennirnir hjá Flug-
félagi íslands. Enda er
maðurinn uppalinn á
Akureyri. Faðir hans,
Sigurður Guðmundsson
var skólameistari við
menntaskclann bar. Jú,
þetta er hann örlygur,
listmálari, rithöfúndur,
húmoristi 03 selskaps-
maður. Það er aldrei
logn í kringum hann
örlyg, enda er maður-
inn málgefinn. En það
gerir ekkert til, hann
er svo orðheppinn og
skemmtilegur. — Þessa
rissmynd gerði Ragnar
Lár. um daginn, en
þarna er Örlygur stadd-
ur í nýja Sjálfstæðis-
húsinu á Akureyri.
Hjá Skútustöðum í Mý-
vatnssveit hittum við
þessa tvo menn — á förn-
um vegi. Þetta eru þeir
Ásgeir Norðdahl, ráðs-
maður á vinnuheimilinu
Reykjalundi (með hattinn)
og Þráinn Þórisson, skóla-
stjóri á Skútustöðum og
söngvari. Ásgeir var þarna
staddur í sumarfríi sínu,
og greip Þráinn tækifærið
til þess að fá hann til þess
að reisa með sér snúru-
staura. Og nú eru staur-
arnir komnir upp, svo að
Fkindum blaktir ilmandi
þvottur á snúrum við
Skútustaði um þetta leyti [>
(ef ekki verður komin
rigning fyrir norðan).
A
Hér áður fyr, þótti enginn vinnumaður með mönnum, nema
hann ætti hest. Ennþá er þetta svipað, en munurinn sá, að nú er
bifreiðin komin í stað hestsins, en gegnir vissulega sama hlutverki.
Einn þeirra manna sem hafa tekið bifreiðina framyfir hestinn
er vinnumaðurinn á Gautlöndum í Mývatnssveit. Hér sjáið þið
svo Mannsa með fólksvagninn sinn. Við náðum þessari mynd af
honum er hann skrapp til Skútustaða einn góðviðrisdaginn
í sumar.
Og á förnum vegi á síldar-
plássunum finnum við svona
myndir. Þegar komið er í hús
í bæjunum eða bæi í sveit-
unum, tefst myndataka alltaf
um stund, meðan heimafólk-
ið er að greiða sér og snurfusa,
en á síldarplássunum lætur
fólkið sér fátt um ljósmynd-
ara. Þar skiptir engu máli,
þótt hægri lokkurinn sé kom-
inn yfir til vinstri, það er síld-
in sem öllu máli skiptir. [>
Myndin þarfnast ekki náinnar útskýringar, en þetta eru þeir
„félagarnir" Sonny Liston og Floyd Pattersson. Varla þarf að taka
fram hvor er hvað, en myndin er tekin þegar þeir hittust síðast, eða
réttara sagt, þegar Sonny hitti Floyd.
10
VIKAN 37. tbl.