Vikan


Vikan - 12.01.1967, Side 37

Vikan - 12.01.1967, Side 37
— Clarence, þetta er frú Hodge, hún býr í númer fimmtán A. — Komið þér sælar, frú, sagði Clarence. Annað sagði hann ekki. — Ég vona að þér kunnið vel við yður hér, sagði hún. — Prýðilega frú. Margaret steig inn í lyftuna og sagði: — Þakka yður kærlega, herra Trevor. — Það var ekkert, sagði fram- kvæmdastjórinn. — Þér eruð viss um að ég þurfi ekki að hjálpa til með bílinn? — Þér gætuð kannski litið eftir því hvernig Carli gengur, hann á það til að vera svolítið gleyminn. Herra Trevor hló. — Ég vona bara að ég verði jafn sprækur á hans aldri. Ég skal líta eftir þessu, frú Hodge. — Þakka yður fyrir, sagði Mar- garet. Clarence tokaði hurðinni og vtti á hnappinn. Það var ekki fyrr en Margaret var komin alla leiðina upp og búin að stinga lyklinum í skrána að hún fann fyrir því að hún hafði búizt við einhverjum spurningum alla leiðina upp. Þegar hún var komin inn ( íbúðina, hallaði hún sér upp að lokuðum dyrunum, og slappaði af í nokkrar mínútur. Margaret varð vör við einhverja nýja hrælðslu. Hversvegna hafði maðurinn ekki sagt neitt? — Hlustaðu nú á mig stúlka min, sagði Margaret við sjálfa sig. — Nú tekur þú þessu skynsamlega, heyrirðu það? Hún heyrði til sjálfrar sín, og fór fram í eldhús og hitaði sér kaffi og hellti því í bolla. Þegar hún var búin úr kaffibollanum, var Charlie kom- inn upp með allt dótið úr bílnum og það hafði ofan af fyrir henni ( tuttugu mínútur í viðbót. Eftir að hún var búin að stafla öllu snyrti- lega upp, þar sem það átti að bíða eftir því að Mavis, þjónustustúlkan, kæmi heim úr fríinu á morgun, fékk Margaret sér annan kaffibolla, tók hann með sér inn í dagstofuna, settist niður og fór að hugsa um þessa hrollvekju. Víst var þetta hrollvekja og henni létti stórum við að kalla það því nafni. Þarna sem hún sat, ein í daq- stofunni, með kaffibollann f hönd- unum, varð Margaret Hodge það Ijóst að hún hafði glutrað gæfunni úr höndum sér. Þetta kom auðvitað eins og taugaáfall yfir hana, en hún var stolt af þeirri staðreynd að hún skvetti ekki einu sinni úr bollanum, þegar þetta rann upp fyrir henni. Hún vissi að það eina sem hún gat unnið eitthvað á, það var að vera nógu róleg, og hún var orðin róleg, þegar hún setti frá sér bollann og lokaði augunum. Fyrsta skrefið til að horfast í augu við þetta ástand, yfirleitt við hvaða vandræði sem voru, var að gera sér grein fyrir því, hvenær það byrjaði, og varð að hrollvekju. Margaret kallaði strax fram í huga sínum það augnablik, þegar Clarence hafði sagt: — Vegna þess að herra Hodge kom inn með frú Hodge á föstudagskvöldið og kynnti mig fyrir henni, rétt áður en ég fór af vaktinni . . . Um leið og nýi lyftumaðurinn sagði þetta, hafði Margaret horft á úrið sitt. Það var nákvæmlega 1.38, þennan bjarta dag, þriðja mánu- daginn í september, á þvi augna- bliki rann hamingja hennar út í sandinn. — Það er nú það, sagði Margaret upphátt, og það var eins og að það verkaði róandi á hana og hún varð fær um að hugsa rökrétt. Nú kom það sér vel fyrir hana að hún var vönust því að hugsa og framkvæma, bæð' fyrir sjálfa sig og aðra. Allt sitt líf hafði Margaret Turner Hodge verið vel sett í lífinu, og það hafði kannski gert hana eitthvað frábrugðna öðru fólki, líklega flestu fólki. Nú fann hún að hún hafði orðið fyrir lífsreynslu, sem margir höfðu orðið að þola og brugðizt misjafnlega við, jafnvel margir af nánum kunningjum hennar