Vikan - 12.01.1967, Síða 20
Hinn myndarlegi þjóðhöföingi Grikkja er 6 fet og
2 þumlungar á hæð. Hann er Karate snillingur
með svarta-beltis gráðu, stekkur hærra en Nur-
ejev og molar múrsteina með olnboganum. Hann
hefur unnið olympíu gull fyrir siglingar og geng-
ur til opinberra hátíðahalda, hönd í hönd með
hinni ungu og fögru drottningu, konunni sem
hann tilbiður. Þessi ungu konunshjón, hann er
26 ára og hún aðeins tvítug, eru yngstu þjóð-
höfðingjar nú lifandi. Hann er á móti hirðsið-
um, hlífir sér ekki við vinnu og laumast oft á
síðkvöldum út úr höllinni, til rólegrar kvöldgöngu
með drottningunni, um götur Aþenuborgar.
í þau tvö og hálft ár, sem þessi ungi konungur
Konstantin konungur, sjötti konungur Hcllena, situr fyrir í fullura
skrúða. Hann er í einkennisbúningi hershöfðingja með marskálks-
staf. Meðal heiðursmerkja sem hann ber í keðju um hálsinn er orða
hins heilaga Georgs og hins heilaga Konstantins og danska Danne-
borg orðan.
Konstantin heldur ræðu í hádegisverðarboði með NATO foringjum.
Sitt hvoru megin við hann sitja Lyman Lemnitzer hershöfðingi og
Charles Griffin, flotaforingi.
Hann vill ekki
stásslecja hirð
í kringum sig
Hann er harður í horn að taka og þráít fyrir ungan aldur,
lætur hann ekki undan síga fyrir slóttugum stjórnmálafor-
ingjum. Hann forðast bruðl, lifir góðu heimilislífi og
iðkar daglega sport, karate eða siglingar.
Anna Maria, hin barnunga drottning, tekur mikinn þátt í opinberum
störfum með manni sínum og reynir að ná valdi á grískri tungu.
20 VIKAN 2-tbI