Vikan - 20.08.1964, Qupperneq 32
Norska
Dala-garnið
«-1
Tízkupeysan í ár
ER PRJÓNUÐ OR DALA-GARNI.
HEILO -4- ÞRAÐA.
FASAN SPORTGARN -6- ÞRAÐA.
DALA-GARNIÐ ER GÆÐA VARA.
MÖLVARIÐ - HLEYPUR EKKI - LITEKTA
OG HNÖKRAR EKKI.
MJÖG FJÖLBREYTT LITAORVAL.
TOGIR MYNSTRA FAANLEG.
ÞESS VEGNA VELJIÐ ÞER AÐEINS
DALA-GARNIÐ TIL AÐ PRJÓNA OR.
DALA-GARNIÐ FÆST OM ALLT LAND.
*
ii
’HUpnap
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
©Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þér er faliö verkefni, sem er mjög strembið úr-
lausnar, en þú gætir þó leyst, ef þú leitaðir að-
stoðar. Gættu þín á dómgirni og svartsýni. Þú hefur
vantraust á ýmsum félögum þínum, sem sökum
kuldalegrar framkomu þinnar, geta ekki nálgast þig.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Smá truflanir, sem koma 1 veg fyrir eðlilega þróun
mála, gera þér gramt í geði, sem svo getur leitt
af sér ennþá lengri tafir, ef þú hefur ekki gát á
þér. Kunningjar þínir eru með mjög athyglisverð-
ar hugmyndir á döfinni.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Smá erfiðleikar verða óhjákvæmilega á vegi þín-
um, en þú yfirstígur þá léttilega, ef þú ert við-
búinn. Umgengni þín við kunningjana ætti ekki að
vera eins mikil og að undanförnu. Þér er langheppi-
legast að eyða kvöldunum heimavið.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Vegna jafnvægis þíns og atvinnu, er þér nauðsyn-
legt að koma til móts við mann, sem vill leið-
beina þér og aðstoða. Gegndu sem minnst félags-
störfum og helgaðu þig aðkallandi verkefnum. Um
helgina verður óvenjumikið annríki.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
©Hikaðu við, áður en þú tekur nokkrar persónulegar
ákvarðanir. Þú átt eftir að uppgötva eitthvað sem
breytir áformum þínum innan skamms. Sinntu meir
ástvinum þínum. Samband þitt við fjölskylduna
verður óvenju innilegt.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
©Þú ert venju fremur eftirvæntingarfullur og óþolin-
móður vegna atburða innan fjölskyldunnar. Stjörn-
urnar spá því, að innan fárra daga leysist spurn-
ingarnar af sjálfu sér og að þú fáir hin æskilegustu
;vör. Reyndu að skemmta þér upp á eigin spýtur.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Persónulegra samband við yfirmenn þína væri mjög
heppilegt. Reyndu að komast í nánari snertingu
við umhverfið. Það verða gerðar háar kröfur til
mannkosta þinna og stór liður þar 1 er prúðmann-
leg framkoma og heiðarleiki.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Einhver töf verður á verki þínu, svo þú þarft að
leggja meira að þér en endranær til að vinna
upp tapið. Temdu þér að vinna skipulegar en þú
hefur gert, svo þú getir lokið einu, áður en þú
grípur í annað. Helgin getur orðið ævintýraleg.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
©Þú átt í brösum við persónu, sem er þér mjög kær-
komin. Brjóttu odd af oflæti þínu og réttu fram
sáttarhönd, það mun reiknast þér til tekna síðar
meir. Skemmtu þér eftir föngum, en reyndu ekki
að leita nýrra kynna með hinu kyninu.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Sá hæfileiki þinn, að vinza kjarnann frá himsinu,
reynist þér mjög þarflegur um þessar mundir, og
'imikil hjálp í dagsins önn. Þú færð ágætt tilboð
um hlutdeild í arðbæru fyrirtæki, sem ennþá hefur
ekki litið dagsins ljós. Heillatala er 3.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú hefur orðið fyrir vonbrigðum með val kunningja
þíns, en það mun verða þér lærdómsríkt. Á vinnu-
stað ættirðu að gefa gaum að starfsaðferðum þeirra
sem eru reyndari en þú, það er alltaf hægt að læra
meira, þótt maður þykist ekki vera neinn klaufi.
©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Ef þú beitir meðfæddri bragðvísi þinni, geturðu
komið þér laglega fyrir, en þú skalt gæta þess að
vera ekki of róttækur. Þú verður vitni að atburði,
sem á eftir að vekja hjá þér ýmsar spurningar.
Kappkostaðu, að verk þín komi að gagni.
m
DALA-UMBOÐIÐ
g2 — VIKAN 34. tbl.