Vikan


Vikan - 12.01.1967, Page 13

Vikan - 12.01.1967, Page 13
— Ég vil ekki að þú berir neitt sjólfur. — Nei, vitið þér nú hvað, frú, ég er ekki orðinn svo gamall. — Auðvitað ertu það ekki, sagði Margaret. — Aldurinn hefur ekkert að segja í þessu tilfelli, það er bara það að ef þú ert að bera, þá er enginn til að líta eftir bílnum og dótinu á meðan. Þú villt örugglega ekki að það sem skeði hér fyrir sjö árum endurtaki sig. Hvað það var sem skeði fyrir sjö árum, fjórum árum eftir að Margaret og Bernard Hodge höfðu keypt íbúðina í hornhúsinu á Park Avenue og átttugustu og fyrstu götu, var gjörsamlega horfið úr minni Carls. — Heilagi Georg, nei, það má ekki ske aftur, sagði hann, dálítið vandræðalega. — Það væri voðalegt, ef það kæmi fyrir aftur. — Það var ekki svo slæmt, þv! að tryggingarfélagið borgaði silfurrammana, en það er auðvitað aldrei hægt að bæta fyrir tap- ið á myndunum, það eru persónuleg verðmæti. En ég vil ekki láta stela neinu úr bílnum aftur, þessvegna er bezt að þú hafir auga með því öllu. — Það skal ekki ske, frú, sagði Carl fastmæltur, — ég get fullvissað yður um það. — Gott Carl, ég þakka þér fyrir. Þá skaltu fara og vita hver er í lyftunni núna, Fred og Charlie. — Það er Charlie, frú, þeir skipta á hádegi. — Það er gott. Farðu þá og náðu í Charlie, og þegar þú ert búinn að opna bílinn, skaltu bara standa hjá honum, þangað til Charlie hefur borið allt dótið inn. Það er alveg sama hve margar ferðir hann verður að fara, þú stendur sem fastast hjá bílnum. — Já, frú, sagði Carl. — Og þá þegar bíllinn er orðinn alveg tómur, skaltu læsa honum. — Já, frú. — Þú manst eftir að prófa allar hurðirnar, hvort þær eru vel læstar. — Já, frú. — Láttu þá Charlie hafa lyklana og segðu honum að færa mér þá, sagði Margaret. —Heldurðu að þú munir þetta allt saman? — Já, örugglega, frú, sagði Carl, — alveg örugglega. — Það er gott, Carl, þakka þér fyrir, sagði Margaret og gekk inn ! húsið. C-D lyftan var lokuð, en klefinn við hliðina á henni var opinn. Þar sat lyftumaðurinn ! rauðu leðursæti og var að rýna ! dag- blað. Hann hélt þv! hátt uppi, til að sjá til við daufa peruna, svo að Margaret gat ekki séð framan ( hann. — Góðan daginn, Wendell, sagði Margaret. Maðurinn stóð upp og lagði biaðið frá sér. Það var ekki Wendell. — Hvers óskið þér, frú? sagði hann. Margaret steig inn í lyftuna en maðurinn fylgdi ekki á eftir henni. — Fimmtán A, viljið þér gjöra svo vel, sagði Margaret. — Hafið þér tilkynnt komu yðar? Andartak skildi Margaret ekki hvað maðurinn átti við með þessu. Þegar hún skildi það, varð hún ergileg, henni þótti óþægi- legt að láta koma sér á óvart. Carl hefði átt að segja henni að það hefði verið ráðinn nýr lyftumaður. — Ég bý í fimmtán A, sagði hún, — ég er fú Hodge. Það næsta sem Margaret varð furðu lostin yfir, var hve undr- andi maðurinn varð. — Nei, það eruð þér örugglega ekki, sagði hann, en iðraðist sýnilega yfir snöggu svari sínu og sagði nú aftur í mildari tón, en samt ákveðinn. — Mér þykir fyrir því frú, en ég veit að þér eruð ekki frú Hodge. Hún varð svo undrandi að hún náði því ekki að verða ofsa- reið, og eins og venjulega náði hún fljótt stjórn á sjálfri sér. — Þér eruð nýr í starfinu hérna? sagði hún rólega, rétt eins og að hún væri að aðgæta hvort reikningurinn úr kjötbúðinni væri réttur. — Já, frú, sagði maðurinn. — Ég byrjaði að vinna hérna á föstudaginn. Ég hefi búið í þessu húsi í ellefu ár, sagði Margaret. — Hvað kemur yður til þess að halda því fram að ég sé ekki frú Hodge? — Vegna þess að herra Hodge kom heim á föstudaginn og frúin var með honum. Hann kynnti hana fyrir mér, sagði maður- Framhald á bls. 36. % J 2. tbi. VIKAN 13

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.