Vikan - 10.03.1988, Side 48
— Það voru einmitt þau sem ráku okkur
út í þetta, sagði Friðrikka ástúðlega. Við
hefðum aldrei getað átt í því að skulda alls
staðar. Ó, Teddi — bollurnar!
Dagarnir liðu tilbreytingarlaust. Friðrikka
kvaldist af að sjá hvernig Teodór breyttist —
hlusta á hann skamma sig, vitandi að það var
aðeins af því að það kvaldi hann að sjá hana
alltaf dauðuppgefna.
En stundum hlógu þau — eins og til dæm-
is þegar þau jörðuðu deigið sem vildi ekki
lyfta sér og Teodór setti blóm á gröfina. Og
líka þegar þau fundu gömlu mylluna sem
búið var að breyta í íbúðarhús og var til
sölu. Þau gengu hrifin í kringum það og
Teodór hvíslaði:
— Þetta skulurn við einhverntíma kaupa!
Urn kvöldið, þegar Friðrikka sat á eldhús-
tröppunum og var að hugsa um gömlu
mylluna, þá heyrði hún í ritvélinni hans
Teodórs. Teodór var aíitur farinn að vinna
og var kátur og ánægður.
Teodór var að þurrka leirtau þegar frú
Saunders kom einu sinni frant í eldhúsið.
— Jæja, Bárður, sagði hún vingjarnlega, —
mér þykir alltaf gaman að sjá menn hjálpa
konum sínum. Við erum ánægð með ykkur
bæði. Hún þagnaði stundarkorn, síðan hélt
hún áfram: — Ég hef hér bók sem ég er ný-
búin að lesa. Mér datt í hug hvort þér hefð-
uð ekki gaman af að lesa hana. Hún er mjög
fróðleg. Við erum meðlimir fjögurra lestrar-
félaga, svo að þér getið fengið hvaða bók
sem þér viljið.
Þegar hún var farin fór Friðrikka að skelli-
hlæja.
— Teddi, þú varst svo hlægilegur þegar
hún fékk þér bókina.
Teodór eldroðnaði.
— Ég er hræddur um að ég kunni ekki að
meta þetta eilífa spaug þitt. Að maður skuli
þurfl að vera upp á svona fólk kominn!
— Þetta var svo hlægilegt! Friðrikka var
hnakkakert en varir hennar skulfu. — Teddi,
hvers vegna getur þér ekki þótt þetta hlægi-
legt? Þú veist hvað þetta fólk er fíkið í að
kynnast frægum mönnum. Við hlæjum að
því. Það er ekki fallegt...
Teodór sagði ekki eitt einasta orð á með-
an þau borðuðu og um kvöldið sat Friðrikka
ásamt Napóleon uppi á girðingu. En svo
kom Teodór og hvíslaði að Friðrikku:
- Við skulum ekki rífast!
Friðrikka þrýsti sér að honum og sagði:
— Sjáðu, Teddi, þarna er kvöldstjarnan —
manstu ... ?
En það var leiðinlegt hvað Teodór og
Friðrikka þurftu lítið til að fara að rífast og
það varð æ erfíðara að sættast aftur.
Og svo kom frænka frú Saunders í heirn-
sókn.
Það var seinni part dags. Friðrikka var úti
á vegi og beið eftir því að Teodór kæmi frá
stöðinni þegar bíllinn kom þjótandi og við
stýrið sat ung stúlka og við hliðina á henni
sat Teodór. Napóleon sat á miðjum vegin-
um og þvoði sér. Friðrikka hljóp æpandi að
honum en stúlkan beygði og nam staðar.
— Aumingja litla kisa — gerði ég þig
hrædda, sagði hún og stökk út úr bílnum
um leið og Friðrikka hafði tekið hana upp.
