Vikan - 20.08.1964, Blaðsíða 15
Það stóð yfir knattspyrnuleikur í borginni Lima í Perú, milli heimaliðsins og Argentínu
manna. Keppt var til úrslita um hvort liðið færi á Olympíuleikana. Heimaliðið hafði
ekki sett neitt mark ennþá, en hafði sjálft fengið eitt. Nokkrum mínútum fyrir leikslik kvitt-
uðu samt heimamenn með marki, — en dómarinn ógilti markið.
Þá urðu áhorfendur óðir, og á næstu mínútum breyttist leikvangurinn í vígvöll, þegar
æstur múgurinn réðist gegn dómaranum á vellinum og Ieikmönnunum. Áður en nóttin féll
á voru yfir 300 áhorfendur liðin lík.
Hér segir einn áhorfenda frá þessum hryllilega atburði.
*ím'■ »«t- ' ím* ■:.■■■■■ ■■■ ■■
y 'i,
■i ýt Ui *-*■+■•■ ÍM * ,; tmMé**i***
f. 4 4;*.!*** >Ȓ
<5 Myndir í einu dagblaðanna í
Perú, daginn eftir kappleikinn.
< < Þetta mun vera hryggileg-
asti atburður í sögu íþróttanna.
45 þúsund manns breyttust í al-
gjöra vitfirringa á nokkrum sek-
úndum. Hroðaleg atvik gerðust,
þegar börn og fullorðnir tróðust
undir, leikvangurinn litaðist blóði
hundraða saklausra áhorfenda.
O Það voru aðeins sex mínútur til leiksloka, þegar ósköpin hófust. Lögreglan reyndi að lialda áliorf-
endum í skefjum með kylfum, táragasi, vatni og grimmum hundum, en allt kom fyrir ekki. Óður skar-
inn barðist með brotnum gosdrykkjaflöskum við lögregluna, en aðrir reyndu eftir beztu getu að verja
börnin sín.
VIKAN 34. tbl.
15