Vikan

Tölublað

Vikan - 14.01.1965, Blaðsíða 23

Vikan - 14.01.1965, Blaðsíða 23
< Arnarmamma Helena me8 Helenu aðra, dótt- ur Roy's. „Yndislegt barn og alltaf til ónægju". < Bræðurnir Horace og Roy. Horace var eins og faSir hans og afi, hélt meira upp ó bækur en bókhald. Roy eins og móðir hans, frá byrjun heillaður af æsandi ævintýrum viSskiptalífsins. <;<; Táknrænn morgunn hjá Helenu Rubinstein. Einkaritarinn kl. 8, bréf lesin fyrir yfir morgun- verSar-bakkanum, stjórnarfundur viS rúmstokk- inn, þar sem bréf eru lesin, ákvarSanir teknar um áætlanir og framkvæmdir dagsins. Einn af frumdráttum Graham Sutherland's af tveim málverkum sem hann málaSi af „þeirri gömlu meS arnaraugun" (sjálfslýsing Helenu Rubinstein). STEjW fegrunarsérfræðingsins u Rublnstein - 2. hlutí las og lærði hjá frægum prófessor- um. í Vín kynntist ég þekktum kven- lækni, dr. Emmie List, sem varð góð vinkona mín og síðar kom til að vinna með mér í London. Einn af kennurum mínum frá þessum tíma sagði að ég væri svo nákvæm að ég gerði aldrei vitleysur. Það er ekki rétt, mér hefir oft skjátlazt, en ég hefi verið mjög heppin. Þegar ég að lokum sneri aftur til Ástralíu, var ég með hugann full- an af áformum, og ég var viss um að þetta líf var mikið betra en hjónaband. Það hélt ég þá . . . Ég hefi altlaf verið mjög ná- kvæm með alla hluti, og þótt ég hafi fjölda fólks í vinnu hjá mér og treysti því fullkomlega, verð ég alltaf sjálf að vita hvaða aðferðir eru notaðar og hvort ég á rétt á þeim peningum, sem ég krefst fyrir vörur mínar. Hingað til hafði ekkert truflað mig frá vinnu minni, fólkið sem ég þekkti hafði nóg að starfa sjálft; þangað til dag nokkurn að kunningi systur minnar í Krakow kom í heim- sókn til mín. Hann var amerískur blaðamaður af pólskum ættum og hét Edward William Titus. Hann hafði ferðazt víða, var greindur og skemmtilegur og átti marga vini í bókmennta- og listaheiminum. Ég var himinlifandi og við vor- um mikið saman. Dag nokkurn sagði hann: — Helena þú ert ákveðin ( þv( að byggja upp keisaradæmi, gifstu mér, og við skulum hjálpast að. Síaðn ég fór frá Krakow hafði mér aldrei dottið gifting ( hug. Ég var að verða ástfangin og ég vissi að yrði ég kyrr í Ástralíu, myndi það enda með þv( að ég giftist Ed- ward, og það gat truflað fyrirætlan- ir mínar. Ég varð að flýta mér f burtu og ákvað að fara til London, sem þá var miðstöð alls þess bezta og dýrasta í menningar-, lista- og tízkuheiminum. Þar vildi ég koma mér fyrir. Næsta dag pantaði ég farseðil til Southamton. Edward varð alveg ær. Hann sagðist elta mig, og ég svaraði, að ef hann gerði það, skyldi ég giftast honum, þegar ég væri búin að koma á fót fyrstu snyrtistofu minni ( London. Vinkona mín, Eugenia Stone sagði við mig: — Vertu eins og þú ert núna, þá getur þú eignazt milljón á þægilegan hátt, en ef þú ferð til London, verður þér slátrað. — En ég vildi ekki trúa þv( að enskar konur, sem ég hafði svo góð kynni af ( Ástralíu, væru svo afleitar ( heimalandi sínu. London var þá, á dögum Edwards sjöunda, á hátindi