— Hún mundi aldrei láta bera á því þó að
hún væri hrædd, sagði Friðrikka hlæjandi, —
hún hefur svo mikið sjálfsálit. Henni hefði
litist vel á þessa ungu stúlku, hugsaði hún,
48 VIKAN
VIKAN FYRIR
ÁRUM
ef hún væri ekki alveg svona mikið upp með
sér og ef Teodór hefði ekki þurft að hneigja
sig og beygja fyrir henni og bera inn tösk-
urnar hennar.
— Ég heiti Dóra Saunders! Eruð þér að
skemmta yður hér?
— Nei, ég er vinnukona! Friðrikka naut
vandræða Dóru: En eftir dálitla stund náði
hún sér og spurði:
. — Eigið þér þennan kött? Hvað heitir
hann?
— Franco! Teodór svaraði.
— Hvers vegna ætti hann ekki líka að liafa
dulnefni, sagði hann síðar við Friðrikku.
Dóra gerði þeim allt erfiðara. Það var
þreytandi að þurfa að horfa á hana fara í
skemmtiferðir en verra var að Teodór þurfti
alltaf að fara nteð henni og bíða eftir henni.
— Ég er dálítið hrædd að aka ein, sagði
Dóra hlæjandi. — Þér akið svo ágætlega,
Bárður.
— Hún ekur langtum betur en þú, Teddi,
sagði Friðrikka og hló dálítið gremjulega. —
Ég er hrædd um að það sé þessi fallegi Bárð-
ur sem hún sækist eftir.
— Ertu afbrýðisöm, Friðrikka? sagði
Teodór aðeins.
— Nei, sagði Friðrikka hranalega, en mér
leiðast léttúðugar stúlkur.
Teodór ansaði henni ekki og þegar hann
var farinn fór Friðrikka að þvo upp og hún
var svo utan við sig að hún tók ekkert eftir
því að hún setti fingurna undir heita vatnið
og brenndi sig. Henni Jiótti vænt um að hafa
eitthvað til að gráta af. Þegar Teodór kom
aftur tók hann hana í fang sér.
— Friðrikka, kjáninn minn! hvíslaði hann.
Þú veist að svona kvenfólk er ekki við mitt
hæfi. En hvað á ég að gera? Ég get ekki sagt
nei við því að aka fýrir hana.
— Teddi, — ég hélt að þú værir hrifinn af
fötunum hennar.
— Kjánaprikið mitt, sagði Teodór hlæj-
andi. Þú manst líklega eftir því að ég varð
fyrst skotinn í bláa sloppnum þínum.
Hann þurrkaði henni um augun og batt
um hönd hennar. í sama bili var skellihlegið
í dyrunum.
— Fyrirgefið ef ég ónáða, sagði Dóra. — Ég
gleymdi að segja ykkur að það koma gestir
í dag og frænka er svo óróleg því að einn er
skáld og hún vill hafa góðan mat. Ég átti að
spyrja yður, Bárður, hvort jiér vilduð ganga
fýrir beina? Megurn við ekki kalla yður
Fotheringay? Það er svo gott nafn.
Friðrikka leit upp en unga stúlkan var far-
in og Teodór hjálpaði henni upp í bílinn.
Teodór var í ágætu skapi þegar hann var
að hafa fataskipti um kvöldið.
— Sko, er ég ekki fæddur þjónn. Hann tók
upp bakkann og sveiflaði honum fimlega.
Friðrikka var að skera melónu í sundur
þegar dyrnar opnuðust.
— Hvernig gekk, Teddi, sagði hún glað-
lega.
— Ágætlega — ég braut aðeins tvö glös! En
það var ekki Teodór sem svaraði. Friðrikka
lirökk við, sneri sér við og sá Svein ganga að
sér.
— Sveinn, hvað ert þú að gera hér? hróp-
aði hún.
— Elta flóttamennina með blóðhundum,
sagði Sveinn. - Ég hef haft rniklar áhyggjur
af ykkur.
