Vikan - 20.08.1964, Side 38
ÞAÐ ER SPARNAÐUR
í AÐ KAUPA GÍNU
Öskadraumurinn
viS heimasauminn
Ómissandi fyrir allar konur, sem
sauma sjólfar. Stærðir viS allra
hæfi. Verð kr. 550,00 og meS
klæðningu kr. 700,00. Biðjið um
ókeypis leiðarvísi.
Fæst I Reykjavlk hjó:
DÖMU- & HERRABÚÐINNI
Laugavegi 55 og
GÍSLA MARTEINSSYNI
Garðastræti 11, sími 20672
Hijómplatan með
fjórtán
Fósthræörum
er að sló öll sölumet íslenzkra
hljómplatna enda er hér á ferð-
inni einhver skemmtilegasta og
vandaðasta hljómplatan um óra-
bil.
Á plötunni eru ótta lagasyrpur,
eða alls 40 lög, og er þetta LP
33 snúningshraða plata.
Platan kostar kr. 325,00 og verð-
ur yður send hún um hæl, burð-
argjaldsfrítt, ef þér sendið tékka
eða póstóvísun að upphæð kr.
325,00
*
SG-hljómplötur
Box 1208 — Reykjavík
hlaupið í burtu eins og ofsa-
hrædd dýr, að útgöngudyrunum.
Aðeins nokkrum metrum fyrir
neðan okkur, tróðust menn hver
á öðrum og felldu hver annan í
æðislegri tilraun til að komast
undan táragasinu, lögreglukylf-
unum eða hundunum.
Þetta var upphafið á mesta
knattspyrnusorgarleik, sem
nokkru sinnni hefur skeð.
Hræðsluæðið varð algjört, þegar
lögreglan tók að skjóta af
skammbyssum sínum upp í loftið.
Áhorfendur héldu að lögreglan
væri að skjóta á þá. Þeir réð-
ust að útgöngudyrunum eins og
geysistór hjörð nautgripa á æðis-
legum flótta, og þúsundir fólks
ýtti og þrýsti á grindurnar. Ekk-
er gat framar stöðvað þennan
manngrúa sem þrengdi sér áfram
í æði. Þeir fremstu köfnuðu, voru
marðir undir hælum vitfirrts
fólksins, eða kramdir í hel við
grindurnar, sem gáfu ekkert eftir
undan þunga mannfjöldans.
Úti á flötinni féllu hundruð
kvenna á jörðina, blindaðar af
táragasinu, og það leið yfir marg-
ar þeirra. Fólksstraumurinn rann
yfir þá föllnu, en aðrir voru
troðnir niður. Á eftir straumn-
um komu svo hundarnir. Ég sá
djöfullegan schaeferhund taka
undir sig stökk rétt fyrir neðan
mig og hafna á baki manns eins.
Hundurinn beit manninn á háls
eins og villidýr.
Fyrir aftan mig á pöllunum
náði fólkið í lögregluþjón, tók
í hendur hans og fætur og sveifl-
uðu honum fram og aftur en
slengdu honum síðan út af pöll-
unum. Hann drapst þegar í stað,
er hann kom niður á höfuðið á
steinsteyptan gangstíginn. Annar
lögregluþjónn var kyrktur með
sínu eigin hálsbindi annars stað-
ar á pöllunum.
Freistingin að fylgja mann-
fjöldanum eftir til að reyna að
komast undan, var svo sterk, að
ég varð að beita mig valdi til
að halda aftur af mér. En ég
hafði son minn fastklemmdan
niður milli hnjánna, þar sem
hann þrengdi sér í krikann milli
sætisins og gólfsins. Ef ég hefði
verið einn, hefði ég sennilega
hlaupið af stað með fjöldanum,
og kannske beðið bana í þrengsl-
unum.
Sem betur fer, þá hvarf tára-
gasið fljótlega, kannske eftir
fimm mínútur, og vindurinn blés
því á brott. Ég tók vasaklútinn
frá augum sonar míns og þurrk-
aði mín eigin, sem tárin runnu
stanzlaust úr. Strákurinn var
hræddur ekki síður en ég, en ég
gerði mitt bezta til að hann tæki
ekki eftir því. Ef við héldum
okkur bara kyrrum þar sem við
vorum, mundi allt fara vel, hug-
hreysti ég sjálfan mig.
Ég sá menn úti á vellinum,
sem létu alveg eins og vitfirr-
ingar, slógu um sig til allra, sem
þeir náðu til, með flöskubrotum
og öðrum bareflum. Ég sá þá
troða undir fótum konur og börn,
og ég heyrði óp og stunur þeirra,
sem voru í andarslitrunum eða
hættulega særðir. Ég sá þegar
maður með barefli réðist að ber-
höfðuðum lögregluþjóni og ætl-
aði að slá hann í höfuðið, og ég
sá þegar lögregluþjónninn skaut
hann til bana án þess að hika
augnablik.