höfðu orðið fyrir einhverju svipuðu. Sumir höfðu brugðizt við þessu með reiði og ásökunum og að lokum lentu öll vandræðin í höndunum á lögfræð- ingum. Margaret hafði alltaf fund- izt að þessir kunningjar hennar hefðu hagað sér óskynsamlega, nú, þegar hún var sjálf í þeirra spor- um, var hún viss um að þeir höfðu farið óviturlega að. Það var vissulega satt að það var betra að hafa hamingjuna með sér en móti, en þegar það var ekki hægt var líka sjálfsagt að gera það bezta út úr lífinu. Þeir kunningjar hennar sem höfðu leyst upp hjóna- bönd sín, og jafnvel gift sig aftur, lifðu engu lífi, þeir sáu alltaf eftir því að hafa gengið þessi skref. Fyrsta skrefið ( þessu nýja, ham- ingjusnauða lífi hennar, var auð- vitað dálítið neikvætt; hún varð að fyrirbyggja að Bernard kæmist að því sem skeð hafði. Margaret gekk að símanum og hringdi á skrifstofuna til eligin- manns síns. Eftir að hafa hlustað á fleiri skiptiborðs- og skrifstofustúlk- ur, fékk hún loksins samband við Bernard. — Bernard! — Ó, halló elskan, er allt ( lagi? Kuldalegt svar var komið fram á varir hennar, en Margaret lét það ekki eftir sér. — Já, það er allt í lagi, sagði hún. — Sumarhúsið er hreint og lokað og læst fyrir veturinn. Dótið er allt komið hingað upp og það eina sem ég hef áhyggjur af í augnablikinu, er hvað ég á að hafa ( matinn. Þú getur valið á milli hvort ég á að búa til einhverja steik sjálf, eða hvort við eigum að skreppa hérna út á hornið og fá okkur eitt- hvað að borða á Clareton. Það er auðvitað ekki gott, en það er ná- lægt. Hvort viltu heldur? Það var andartaksþögn, svo sagði Bernard: — Hvorugt, ég ætla að bjóða þér f stórkostlegan kvöld- verð, á einhverjum rándýrum stað. Þú hefur sannarlega unnið fyrir þvi. Margaret, sem fannst líka hún hefði unnið fyrir ýmsum hlunn.ind- um, var ekki tilbúin að mæta þeim, hún þurfti að hugsa vandamál sín betur. Þangað til hún væri á ein- hvern hátt búin að leysa þetta vandamál, varð Bernard að sjá um sig. — Það var fallegt af þér að bjóða mér út, en ég er þreyttari en ég hélt, svo ég held við verðum að haida okkur við heimasteik, ef þér er sama. — Eins og þú vllt, sagði Bernard. Hann hefði ekki svarað þannig áð- ur. Bernard var mikið fyrir góðan mat. En Margaret var það Ijóst að í náinni framtíð myndi Bernard haga sér eitthvað öðruvisi en venju- lega. Það væri ekkert ólíklegt að hann væri að hugleiða, hvað hefði komið honum til að haga sér á þennan hátt. Margaret vissi það, Mollý Parson hafði sagt henni það. Fyrir sex árum hafði hún setið andspænis Mollý Parson, yfir há- degisverði, rétt áður en Mollý flaug til Renó, til að fá skilnað frá Dick. — Að sumu leyti er þetta skiljan- legt, sagði Mollý, — hjónabandið getur orðið að vana, jafnvel fyrlr þeim, sem í eðli sínu eru heiðar- legir, eins og Dick. En drottinn minn, hve ég hata þessa skepnu, fyrir það sem hann gerði mér. Alla vega var hann heiðarlegur, þangað til ég komst að þessu kvennastandi hans. — En þú veizt ekki um allar þess- 2. tbi. VIKAN 37 ALLT Á SAMA STAÐ BÍLL ÁRSINS! 1967 HIILMAN - HIINTBR STÖRGLÆSILEGUR, VANDAÐUR OG SPARNEYTINN FJÖLSKYLDUBÍLL. BIFREIÐAKAUPENDURI Hillman Hunter sameinar það tvennt sem flestir bifreiðakaupendur leita að í dag, en það er vandaður en jafnframt ódýr fjölskyIdubíll. Verð kr. 218.800,00. KOMIÐ, SKOÐIÐ OG KYNNIÐ YÐUR GREIÐSLUSKILMÁLA. EGILL VILHIÁLMSSON H F LAUGAVEG 118 - SÍMI 2-22-40.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.