Vikan - 12.07.1984, Page 38
15 Slúöur
Natassia Kinski
upplýsir hver faðirinn er!
Natassia Kinski í Cannes. Við hlið hennar stóð
Ibrahim Moussa og þar með var leyndardómurinn
afhjúpaður.
Þýska leikkonan Natassia Kinski hefur ver-
ið ákaflega vinsæll fjölmiölamatur frá því
hún kom á sjónarsviðið fyrst, 15 ára gömul.
Þá var sagt að hún hefði verið í'tygjum við
leikstjórann sinn, Roman Polanski, og reyndi
hún aldrei að neita því.
Síðan hefur hún gert garðinn frægan í kvik-
myndum eins og Cat People og Moon in the
Gutter, þó ekki hafi allir verið á sama máli
um leikhæfileika leikkonunnar.
Á dögunum komst hún svo enn á síður blað-
anna er uppgötvaðist að hún væri ófrísk og
neitaði að segja hver barnsfaðirinn væri!
Þótti þetta hið dularfyllsta mál og jafnvel vin-
ir hennar treystu sér ekki til að geta upp á
hver hann væri. Natassia kom því öllum á
óvart er hún mætti með manninn upp á arm-
inn við verðlaunaafhendinguna í Cannes á
>
Natassia Kinski hefur haldið því leyndu hver barns-
faðir hennar er.
dögunum. Hinn heppni er Ibrahim Moussa,
kvikmyndaframleiðandi frá Egyptalandi, 42
ára að aldri.
Franska söngkonan Mireille Mathieu
giftir sig — en segir ekki hverjum!
Mireille Mathieu ásamt systkinum sínum. Hún hefur verið ógift og barnlaus til
þessa.
Mireille með föður sínum og móður sem eru mjög stoh af sinni heimsfrægu dóttur.
Mireille Mathieu, 37 ára, er heimsþekkt frönsk söngkona, menn segja
að hún sé arftaki næturgalans Edith Piaff. Nýlega gafst íslenskum sjón-
varpsáhorfendum tækifæri til aö hlýða á söng hennar í þýskum sjón-
varpsþætti. En eins og svo oft áður fara ekki saman frægð og hamingja
og það hefur Mireille mátt sannreyna. Hún hefur ekki fundið þann eina
rétta til þessa, vinir hennar segja að hún hafi alltaf látið framann ganga
fyrir!
I fyrra var uppi sá orðrómur að hún og Patrick Duffy, sem leikur
Bobby í Dallas-þáttunum, væru að slá sér saman. Mireille svarar því til
að hún hafi heillast mjög af ameríska leikaranum en að hún hefði aldrei
látið sig dreyma um að eyðileggja hjónaband hans. Hún er kaþólsk og
lítur mjög alvarlegum augum á hjónabandið.
En nú hefur Mireille gefið út þá yfirlýsingu að hún ætli að gifta sig.
Hverjum veit enginn, það eina sem er vitað er að hann er Frakki og býr í
Mexíkó. Brúðkaupið á að fara fram í héraöinu Avignon en enginn veit
hvenær.
38 Vikan 28. tbl.