Vikan - 20.12.1994, Blaðsíða 12
VOLVUSPAIN 1995
Fyrirtæki í vatnsútflutningi
kemst aö mjög góöum
samningum og nær sterkri
stöðu á utanlandsmarkaði.
Eitt byggöarlag á Norður-
landi leggst því sem næst í
eyði á árinu vegna atvinnu-
leysis og líf á nokkrum litlum
fjörðum verður fremur dap-
urlegt.
Bolungarvík mun rísa upp
aftur eftir erfiða tíma. Völv-
unni sýnist þó ekki að upp-
risan eigi sér stað á næsta
ári.
Skuldastaða heimilanna
breytist lítið til batnaðar á ár-
inu. „Þar er því miður ekki
gleðitíðinda að vænta fyrr en
í ársbyrjun ’96. Skuldastaða
heimilanna er mjög erfið en
fólk mun taka öðruvísi á
þeim málum héðan í frá og
jákvæðar breytingar eiga sér
stað innanfrá."
Hægur bati verður á kaup-
mætti og kjörum á árinu.
„Við erum aðeins að reyna
að halda í horfinu til þess að
sökkva ekki dýpra í skulda-
fenið en orðið er,“ segir völv-
an. Batinn verður ekki veru-
legur fyrr en síðari hluta árs
og sú fjárhagslega upp-
sveifla sem frændur okkar á
Norðurlöndum búa nú við
sést ekki hér fyrr en í lok árs
’95 og byrjun árs ’96. Góðu
Völvan segir margt afar óþverralegt eiga eftir
aö fylgja kosningabaráttunni . . .
fréttirnar eru þær að upp-
sveiflan verður áþreifanleg
þegar hún kemur og litlar
breytingar verða á verð-
bólgu.
Völvan spáir mikilli aukn-
ingu fæðinga á næsta ári.
TIL SJÓS OG LANDS
Á árinu verða breytingar til
batnaðar í sjávarútvegi og
meiri fiskur kemur úr sjó en
reiknað var með. Aukin veiði
nægir þó ekki til þess að
laga efnahagsástandið veru-
lega fyrr en um næstu ára-
Völvan spáir fyrir um breytingar í sjávarútvegi og þaö hvort
meira eöa minna fáist úr sjónum.
mót. Loðnuveiði verður mjög
góð og rækjuveiði sæmileg
auk þess sem áður ónýtt
sjávarafurð lofar góðu og
tugir manna fá atvinnu við
nýtingu hennar eftir mitt árið.
Völvan segist mikið hafa
reynt að sjá þessa afurð og
henni sýnist þetta ekki stór
fiskur.
Þorskstofninn er á hægri
uppleið og þær skýrslur sem
berast frá Hafrannsóknar-
stofnun á árinu munu gefa
tilefni til bjartsýni. íslenskt
fyrirtæki í sjávarfangsútflutn-
ingi á eftir að gera það mjög
gott á árinu og ná góðum
sölusamningum.
Bændur eiga eftir að láta
mikið að sér kveða á árinu
og taka höndum saman til
að minnka hokrið. Af-
koma þeirra skánar
og kannski er það hjá
bændum sem mesta
kaupmáttaraukningin
verður. Völvan segir
að það gerist þó ekki
með hækkun búvöru-
verðs heldur sýnist
henni það helst verða
á þann hátt að millilið-
irnir verði að láta hluta
af sínum skerf. „Ég
get samt ekki séð að
þetta muni reynast
bændum annað en
skammgóður vermir."
FYRIRTÆKI Á
MARKAÐI
Mikil átök verða ( kring-
um umræður um sölu Bún-
aðarbankans og margir
mótfallnir henni. „Það já-
kvæða sem af deilunum
hlýst,“ segir völvan, „er að
opna umræðu um einka-
væðingu og sölu ríkiseigna
og færa umræðuna til fólks-
ins í landinu, hinna raun-
verulegu eigenda."