- Þetta hefiir gengið ágætlega. Það var
Teodór. Þú verður að fara inn, Sveinn — ég
hugsa að húsbændunum sé ekkert um það
að gestirnir haldi sig í eldhúsinu.
— Teddi! hrópaði Friðrikka ásakandi.
Hann meinar þetta ekki, Sveinn — en þetta
hefur verið svo erfitt fyrir hann.
— Ó, slúður, Teddi, sagði Sveinn hlæj-
andi, láttu nú ekki eins og kjáni. Ég varð að
tala við ykkur en hefði aldrei fúndið ykkur
nema með aðstoð Dóru. Það er unga stúlk-
an sem ég minntist einu sinn á við ykkur. Ég
sagði henni að þið mynduð hafa gert eitt-
hvað svona. Hún var sannfærð um að hún
hefði fúndið ykkur og hringdi til mín og bað
mig að koma með handjárnin.
— Þér megið ekki kenna Sveini um þetta,
sagði Dóra fyrir aftan hurðina. Það er allt
mér að kenna. Má ég ekki koma inn svo að
ég þurfi ekki að standa á hleri.
— Komið þér bara, sagði Friðrikka glað-
lega.
— Mér Jiykir vænt urn að hafa fiindið
þau, Sveinn, sagði Dóra. — Ég var viss um að
þetta væri Friðrikka undir eins og ég sá
hana. En Teodór — það var illa gert af yður
að breyta um nafn á Napóleon. Það var
nærri búið að eyðileggja allt. Og hvað Jiér
voruð alltaf þögulir hvernig sem ég reyndi
að veiða yður. Þér vilduð aldrei segja neitt,
svo að ég varð að biðja yður um að vera
þjónn.
— Þvílík nærgætni, sagði Teodór gremju-
lega. — Ég þakka kærlega fyrir hugulsemina.
— Þetta var svo sem engin hugulsemi,
sagði Sveinn hlæjandi, — heldur hrein og
bein sjálfsvörn. Mig langaði til að fá augna-
bliksfrið fýrir símanum. Útgefandinn var
nærri búinn að gera út af við mig. Hann hef-
ur selt tvær bækurnar Jiínar og er að verða
vitlaus út af því að geta ekki talað við þig.
— Friðrikka - mér hefur dottið snjallræði
í hug. Ég kalla næstu bók „Krókódíllinn
hlær“ og ég ætla að byrja strax að skrifa
hana.
— Að kvöldverði loknum áttu við, sagði
Friðrikka. Ó, Fotehringay, viljið Jiér ekki
gjöra svo vel og fara inn með melónuna.
Saunders fjölskyldan gleymdi aldrei þeim
kvölderði. Þau höfðu hvorki vinnukonu né
þjón því að þegar þau heyrðu hvernig í öllu
lá varð Friðrikka að sitja hægra niegin við
húsbóndann og Teodór fékk heiðurssæti
hinum megin við borðið.
Allt í einu kallaði Sveinn:
— Friðrikka, ég var nærri búinn að
gleyma því að ég er með bréf til þín. — Það
kom rétt eftir að þið fóruð.
— Frá hverjum og hvað stendur í því?
hrópaði Teodór.
— Það er frá ritstjóra tískublaðs — og ég
sem hélt að stéttin væri útdauð! Hann biður
mig að senda sér teikningar, svaraði Frið-
rikka hlæjandi.
— Hún teiknar þessar indælu teikningar í
blöðin, sagði frú Saunders alltaf síðan hverj-
um sem á vildi hlýða. Og maður liennar er
mjög frægur rithöfundur...
- Það hlýtur að vera dásamlegt að skrifa,
sagði hún við Teodór. Hvaðan fáið þér allar
þessar hugmyndir?
En Teodór slapp við að svara því að í
sama bili opnuðust dyrnar og inn kom
Napóleon sem aldrei fyrr hafði stigið fæti
inn í stofurnar og settist á teppið. Hann
hafði lika sagt skilið við eldhússtörfin.