Vikan


Vikan - 28.08.1969, Blaðsíða 47

Vikan - 28.08.1969, Blaðsíða 47
hverri nóttu við hljóðfæraleik og svo átti ég við persónuleg vanda- mál að etja út úr öllu þessu. — Þá hætti ég í skólanum, missti íbúðina og skildi við konuna, en sneri mér að hljóðfæraleiknum af fullum krafti. í rauninni sá ég ekki neina framtíð í læknisfræðinni; maður veit aldrei hvernig þetta fer, og þegar maður þarf að vinna fyr- ir sér sjálfur, þá er þetta ekkert grín. Nú spila ég eingöngu og l(k- ar vel. Hitt er annað mál, að það er alls ekki meiningin að gera það að framtíðarstarfi. Þegar maður er algjörlega ómenntaður í músik, getur maður ekki lifað á því. Ég get ekki einu sinni lesið nótur svo að gagni komi. Þar að auki stangast þessi vinna oft á við heimilislífið. Ég var gift- ur áður, hún vann á daginn og ég á kvöldin, þannig að við rétt sá- umst. Auðvitað endaði það með því að við fengum okkur lögfræð- ing og slitum samvistum. Þetta var ekkert heimilislíf. En nú gengur mér betur: Við erum bæði heima á daginn, svo þetta er allt í lagi." Kona Vilhjálms er Kristrún Kirry Halldórsdóttir, úr Reykjavík. Kirry mun vera hebreska og þýða ann- aðhvort sólarupprás eða sólsetur — nema hvorttveggja sé. Móðir Krist- rúnar var kölluð Kirry sem barn, og þaðan er nafnið upprunnið. „Jú, við kynntumst á Röðli," viðurkennir Vilhjálmur. „Og svo giftum við okkur í marz síðast- liðnum." Jú, það er erfitt að standa á sviðinu 5—6 kvöld í viku," heldur hann áfram, „og æfa svo á dag- inn. En sem betur fer er fólk farið að gera sér grein fyrir því, að þetta er ekki leikur eintómur. Svo kom- ast á kreik alls konar kjaftasögur um mann, en það venst. i þessum „bransa" er aldrei talað vel um mann. Enda er betra að illa sé tal- að um mann en alls ekkert. Því verr sem talað er um mann, því hærra er maður skrifaður. En þetta er bara svo skemmtilegt, að maður sættir sig við allt svona blaður. Svo lengi sem maður hefur hreina sam- vizku sjálfur, þá er allt í lagi. — Þegar ég var smá-patti, var ég ákveðinn í að verða prófessor. Og eins og fram hefur komið, þá stefndi ég að því lengi vel. En ég man líka eftir því, að þegar Ellý (Vilhjálms) systir byrjaði að syngja, ákvað ég að einhvern góðan veð- urdag skyldi ég syngja líka. Nú geri ég það, þótt ég eigi reyndar örlítið bágt með að skilja það sjálf- ur. — Það er ákaflega mikils virði að syngja — og syngja vel. Ég fæ útrás í því, og ég get sungið mig í svo gott sem hvaða skap sem er. — Já, ég veit að ég hef þá ímynd í augum almennings, að ég sé fyrst og fremst söngvari fyrir frúr á fertugs- og fimmtugsaldri. Mér finnst það allt í lagi, en nú er ég að reyna að ná til unga fólks- ins. Mér finnst ég verða að ná til þess líka, þar sem það er, jú, nær mér. Ég hef aldrei haft nógu gott tækifæri til að komast í samband við unglingana, en nú, meðan ég leik í Glaumbæ, er það gullið tækifæri til þess. — Að vísu verð ég þar aðeins fram í lok ágúst, en þá fer ég með hljómsveit Ólafs Gauks til Þýzka- lands og verð þar í tvo mánuði. Hljómsveitin er ráðin til að skemmta í Hannover þennan tíma, svo ég ætla að leita fyrir mér á meðan, hvort ég get ekki komizt