Vikan


Vikan - 28.08.1969, Blaðsíða 32

Vikan - 28.08.1969, Blaðsíða 32
 STJÖRNUSPÁ # % •- Hrútsmerkið (21. marz — 20. apr(l): Eldri kona leitar aðstoðar þinnar í sambandi við áhugamál sitt. t>ú ert nokkuð vel á vegi staddur, en slepptu samt engu tækifæri til að bæta þig. Þér berast óvænt tíðindi. 0 Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú dvelur um tíma í ókunnu umhverfi, sem veitir þér mikla ánægju. Eignir þínar krefjast mikils við- haldskostnaðar. Stúlka sem þú hefur nokkurt sam- band við kemur þér á óvart með hæfileikum sínum. m Nautsmerkið (21. aprll — 21. maí): í sambandi við undirbúning verks, sem þú vinnur nú að, hleypur á snærið fyrir þér. Maður sem þú glöggvar þig ekki vel á hefur hom í síðu þinni, að því er virðist. Haltu þig í hæfilegri fjarlægð. ¥ Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú hefur í hyggju að breyta tii og er það timabært fyrir löngu. Hvað sem þú leggur á þig £ vissu til- liti er því miður vonlaust, en þú átt margra kosta völ, ef þú vilt snúa þér að öðru. Tvíburamerkið (22. mo( — 21. jún(): Næstu dagar verða erilsamir og þreytandi. Gamall skólafélagi, sem þú hittir af tilviljun, verður til að stytta þér stundir. Líkur benda til að þú verðir að sitja löng fundarhöld. ¥ Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þrátt fyrir rólegt líf hefurðu ekki haft hemil á geðsmunum þínum sem skyldi. Kunningjar þínir sem hafa orðið fyrir móðgunum frá þinni hendi leita ekki til þín að fyrra bragði. Krabbamerkið (22. jún( — 23. júlí): Þú verður að taka á þig skyldur félaga þins sem hefur reynzt heldur útsláttarsamur. Eitthvert kvöld vikunnar færðu ómótstæðilega löngun til að reyna hluti sem þú hefur ekkert haft af að segja fyrr. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú umgengst viökvæma persónu, sem setur þig hvað eftir annað 1 vanda. Þú verður vitni að orða- sennu sem kemur þér í talsvert uppnám. Þú hefur gest í nokkra daga, er hressir mikið upp á þig. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst): Menn sem hafa yfir þér að segja fylgjast mjög vel með vinnubrögðum þinum. Þér er nauðsynlegt að gæta tungu þinnar betur og fara með leyndarmál sem leyndarmál. Hafnaðu ekki kvöldboði. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú endurnýjar kunningsskap þinn við fólk, sem þú hefur ekki lengi haft samband við vegna fjarlægð- ar. Maður nokkur vill fá þig sem hluthafa í vafa- sömu fyrirtæki. Heillataia fjórir. Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september): Kunningjar þínir og félagsbræður hafa skemmtileg- ar áætlanir sem koma til að skipta þig nokkru máli. Vertu varkár í fjármálum og taktu engar stórar ákvarðanir þar að lútandi. Líkur á hindrimum. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Forðastu að vera eins tilætlunarsamur og undan- farið. Persóna, undir þinni stjórn nýtur sín ekki af þeim sökum. Þú hefur miklu meiri frítíma en 1 síðustu viku og nýtur þeirra til fulls.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.