Stórfyrirtæki leggur upp
laupana á fyrstu mánuðum
ársins og líkur eru á að síð-
ustu þrír mánuðir ársins
verði öðru stórfyrirtæki erf-
iðir. Völvunni sýnist að ann-
að fyrirtækið tengist verk-
takastarfsemi.
íslendingar opna fullkom-
ið heilsuhæli fyrir efnaða
útlendinga við Bláa lónið.
Þegar útvarpsstjóraskipti
veröa á þessu ári eöa eitt-
hvaö síðar veröur þaö aö
undangengnum leiöind-
um .. .
Heilsuhælið mun skila mikl-
um gjaldeyristekjum strax á
fyrstu starfsárum og starf-
semin fara fram úr björtustu
vonum aðstandenda. At-
vinnumálum á Suðurnesj-
um er að segja borgið með-
an á byggingu heilsuhælis-
ins stendur.
Önnur heilsumiðstöð
verður stofnsett annars
staðar á landinu.
Aukning verður á álnotk-
un á heimsmarkaði, meðal
annars í bílaiðnaði. Aukn-
ingin á eftir að skila sér í
auknum gjaldeyristekjum
íslendinga.
Ferðamenn halda áfram
að sækja til landsins í sí-
vaxandi mæli og það er
framvinda sem mun ekki
verða jafn hvikult hnoss og
sjávarfangið.
RÍKI, KIRKJA OG
SKÓLI
Mikill blástur og fyrirgang-
ur verður í sambandi við að-
skilnað ríkis og kirkju en að-
skilnaður fæst ekki í gegn á
næsta ári.
Kirkjunnar menn hrökkva
upp við þá staðreynd að fólk
hafi hafið sjálfstæða leit að
andlegri fyllingu og detti þá
sist í hug að sækja hana til
kirkjunnar. Þar fær fólk ekki
það sem það vill og finnst
sem kirkjan hafi brugðist.
Gífurlegra breytinga er að
vænta frá kirkjunnar mönn-
um sem gera sér nú grein
fyrir því að kirkjan hefur fjar-
lægst fólkið í landinu og skil-
ið það eftir úti í kuldanum á
erfiðum tímum sem kalla á
uppörvun og kærleika.
Það kemur verulega á
óvart á árinu, að bæði þeir
kirkunnar menn og menn úr
læknastétt, sem hvað hat-
rammlegast hafa barist gegn
framgangi læknamiðla, munu
veita andlegri og líkamlegri
heilun viðurkenningu sína.
Heilbrigðri skynsemi verður
nú beitt til þess að leggja
dóm á aðrar lækningar en
þær hefðbundnu. „Alla jafna
eru andlegir leiðbeinendur
að aðstoða fólk við að vakna
nægilega til þess að taka
sjálft á sínum málum, þótt
vissulega komi fyrir að
áþreifanleg kraftaverk eigi
sér stað,“ segir völvan og er
greinilega mikið niðri fyrir
þegar þessi málefni ber á
góma, sem skiljanlegt er.
Ýmis vandamál koma upp
í sambandi við flutning skóla
frá ríki yfir á bæjarfélög.
Bæjarfélögin eru misstöndug
og aðlögunin tekur lengri
tíma en ásættanlegt þykir.
Upp koma óánægjuraddir frá
foreldrum sem telja gæði
kennslu hafa skerst til muna.
Blaðaskrif munu hljótast af
og aðlögunin gengur ekki
átakalaust. Foreldrafélög
eiga eftir að láta talsvert til
sín taka og beita sér á fleiri
sviðum uppeldismála.
FJÖLMIÐLUN í
SVIDSLJÓSINU
Völvan sér frekari grisjun á
blaðamarkaði - eitt þekkt
tímarit og eitt fréttablað
verða samdrættinum að
bráð og falla ( valinn.
Umræður hefjast um
stofnun nýs dagblaðs en
ekki virðist sá draumur verða
að veruleika. Ævintýrið verð-
12 VIKAN 12. TBL. 1994