Vikan


Vikan - 28.08.1969, Blaðsíða 14

Vikan - 28.08.1969, Blaðsíða 14
sápu og vatn. Hann læknaði menn aí' sjúkdómum og þeg- ar einhverjir sýndu honum fjandskap, brosti hann við þeim og fór sínu fram. Xegrarnir voru alveg hlessa á þessum hvíta manni sem hjálpaði öllum, sem til hans komu en krafðist aldrei neins í staðinn. Ilann treysti þeim og ekki leið á löngu áður en ]jeir fóru að treysta honum. Hann gekk að eiga konu að nafni Mary og' var dóttir Moffats trúboða, þess hins sama og stofnsett hafði Kuru- man. Þau eignuðust fjögur börn, en síðan tekk hann hana ti! að flytjast til Bretlands með börnin. Könnunarleið- angrar voru nú orðnir hans megináhugamál, og í þá vildi hann ekki leggja nema að hann vissi fjölskylduna full- komlega örugga. Hann fór ekki hratt yfir, enda var Afríka álíka veglaus og Island um það leyti og eitt- hvað toríarnari. Stundum ók hann í vagni, sem uxuin var beitt fyrir, stundum fór hann eftir ám og vötnum í léttum eintrjáningum. Hann hafði tvær veiðibvssur til að afla sér og mönnum sínum vista og einnig til að geta varið leiðangurinn, ef i harðbakka shegi. Hann hafði með sér kaffi, te, kex og sykur, tösku fulla af lyfjum, tvær aðrar töskur íullar með föt, sextant, tvo áttavita, tímamæli og tvo sjónauka, lógarytmatöflu og siglingaalmanak, til að geta reiknað út staðsetningu sína eins og sæfari. Líka flutti hann með sér dagbók sína, sem var átta hundruð blaðsíður. Á hverju kvöldi skrásetti liann í hana athuganir sínar og enn i dag er hún varðveitt sem minnis- merki lífsstarfs hans. Dag- bókina, kortin, bréf öll og verðmætari tæki geymdi hann í vatnsþéttu málmskríni, til að hvítmaurarnir ætu þetta ekki upp. Þessar gráðugu skepnur eru ein af mörgum plágum álfunnar, og sagt hef- ur verið að hefði Afríka verið gerð úr tré, hefðu maur- ar þessir fyrir löngu étið hana upp til agna. Livingstone hafði líka með sér vöndla af bómullardúk- um og glerperlum til að gefa negrunum og ávinna sér þannig hylli þeirra. Fyrst í David Livingstone. Fyrir hans daga var Afríkukortið að mestu hvítur flekkur frá Sahara til Kalaliarí. Brotnu línurnar á kortinu sýna leið- ir Livingstones um Afríku. stað ofbauð honum stundum hve ferðin gekk hægt og hve gífurlegar fjarlægðirnar voru. En fljótlega vandi liann sig á að taka þessu eins og negr- arnir, gleyma því einfaldlega að til væri nokkuð sem héti tími. Ein meginástæðan til að hann lagði út í þetta var um- hyggja fyrir kristniboðinu, eins og að líkum lætíir. Hann sannfærðist fljótlega um að til lítils væri að skíra sem allraflesta negra og skilja þá svo eftir án trúarlegs eftirlits í þorpunum þar sem þeir fljót- lega á nýjan leik hneigðust að öndum og djöflum forfeðr- anna. Til þess að kristnin festi rætur í þessu ólíklega um- hverfi þurfti að stofnsetja sem flestar trúboðsstöðvar og mennta innfædda til að vinna áfram að trúboðinu. Hann byrjaði að hrinda þessu í framkvæmd með þ\’í að stofna trúboðsstöð við Ma- botsa-fljót, tvö hundruð míl- ur norðaustur af Kuruman. Skömmu eftir komu lians þangað réðist á hann ljón og braut vinstri handlegg hans. Handleggurinn greri illa og var honum aldrei jafngóður. Engu að síður hélt hann ó- trauður áfram verki sínu og stofnsetti fleiri kristniboðs- stöðvar lengra norður frá. Á einum staðnum urðu vin- sældir lians slíkar að þegar 14 VIKAN »•

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.