Vikan - 12.07.1984, Síða 34
Draumar
Fyrst reykur,
síðan eldur
Kæn draumráðandi!
Fyrir stuttu sendi ég þér bréf
þar sem ég fór fram á ráðningu
tveggja drauma. En nóttina eftir
að ég setti bréfið i póst dreymdi
mig einn draum enn, sem mér
fannst vera í beinu frambaldi af
hinum tveimur, svo að ég ákvað
að senda hann líka í von um
ráðningu. Draumurinn var á
þessa leið:
Mér fannst ég vera á Borgar-
spítalanum og það átti að fara að
skera mig upp við gallsteinum.
En ég var fljótlega send á spítal-
ann í Keflavík vegna þess að það
átti frekar að skera mig upp í
nýrum. Þar ligg ég á mjög fjöl-
mennri stofu og verður mér star-
sýnt á ungan dreng íncesta rúmi.
Er þessi drengur mikið veikur og
hann heitir Eiríkur. Fannst mér
þá allt í einu koma mikill reykur
undan dýnunni í rúmi drengs-
ins. Eg kalla á hjúkrunarkonu en
rétt áður en hún kemur sé ég að
reykurínn hefur breyst í eld. Eg
stökk fram úr og þreif drenginn
(Eirík) til mín og flúði út á svalir
sem voru þarna. Á meðan
stekkur hjúkrunarkonan á eldinn
en ég furða mig mikið á því hvað
drengurinn er léttur. Svo varþað
alveg búið og ég komin aftur
upp í rúm. Kemur þá til mín
hjúkrunarkona og segir aðþað sé
ekkert að mér og ég megifara.
Þegar ég er að ganga út af
spítalanum kemur til mín maður
(mjög myndarlegur, en aldrei
séð hann fyrr) og þrífur í hönd
mína. Um leið segir hann:
LOKSINS fann ég þig! Dregur
hann migá eftir sér inn í hús sem
minnir mig á hesthús í villta
vestrínu, hampur á gólfinu og
miklir og sterklegir bjálkar í
loftinu. Er, þar stigi einn mikill
og má segja að hann hafi skipst i
þrjá parta. Dregur þessi maður
mig á eftir sér uþþ allan stigann
(hann var mjög hár) og þar efst
uppi átti íbúðin okkar að vera.
En augnaráð mannsins var svo
skrítið, það var eins og hann
forðaðist að horfast í augu við
mig, hafði svo reikult augnaráð.
Einhvern veginn leið mér ekki
vel þarna uppi svo að í eitt skipti
labbaði ég niður, samt ekki alveg
niður heldur niður tvo hluta
stigans og settist þar hugsi.
Opnast þá hurðin og inn kemur
hjúkrunarkona. Er hún klœdd í
hjúkrunarbúning frá því í gamla
daga, með kamb á höfðinu og
bláa svuntu. Kemur hún alveg
til mín en stendur samt einhvern
veginn neðst við stigann. Hún
segir við mig að ég verði að koma
með henni vegna þess að það
hafði gleymst að taka úr mér
botnlangann. A meðan hún
segir þetta og horfir á mig grípur
mig áköf hræðsla því ég vildi
ekkifara með henni en vissi ekki
hvernig ég ætti að komast hjá
því. Kemur þá allt í einu maður-
inn hlaupandi niður, grípur mig
í fangið og hleypur með mig upp
stigann. Og núna í þetta skiptið
eraugnaráð hans fast og ákveðið.
Var draumurinn ekki lengri. Mig
langar einnig til þess að sþyrja
þig einnar spurningar: Hvaðgeta
draumar eða m.ö.o. ráðning
draums tekið langan tíma að
koma fram?
Með fyrirfram þökk fyrir
ráðninguna.
Ein berdreymin.
Þar sem þú getur ekki um efni
fyrri draumanna á draumráðandi
erfitt með að fullyrða hvort þessi
er í einhverju samhengi við þá
hvað ráðningu snertir. Þessi
draumur bendir til þess að fjár-
hagsstaða þín batni að mun,
jafnvel svo að um happdrættis-
vinning geti verið að ræða. Að
minnsta kosti fer fjárhagurinn
hraðbatnandi og að einhverju
leyti á mjög óvæntan máta. Hins
vegar er líklegt að því fylgi öfund
og illdeilur en þar verður þitt
hlutverk að reyna að halda
stillingunni.
Slæmur félagsskapur getur átt
sinn þátt í að draga þig niður á
við, ef þú gætir þín ekki, og
mundu að fara varlega með
skjótan gróða. Ef þér tekst að
þróa með þér meiri viljastyrk og
einbeitni er líklegt að fram und-
an séu hreint alveg ótrúlega
góðir tímar.
