Vikan


Vikan - 28.08.1969, Blaðsíða 6

Vikan - 28.08.1969, Blaðsíða 6
Minnimáttarkennd Sæll, kæri Póstur! Þakka þér og Vikunni fyrir allt gamalt og gott. Mig langar til að biðja þig að hjálpa mér í sambandi við vandamál sem ég á við að stríða. Ég er frekar fullorðinsleg, og allir halda að ég sé 3—4 árum eldri en ég í rauninni er. En aðalvandamálið er, að þegar ég skrepp t. d. út í búð eða sjoppu, og einhverjar stelpur á mínu reki eru þar fyr- ir, þá taka þær alltaf (yfirleitt) til við að setja út á mig og stríða mér. Mér þykir þetta að vonum ákaflega leiðinlegt, og nú er svo komið, að ég hef fengið mikla minnimáttarkennd. Eg er með sítt, ljóst og þykkt hár, og finnst ég megi vera grennri. Þó ég segi sjálf frá, þá er ég ekki ófríð. Ég á enga vini né vinkonur, og þess vegna leið- ist mér þetta allt saman og lífið yfirleitt. Mig langar til að biðja þig, elsku Póstur, að hjálpa mér við að ráða fram úr þessu vanda- máli. Ein 13 ára. Málið er grafalvarlegt. En ég sé enga ástæðu fyrir þig að hafa minnimáttarkcnnd, þótt þú lítir út fyrir að vera eitthvað eldri en þú í rauninni ert. Sumir væru því sárfegnir. Því vil ég ráð- leggja þér það eitt að láta sem þú heyrir ekki þegar þessar van- þroska jafnöldrur þínar eru að stríða þér. En þú verður að hjálpa til: Náðu af þér þessum fáu pundum, sem þér finnst of- aukið, brostu og vertu einlæg og vingjamleg. Þá eignast þú nóg af félögum og vinum — góðum vinum. Lengi býr að fyrstu gerð Pósturinn, Vikunni. E'g á litla dóttur, sem er mjög kelin, og ég er varla fyrr kom- inn heim á kvöldin en hún klifr- ar upp í fangið á mér og hjúfrar sig þar. Eg hef alltaf áltið þetta eðlilegt og sjálfsagt og látið vel að henni í staðinn, en kunningja- fólk okkar, sem var heima hjá okkur eitt kvöldið, segir að ég geri stelpunni minni óleik með þessu. Þau segja, að stúlkubörn sem keli of mikið við feður sína, þegar þau séu lítil, leiti mjög eftir líkamlegri snertingu þegar þau verða stærri, og verði þar með lauslátar. Er þetta rétt? Með fyrirfram þökk fyrir svarið. B. D. Samkvæmt uppeldisbókum okk- ar er þessu alls ekki svo varið. Að vísu verður ekkert ráðið af bréfinu um aldirr litlu dóttur þinnar, en sé hún innan 10 ára, hefur hún einmitt mjög gott af foreldraástúð í flestum mynd- um. Talið er, að konur verði miklu fremur vergjamar af þeirri ástæðu, að þær hafi skort ástúð og umhyggju í bernsku, sem komi svo út í eilífri, ófull- nægðri Ieit að uppbót á það ást- arsvelt. Sumir telja, að stúlkur sem nutu góðrar föðurástar á barnsárunum velji einmitt maka sína af mikilli kostgæfni og eigi þess utan auðveldar með að samlagst þeim og aðstæðum sín- um yfirleitt á fullorðinsámnum og verði allajafna hamingju- samari. Lengi býr að fyrstu gerð. Að snæða eða snæða ekki Kæra Vika! Ég er ekki aldinn að árum, en hef undanfarin tvö ár dvalið mikið erlendis. Þar hef ég auð- vitað átt mínar vinkonur, og einu sinni lenti ég í dálitlum vandræðum, sem ég er ekki viss um, að ég hafi ráðið fram úr af fyllstu kurteisi. Nú langar mig til að leita álits hjá þér um þetta mál. Sagan er svona: Ég bauð ungri gullfallegri stúlku út að borða, og hún pant- aði nautasteik, miðlungs steikta (medium). Ég pantaði hins veg- ar humar í sósu. Þegar matur- inn kom, reyndist steikin „rare“ í meira lagi, það er mjög blóð- steikt. Það var farið með hana fram aftur, og nú kemur spurn- ingin? Hvað átti ég að gera við humarinn? Gófla hann í mig, meðan stúlkan hafði ekkert nema glasið sitt, eða láta hann verða kaldan og fráhrindandi? Þakka svo fyrir svarið, ef það verður vit í því. Vassi. 56 LÍTRA OFN MEÐ UÓSI, yfir- og undirhlta stýrt með hita- stilli. Sérstakt glóðarsteikar- element (grill). Klukka með Timer. 6 VIKAN 35. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.