glæsileikans. [ stóru, ffnu húsunum í Mayfair og Belgrave, sem ég dáðist að, þegar ég gekk um göturnar, bjuggu r(k- ustu konur þessa heims, fagrar, sið- spilltar og frekar. Allt þetta fólk safnaðist utan um hinn skemmtana- sjúka konung og hina fögru drottn- ingu hans, Alexöndru. Mikið var ég einmana, lítil og stundum hrædd, þótt ég ekki vildi viðurkenna það fyrir sjálfri mér. Ég tók á leigu þriggja herbergja íbúð, með stúlku, sem ég hafði kynnzt á skipinu. Og svo fór ég að leita að húsnæði. Ég vissi að hér þýddi ekkert að hugsa um smáíbúð með bambushús- gögnum, einhversstaðar í borginni. Nei, ef eitthvað vit átti að vera í þessu, varð ég að fá pláss ( May- fair. Oft var ég svo þreytt og einmana, að ég fór ( leikhús bæði um eftir- miðdaginn og á kvöldin, til að stytta mér stundir. Leikhúsin f London voru stórkost- leg. Þarna voru samankomnar allar frægustu listakonur heims, Ellen Terry, Pat Campell, Lilie Elise, Kate Rorke, Isadora Duncan og fleiri og fleiri. Og ég fékk að sjá þær allar og vonaðist til að fá þær fyrir við- skiptavini, með tið og tfma. Dag nokkurn frétti ég að hús fyrrverandi forsætisráðherra, Lord Salisbury, væri til leigu, fyrir fimm þúsund pund á ári. Ég spilaði hátt og tók húsið á leigu, og nú vbr ég aftur ánægð og átti ekki eina ein- ustu frístund. Þetta var tuttugu og sex herbergja hús, svo að það tók langan tíma að lagfæra það. Og á meðan málarar og smiðir voru að verki skrapp ég til Parísar, Vínar og Berlínar, sumpart til að stytta tímann, meðan ég beið eftir húsinu og sumpart til að fullvisa sjálfa mig um að ég vissi nú um allar nýjungar f faginu. Ég fékk vinkonu mína í Vín, dr. Emmie List, til að koma með mér til London, og svo gat ég keypt nokkrar nýjar uppskriftir af nýjum snyrtivörum og fegrunarlyfjum. Ég var nú heldur ánægð, þegar ég hélt aftur til London. Nokkru síðar var ég að ganga upp Graftonstræti á leið til snyrti- stofunnar. Þá sá ég kunnuglega veru standa fyrir utan húsið mitt, og horfa með vandlætingarsvip á gulggana. — Þetta var Edward Titus. Hann hafði haldið loforð sitt og elt mig til London. Eins og hans var von og vísa, komu fyrstu orð hans mér á óvart. Hann sagði: — Þau eru ansi falleg þessi hvítu brókaðitjöld, en ef þú ætlar að setja London á annan endann, verð- urðu að lesa upp og læra betur. Komdu með mér á rússneska ballett- inn ( kvöld, þá skaltu sjá nokkuð sem vit er í. . . Þetta kvölþ fór ég með Edward og sá rússneska ballettinn, sem Serge Diagilev stjórnaði. Ég var auð- vitað stórhrifin af Nijinsky og öllum flokknum, en ég var næstum því eins hrifin af leiktjöldunum, sem Leon Bakst og Alexandre Benois höfðu búið til. Ég var vön þessum hefðbundnu Ijósu baunablómalitum þeirra tíma, fínum gólfteppum og pottaplöntum, sem alltaf voru not- uð á leiksviðum Evrópu þá. En nú varð ég töfrum lostin þegar ég sá þessa æsandi litasamsetningu, fjölu- blátt, rautt, gult, svart og gyllt, ég dáðist að þeim þá og geri enn. FRAMHALD Á BLS. 34. VIKAN 2. tbl. 23

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.