að hjá einhverju flugfélagi." Aður en lengra er haldið, er eins gott að geta þess, að Vilhjálm- ur hefir lokið atvinnuflugmanns- prófi, og á lokaprófi í siglinga- fræði í vor hlaut hann 92,8%, sem var um leið hæsta einkunn það ár- ið. [ verðlaun hlaut hann bók, árit- aða af kennurunum. „Ég var eitt ár að læra að fljúga," segir Vilhjálmur. „Mér fannst betra að Ijúka þessu svona í hvelli, í staðinn fyrir að vera að eltast við þetta í mörg ár og klára kannske aldrei. Jú, auðvitað var þetta rán- dýrt, en ég vonast til að geta unn- ið það upp fljótlega með flugi. Hér heima er ekkert að gera fyrir flugmenn, og þess vegna ætla ég að leita fyrir mér í Þýzkalandi. Það var Ómar Ragnarsson sem smitaði mig af flugbakteríunni. Hann bauð mér f flugferð fyrir tveimur árum, og þar með var ég orðinn ólæknandi. Omar er stór- skemmtilegur, eins og reyndar flest það fólk, sem er í þessum „bransa". — Jú, það kemur alltaf eitthvað skemmtilegt fyrir. Einu sinni fór til dæmis hljómsveitin (Magnúsar Ingi- marssonar) til Siglufjarðar og spil- BÍLALÖKK | ■*«.u.s.fAT.o#r.. grunnfyllir, spartl, þynnir, 1 slípimassi, vinyllakk, málmhreinsiefni, álgrunnur7 1 silieone hreinsiefni OOÍ&BSl 1 aði þar á stóru móti. Þura (Þuríður Sigurðardóttir) var veik, svo við fengum Svanhildi Jakobs með okk- ur í staðinn. Nú, þegar ballið er búið, þá förum við Svanhildur út að ganga, og ætlum að skoða bæ- inn aðeins. En þá gerði svoddan hellidembu, að við forðuðum okk- ur inn í húsasund. Þá sjáum við hvar kemur slag- andi einn heilagleikinn, á jakkan- um, svo augafullur, að lá við að hann væri gegnsósa — bæði af rigningunni og ölinu. „Blessaður stattu ekki þarna úti f rigningunni," kallaði ég til hans, „þú verður rennblautur." „Vinur minn," svaraði hann, og dró lengi á i-inu, „hér rignir drott- ins náð. Við í minni stétt fáum ekki of mikið af náðinni, svo ég ætla bara að standa hér!" — Annars finnst mér lang- skemmtilegast að syngja inn á plöt- ur, og þá sérstaklega plötuna með Ellý systur. Ég held, að það sé eitt það al-skemmtilegasta, sem ég hef nokkru sinni gert. Fyrst eftir að ég fór að heyra f sjálfum mér í útvarpinu og þar fram eftir götunum, fór það geysi- lega í taugarnar á mér. Nú sætti ég mig við það — en er alltaf að gagn- rýna sjálfan mig. Mér finnst alltaf að ég hefði nú getað gert betur þarna og ennþá betur hécna." —o— Sú skoðun hefur lengi verið út- breidd, að hljóðfæraleikarar og yf- irleitt allir þeir sem koma eitthvað nálægt skemmtiiðnaðinum, séu heldur illa að sér f flestu öðru en því sem viðkemur þeirra starfi. Sem betur fer hefur orðið nokkur hugarfarsbreyting í þessum efnum, enda sjá allir heilvita menn hve fáránleg þessi skoðun er. Eða eins og einn skemmtikraftur söng í vet- ur: ,, . . . Við erum venjulegir menn " Sú er allavega mín persónulega skoðun eftir að hafa rabbað við söngvarann, hljóðfæraleikarann, heimspekinginn, dávaldinn, flug- manninn og heimiiisföðurinn Vil- hjálm Vilhjálmsson, fyrrverandi stud. jur. og med. Hann er ákveð- inn ög sjálfsöruggur ungur maður, — á uppleið. ó. vald. 35. tbi. yiKAN 47

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.