Ríðandi lögregluþjónar komu á
vettvang og tóku að berja á fólk-
inu með kylfum og öðrum vopn-
um. Einn þeirra var dreginn nið-
ur af hestinum og lenti í hönd-
unum á óðum lýðnum, sem fór
þegar að misþyrma honum. Ég
veit ekki hvort hann komst lífs
af eða ekki. Ég veit það ekki, því
ég gef þessa skýrslu aðeins
nokkrum klukkustundum eftir að
þessar hörmungar dundu yfir,
og ekki er enn hægt að segja til
um það hverjir hafa komizt lífs
af, vegna anna á sjúkrahúsun-
um.
Hópur af æstym lýð hljóp til
bankanna, en þeir voru rétt hjá
þeim stað, þar sem við vorum.
Ég þrýsti mér enn betur niður
yfir son minn til að verja hann.
Ég fann þegar fætur þrömmuðu
endalaust á bakinu á mér, þegar
fólkið hljóp fram og til baka
til að komast undan lögreglu-
mönnunum, sem höfðu sent lið-
styrk til að verja bankana.
Þegar ég lá samanhnipraður
yfir syni mínum og fann hvernig
gengið var á okkur og sparkað
í okkur, fékk ég skyndilega
óskaplegt hræðslukast. Ég varð
alveg frávita af hræðslu, ennþá
verri en þegar hús foreldra minna
hrundi til grunna í jarðskjálft-
um fyrir mörgum árum og for-
eldrar mínir fórust bæði.
Ég lá kyrr og hvíldi olnbog-
ana á jörðinni, en fólksmergðin
hljóp fram og aftur yfir bak
mitt, höfuð og háls. Þannig lá
ég alveg kyrr þangað til ég fann
ekki fyrir fleiri fótum. Völlurinn
leit út eins og eftir orrustu, en
orrustan var liðin hjá. Mannfjöld-
inn barðist ennþá við útgangana,
þar sem dauðir og dauðvona lágu
í hrúgum. Fyrir utan vallarsvæð-
ið sá ég eld og reyk leggja upp
frá næstu byggingum.
Ennþá hreyfði enginn hönd né
fót til að hjálpa þeim slösuðu
eða flytja burt þá dauðu. Lög-
reglan reyndi að ryðja áhorfend-
um braut, svo þeir gætu farið
burt. Umhverfis mig sá ég fimm-
tíu, kannske áttatíu menn, kon-
ur og börn, reisa höfuðin og líta
undrandi í kringum sig. Þau
höfðu verið kyrr á sínum stað,
eins og ég og sonur minn, og
flest sloppið nokkurn veginn
óslösuð.
Ég beið með syni mínum þang-
að til leiðin var opin. Ég hafði
ákafan höfðuverk eftir fæturnar,
sem höfðu gengið á mér, og
kannske eftir táragasið. En ég
var lifandi og sonur minn var
lifandi, og það hafði meira að
segja en nokkuð annað.
Ég tók son minn í fang mér
og gekk með hann niður pallana,
yfir niðurbrotna girðinguna í
fylgd með öðru því fólki, sem
beðið hafði eftir að ósköpunum
linnti. Við fórum til austurhliðs-
ins, vegna þess að aðrar dyr voru
allar fullar af slösuðu fólki og
líkum. AUs staðar lá fólk á jörð-
inni, margir svo kesstir og sund-
urtættir, að það var engu líkara
en þjöppunarvélar hefðu ekið
yfir þá, en aðrir svo illa særðir
UNGFRU YNDISFRIÐ
býður yður hið landsþekkta
konfekt frá N Ó A.
HVAR E R ORKIN HAfclS
I>aS er allfaf saml lelkurlnn i hénnl Ynd-
isíríS okkar. Hún hefur fallð örklna hans
Nóa elnhvers staSar I hlaSlnu og hcltlr
góSum vcrSlaunum handa þeim, sem getur
fundiS örklna. VerSIaunln cru stór kon-
fektkassl, fullur af hezta konfokti, og
framlelSanðinn er auSvitaS SœlgœtlsgcrS-
in Nól.
NÓA2
Nafn
Helmlll
Síðast er drcglð var hlaut verðlaunin:
HALLDÓRA JÓNSDÓTTIR,
Skógarskóla, Rang.
Vinninganna má vitja á skrifstofu
Vikunnar. 34. thl.
gg _ VIKAN 34. tbl.