Ráðning draums getur verið
býsna lengi að koma fram og eru
draumarnir í eðli sínu misjafnir
hvað það snertir. Stundum er
augljóst að um skammtíma-
drauma er að ræða en oft eru
draumar einnig fyrir margra ára
þróun, jafnvel æviskeiði. Oftast
er þó augljóst hvort er á ferðinni
hverju sinni.
Að geta ekki
gengið, hlaupið
eða talað
Kæri draumráðandi!
Mig langar mjög til að fá
ráðningu á eftirfarandi
draumi. Eg var að fara í bíó
með systur minni sem við getum
kallað H. Myndin sem við
ætluðum að sjá var Atómstöðin.
Það var fullt affólki í biðröð eftir
að komast í salinn. Allt i einu
fannst mér ég vera við hliðina á
X og ég fór alveg í kerfi og fór
burtu án þess að segja neitt. X er
bekkjarbróðir minn. Þama í
þvögunni sá ég síðan fleiri
bekkjarsystkini sem heita.en
mér fannst X langmest áberandi.
Allt i einu sá ég inn í mjög
stóran sal á tveimur hæðum og
ég ætlaði upp á þá efri. Til þess
þurfii ég að fara uþþ stiga sem
var mjög breiður og með bláu
gólfteppi og dökku, mjög
vönduðu handriði. Skyndilega
fannst mér við H vera einar i
stiganum en allt hitt fólkið var
komið í salinn. Sætin í btó-
salnum sneru öll i átt að
stiganum og allt fólkið glápti á
okkur H. En ég sá samt aldrei
myndina eða tjaldið i
draumnum.
Mér leið mjög illa og allt í
einu varð ég mjög máttlaus og
gat ekki gengið og varla hreyft
mig neitt en hékk bara á hand-
riðinu. Þá kom H niður til mín,
tók i höndina á mér og dró mig
upp. Þá fór ég að pæla i hvort
krakkamir sem ég nefndi,
sérstaklega X, væru að horfa á
okkur. Mér fannst það mjög
óþægileg tilhugsun.
Síðan fannst mér ég vera
komin upp og það var rökkur í
salnum. Þá sá ég hvar vinkona
mín, Z, sat um það bil fyrir
miðjum sal, i einu af ystu
sætunum. Hún sneri baki í mig
eins og allir aðrir i salnum, sætin
sneru þannig. Eg ætlaði að
setjast hjá henni og gekk af stað
en var mjög óstyrk á fótunum og
slagaði milli veggjarins og ystu
sætanna, en komst þó til Z að
lokum. Þá vorum við mjög
glaðar yfir því að hittast. Síðan
man ég ekki meira úr
draumnum.
Að lokum vil ég geta þess að
í draumi get ég oft ekki gengið
eða hlaupið og stundum ekki
talað eða hrópað, sérstaklega ef
mér finnst ég vera að flýja undan
einhverju eða kalla á hjálp. Hvað
merkir það?
Með þökk fyrir birtinguna ef
þetta verður birt.
Bæjó,
14 ára.
Að geta ekki hreyft sig í
draumi og ekki kallað er oft talið
fyrirboði einhverra erfiðleika í
vökunni en einnig gæti þarna
verið um að ræða einhverjar
hömlur úr vökunni sem valda. í
flestum tilvikum, þegar um slíka
heftingu í draumi er að ræða,
virðist sem dreymandinn sé sér
að einhverju leyti meðvitandi
um að hann sé sofandi — að
minnsta kosti þegar þetta verður
aftur og aftur. Börn og unglingar
þekkja þetta vel og síðan vaxa
flestir frá þessu þannig að á full-
orðinsárum hverfur þessi tilfinn-
ing í draumi — hreyfingar verða
með eðlilegum hætti eða menn
gera sér jafnvel ekki grein fyrir
hvort um hreyfingu er að ræða
yfirleitt. Það rennir stoðum
undir að þarna geti verið á ferð-
inni einhvers konar bæling og
því varasamt að ráða slíka
drauma sem einhvers konar
tákndrauma. Slíkt er með öllu
marklaust. Hins vegar geturðu
reynt að einsetja þér að minnast
þess í draumnum að reyna að
ganga hægt í stað þess að hlaupa
og tala fremur en kalla. Þetta
auðveldar þér að losna við til-
finninguna, veldur minni
áreynslu og flýtir fyrir að slíkar
hálfmartraðir heyri fortíðinni til.
34 Vikan 28. tbl.