Vikan - 12.01.1967, Side 24
Inni í bílnum var Swyven.
Hann var í bleikum kjól og
hvítri blússu, bleikum
háhæluðum skóm og næl-
onsokkurn.
Hvítur skýluklútur var
bundinn yfir Ijósa hárkoll-
una. f kjöltunni var hand-
taska með stöfunum P. N.
Eftip James Munro
19. hlutl
— Og hversvegna segirðu mér
það núna? spurði Craig, og var
hugsað til þess hve tröllaukinn
Looomis var. Það var að sjólfsögðu
stærðin. Hvaða svip, sem Loomis
valdi sér, var hann ævinlega stærri
en nokkurs annars.
— Ég vil fá hana aftur, sonur,
sagði Loomis, — og þú líka. Hefurðu
nokkuð í kollinum?
— Ég hefði látið mér detta í hug,
að hún reyndi að hafa samband
við mig.
— Kannski hún geti það ekki,
sagði Loomis. — Hún er með Sherif
með sér, og jafnvel þótt hún sé
frjáls — hvar á hún að byrja að
leita? Þú ert ekki í símaskránni —
og jafnvel þótt hún færi til lögregl-
unnar, myndu þeir ekki hjálpa
henni. Þeir geta það ekki. Aðeins
sérdeildin veit, að við erum til, og
þeim er óheimilt að segja hvar við
erum. Og jafnvel þótt hún kæmist
svo langt, myndi hún verða hindr-
uð þegar hingað kæmi. Og þar að
auki eru lögreglumennirnir í Zaarb,
þeir einu sem hún þekkir, og þeir
tóku ha^a höndum. Það gæti verið,
að hún væri ekki stórhrifin af lögg-
unni.
— Wappjng? spurði Craig. — Fór
neðanjarðarbrautin þangað?
Loomis kinkaði kolli: — Niðri við
höfnina. Þekkirðu nokkurn þar?
— Það er mögulegt, sagði Craig.
— Hann er ennþá starfandi. Náungi,
sem ég hitti raunar fyrir mörgum
árum. Fjölhæfur, en ofurlítið ó-
framfærinn. Hefur ekkert dálæti á
lögreglunni. Þeir hefðu ekkert á
móti að handtaka hann, nefnilega.
Hann er glæpamaður. Mér er sama
þótt hann skrifi dónaleg orð á
kvennaklósettin, sagði Loomis. —
Ég vil bara, að hann finni Selinu.
Craig opnaði svefnherbergisdyrnar
og fór inn. Þegar hann kom út, var
hann kominn í jakka með bindi, og
byssan var ekki lengur sjáanleg.
Loomis reis upp úr stólnum, eins og
flóðhestur rís upp úr leirbaði, og
þeir fóru í bílinn hans.
A spjaldinu, sem var fyrir utan hús-
ið, stóð: Arthur Candlish, bátar.
Þetta var glæsilegt, handgert skilti
úr tekki, með nettum, nákvæmum
stöfum. Það leit út fyrir að vera
mun dýrmætara en byggingin, sem
það skreytti. Loomis starði á hrör-
lega hurðina og lágan, óhreinan
vegginrT úr ójöfnum múrsteinum.
— Ertu viss um, að þessi náungi
geti eitthva,ð? spurði hann.
— Ég er viss, sagði Craig og
togaði f ryðgaða bjöllukeðju. Það
vældi í henni af olíuleysi, hún færð-
ist niður um eitt og hálft fet, en
rykktist síðan aftur til baka um leið
og bjallan gall. Loomis var hrifinn
af þessari bjöllu. Maður f hvftum
slopp opnaði dyrnar. Hann var með
meitil í hendinni. Hann leit á Craig
og eggin á meitlinum sneri ekki
lengur að þeim.
— John, sagði hann. — Gaman
að sjá þig. Arthur verður ánægður.
Hann er á skrifstofunni.
Hann gekk á undan þeim eftir
gangi og veggirnir voru úr máðum
múrsteini. Sfðan komu þeir inn í
vinnupláss með engum veggjum,
að eins með þaki, og þar voru
bátar af öllum gerðum; þeirra á
meðal fegursti hraðbátur, sem
Loomis hafði nokkurn tíma séð.
Mennirnir, sem unnu þarna, voru
rólegir en öruggir í hreyfingum, og
Loomis fann undir eins, að þeir
nutu verksins.
Við fjarri enjja svæðisins lágu tein-
ar niður aðTkipakví og hinum meg-
in við hana var áin. Skqmmt frá
teinunum var skrifstofuglerbúr og
þangað stefndi Craig. Maðurinn í
búrinu var f bláum vinnugalla með
linan hatt, fornlegan í sniði, sem
Loomis varð skotinn í undir eins.
Þetta var hár og grannur, beinvax-
inn maður um fimmtugt; hann lét
sem hann sæi ekki Loomis, sem
móðgaðist, og ávarpaði Craig ó
máli, sem Loomis skildi ekki bofs í.
Craig svaraði á sama máli. Cand-
lish hellti rommi úr miðalausri
flösku í þrjú glös.
— Vantar þig stúlku? spurði
hann Loomis og Loomis urraði til
svars. — Hefurðu mynd?
— Þú færð mynd í kvöld, sagði
Loomis.
— Arabisk. Ekki margir Arabar
hér um slóðir. Ekki eins og heima.
Hann blikkaði Craig. — Við skulum
samt sjá hvað við getum gert. Ég
skal spyrjast fyrir. Setja strákana f
það. Við höfum ýmislegt fyrir stafni
hér við ána.
— Það þykist ég vita, sagði
Loomis og leit á miðalausu flösk-
una.
— Ég er frjáls verzlunarmaður,
sagði Candlish. — Ég hef qlltaf verið
það. Ég hef kosið frjálslynda alla
mína ævi.
Craig skrifaði sfmanúmer á pappfrs-
snepil.
24 VIKAN 2-tbl-