Vikan - 20.08.1964, Side 22
HarnEeikurinn
grísinn 1
Það var einu sinni grís, sem kom spássérandi eftir götu
í Stokkhólmi. Einhver hafði sleppt honum lausum — og nú
trítlaði hann þarna, eiganda- og umkomulaus í stórborginni.
Það var svo sem nógu slæmt í sjálfu sér. En hið versta var,
að á bóginn á grísnum var máluð mynd af Nikita Krustjeff
forsætisráðherra. Að vísu var svipurinn ekki mikill, en nægi-
legur þó, til þess að hrinda af stað einum heljarmiklum lög-
regluhildarleik. Framhald hinna æsispennandi grísaveiða
hefst með næsta þætti.
2
HARMLEIKUR-
INN UM
GRÍSINN
Tveir fílefldir verðir laganna úr
hinum öfluga lífverði rússneska
forsætisráðherrans nálgast hröðum
skrefum. Öll „gegnkrúsílandi-svín"
skulu fjarlægð þegar í stað. Bar-
áttulaust? Nei, aldrei!
A HARMLEIKURINN
.1 UM
GRÍSINN
■' ' ''''y' " ■
& WF t’wBÍiÉStaL. WSM Með eldsnöggu Jesse Owens-viðbragði
' 'sí. eykur grísinn hraðann upp í 30 km/klst á
nokkrum sekúndum. Armur laganna er (
vita vonlausri aðstöðu. Skrambinn, sverðið
f . ■ : »: . - i.. . flæktist fyrir!
4
HARM-
LEIKUR-
INN UM
GRfSINN
Leikurinn nær hámarki.
Grísinn hefur fram að
þessu haft greinilega bet-
ur. En enginn má við
margnum. Að lokum virð-
ist réttvísin hafa yfirhönd-
ina. Öll sund virðast lok-
uð. Og þó!
MVNDASÖGU ÞESSA RÁKUMST VIÐ Á f SÆNSKU MYNDABLADI OG B
GÚMSÆTI FYRIR HERTOGANN
Enda þótt Filipus hertogi flygi heimleiðis héðan á
sinnni eigin þotu, þá voru það Loftleiðir sem önnuðust
afgrciðslu vélarinnar og nestuðu meira að segja her-
togann og gervallt fylgdarlið hans fyrir heimferðina.
Kom það á daginn, að hertoginn var svo mettur og
vel haldinn við heimkomuna, að hann leit ekki á sér-
staka íbúð, sem honum hafði verið búin á flugvell-
inum, heldur strunsaði hann upp i sportbíl og ók til
hallarinnar „eins og alvanur bílstjóri" svo sem Vísir
mundi liafa orðað það. Hertoginn ók nefnilega „eins
og alvanur bílstjóri ‘ norður við Mývatn, komst yfir
blindar hæðir og náði meira að segja beygjum, öllum
til mikillar ánægju.
En matseðillinn í flugvélinni á útleið, hljóðaði svo:
Rækjukokkteill.
Úrval kaldra kjöttegunda.
Nýtt grænmetissalat í franskri ídýfu.
Ostaréttir og kex.
Nýir ávextir. Kaffi.
Sem sagt: léttur og lystugur matur og vafalaust
snilldarlega framreiddur eins og venja er hjá Loftleið-
um. Fólkið á myndinni er frá hægri: Sgt. Miss Maureen
Glennon, Svan Ágústsson, bryti, F/Sgt. Mr. Michael
Brown og Jón Kristlnsson, matreiðslumaður. Brown
mun hafa verið bryti á hcrtogaflugvélinni, en daman
frammistöðustúlka.
22
VXKAN 3X. tbl.