Vikan - 05.12.1985, Side 27
Peysa með slaufu
Prjónar: Nr. 4, 70 cm langur i bol og
ermar, 40 cm hringprjónn (nr. 4) i
ermar, nr. 3 1/2, 5 prjónar fremst á
ermar.
Efni: Þrjár 20 g hnotur af Anny
Blatt, 70% angóra og 30% ull (3 x 90
m). Niu S0 g hespur af Dorotheé
Bis, 100% viscose (9 x 90 m).
Bak + framstykki: Fitjiö
upp með Anny Blatt angóra
40 1. á prjóna nr. 4. Byrjað
er á baki og prjónað eftir
mynd, aukið er í um 11. sitt
hvorum megin, í 4. umf.
fyrst en svo 11. sitt hvorum
megin í 6. hverri umf., eftir
mynd, en þá er tekið úr
fyrir hálsmáli og síðan
prjónaðir renningarnir
niður sitt hvorum megin og
tekið úr á sama hátt og
aukið var í á bakstykki.
Hálsmál + hluti af
framstykki: Teknar eru upp
280 1. á prjóna nr. 4 og
prjónaðar 5 umf. með
viscosegarninu. Þá eru
prjónaðar 2 umf. brugðn-
ar með angóragarni, svo
aftur með viscosegarninu,
26 umf. Þá eru lykkjaðar
saman 751. + 75 1. = 150 aö
framan neðan frá. Þær sem
eru þá eftir, þ.e. 130 1., eru
felldar laust af og rúllast
þá upp á þær og hálsmál
myndast.
Ermar: Teknar eru upp 250
1. með viscosegarni jafnt á
allri hliðinni. Prjónuð 1
umf. í 2. umf. er aukið í um
20 1. á öxl, þannig að smá-
rykking myndist, 270 1. eru
þá á prjóninum yfir alla
hliðina. Prjónuð 41 umf.
slétt. Þá er stykkið lykkjað
saman á hliðunum, byrjað
neðst, 75 1. + 75 1. = 150 1.
Þá eru eftir á prjónunum
120 1. sem eru prjónaðar
áfram á hringprjón nr. 4
sem ermi.
tJrtaka: I 3. hverri
umferð eru teknar úr 2 1.
undir hönd, alls 30 sinnum,
þá eru 60 1. á prjóninum.
Skipt er yfir á 5 prjóna nr. 3
1/2 og teknar úr 10 1. jafnt
allan hringinn. Þá eru eftir
50 1. og er þá prjónuð 21
umf. án úrtöku og síðan
fellt af. Hin ermin er
prjónuð eins.
Frágangur: Peysan er
saumuð upp að neðan.
Slaufa: Fitjaðar eru upp 30
1. og prjónað á prjóna nr. 3
1/2 með angóragarninu,
u.þ.b. 40 umf. Hún er síðan
saumuð saman í miðjunni
Peysa nr. 2
með viscosegarni og
saumuð á peysuna undir
hálsmálinu.
Gangi ykkur vel
49. tbl. Vikan 27