Vikan - 02.04.1992, Blaðsíða 68
TEXTI OG MYNDIR: GUNNAR H. ARSÆLSSON
FJOR I KLAKSTOÐVUM
fSLENSKRAR DÆGURTÓNLISTAR
plús og Eg er furðuverk með
Rut Reginalds á sama diski.
Hljómsveitin Sororicide átti
eina af bestu plötum síðasta
árs, The Entity. f ágúst eða
september er vaentanleg önn-
ur breiðskífan frá þessari
þungu dauðarokksveit. Á hin-
um enda tónlistarkvarðans
verður að finna tónlist eftir
Björgvin Halldórsson sem
byggir á ævintýrinu um selinn
Snorra. Þetta er eins konar
barnaópera þar sem Hemmi
Gunn verður kynnir. Endurút-
gefin verður platan f takt við
tímann með Sinfóníuhljóm-
Hjólin eru farin að snú-
ast hjá „risunum" á ís-
lenska plötumarkaðn-
um, Skífunni og Steinum.
Greinilegt er að þetta ár verður
síst magrara en það síðasta
og mikil fortíðarfíkn svífur yfir
vötnum. Vikan sló á þráöinn til
klakstöðva íslenskrar dægur-
tónlistar til þess að taka púls-
inn á því hvað þaðan væri
væntanlegt á árinu.
Skífan ríður á vaðið með
hljómplötu Pinetop Perkins,
Chicago Beau og Vinum Dóra.
Þetta er blúsplata og að hluta
til tekin upp á tónleikum. Einn-
ig verður endurútgefin hljóm-
platan Langspil meö Jóhanni
G. Jóhannssyni en hún inni-
heldur þekktasta lag hans,
Don't Try to Fool Me. Tónlistin
úr Emil í Kattholti er líka á út-
gáfuáætlun á næstunni en þar
heyrist meðal annars í Diddú,
Árna Tryggvasyni og Eggert
Þorleifssyni.
í apríl verður ekki um nýja
útgáfu að ræöa en endurútgef-
ið verður efni af fyrri hljómplöt-
um Skífunnar, tveir diskar í
pakka, báöar sólóplötur
Björgvins Halldórssonar koma
út á diskum; Björgvin Halldórs-
son og Ég syng fyrir þig. Einn-
ig verður endurútgefin platan
með Glámi og Skrámi og
Bráðabirgðabúgi með Spil-
verki þjóðanna.
Sumarsafnplata Skífunnar
kemur út í maí og á henni
verða meðal annars Gunnar
Þórðarson, Egill Ólafsson,
Geiri Sæm, Björgvin, Síðan
skein sól og Loðin rotta. Einnig
verður þá á ferðinni þunga-
rokkssafnplata með öllum
helstu þungarokksveitum
landsins og verður þetta án
efa mikil himnasending fyrir
aðdáendur þessarar tónlistar
sem hefur verið i mikilli sókn á
undanförnum árum.
myndum en henni. Endurút-
gáfur verða: Útkall og Úr ösk-
unni í eldinn með Brunaliöinu,
Sannar dægurvísur og Glímt
við þjóðveginn með Brimkló,
tvær sólóplötur Pálma Gunn-
arssonar á diski, svo og Rut
DAUÐAROKK OG
DRAUMASVEITIN
Við fögnum júní með tónlist-
inni úr kvikmyndinni Sódðma.
Reykjavík en þar er hljóm-
sveitin Ham í aðalhlutverki. í
júlí kemur.út plata með kvik-
myndatónlist eftir Hilmar Örn
Hilmarsson en hann er að
góðu kunnur fyrir tónlistina úr
Börnum náttúrunnar. Á diskin-
um verður tónlist ur fleiri
Stefán Hilmarsson og félagar í
Sálinni hans Jóns míns verða á
ferðinni á árinu með bæði nýtt
og gamalt efni. (Mynd: G.H.Á)
68 VIKAN