Vikan - 20.12.1994, Page 22
TONLIST
Fyrir jólin kemur út ara-
grúi af geisladiskum
með íslenskum flytj-
endum. VIKAN hafði sam-
band við nokkra tónlistar-
menn og bað þá um að velja
og segja frá einu lagi á nýút-
komnum geisladiskum þeirra.
Fáanlegar eru nú á geisla-
diski tvær fyrstu plötur
Megasar. Um er að ræða
tuttugu og fjögur lög og segir
listamaðurinn að það lag
sem hann spili hverju sinni
finnist honum vera best.
Hann nefnir þó lagið „Um
ástir og örlög Eyjólfs bónda“.
„Textinn er um Eyjólf bónda
sem býr þröngt og eftir enn
eitt hlálegt „floppið" leggur
hann í ferð og stefnir í allar
áttir en enga þó,“ segir Meg-
as. „Hann leggur út í óviss-
TEXTI: una, finnur víðátturnar og
SVAVA lendir trúlega í nokkurs kon-
IÓI\K ar ileimsencli °9 finnur sér
JV'INo- leið inn í sjálfan sig með því
DOTTIR að leita ekki leiöa."
LEIK- AÐ
ÖNGiflAKJAJj
„B.J.F." heitir geisladiskur AA | i \
Biörns Jörundar Friðbiörns- —I J —1 _J
Björns Jörundar Friðbjörns-
sonar. Á honum eru tíu lög
og samdi Björn bæði lög og
texta. „Geisladiskurinn er
heildræn mynd frá byrjun til
enda,“ segir hann. „Það er
einungis eitt umfjöllunarefni
gegnumgangandi og það er
Guð almáttugur.“ Þegar
Björn settist niður og velti því
fyrir sér um hvað textarnir
skyldu fjalla ákvað hann að
breyta til og segja frá ein-
hverju öðru en ástum og ör-
lögum einstaklinga. „Guð lít-
ur yfir sköpunarverkið og
textarnir eru sagðir frá sjón-
arhóli hans,“ segir hann.
„Lagið „Leikföngin" er engin
undantekning og textinn fjall-
ar um það þegar Guð stillir
saman jörðina og mannkyn-
ið. Hann er búinn að skapa
jörðina og vantar leikföngin
og býr því til mennina sem
hann er harla óánægður
með.“
„Þó líði ár og öld" heitir
tvöfaldur geisladiskur sem
hefur að geyma fjörutíu lög
með Björgvini Halldórssyni.
Lagið „Sendu nú gullvagninn
að sækja mig“ er Björgvini
hugleikið en hann hlustaði
mikið á það í flutningi Gold-
en Gate kvartettsins. „Síðan
þá hefur þetta lag verið mér
hugleikið," segir Björgvin,
„og ég hélt mikið upp á
þessa söngfugla. Lagið heitir
á frummálinu „Swing down
chariot“ og er einn af þess-
um vinsælu negrasálmum
og lagið er jafnframt á efnis-
skrá flestra gospelsöng-
hópa. Lagið fjallar um mann
sem biður drottin um að
senda gullsleginn vagn að
sækja sig og fara með sig til
hirnna." Höfundur lagsins er
ókunnur en höfundur ís-
lenska textans er Jónas
Friðrik Guðnason.
Á geisladiski Diddúar,
Töfrar, er að finna þrettán
lög. Flest eru þau hennar
uppáhaldslög og hafa sér-
staklega þau eldri átt vissan
stað í hjarta hennar í gegn-
um árin. Hún segir að þau
hafi verið óbeinn áhrifavald-
ur að þeirri ákvörðun sinni
að verða söngkona og mót-
uðu þau tónlistarsmekk
hennar. „Heyr mína bæn“ er
fyrsta lagið sem Diddú valdi
á geisladiskinn. „Þetta er
ítalskt lag og fyrsta lagið
sem vann Eurovision keppn-
ina,“ segir Diddú. „Ég heyrði
það fyrst í flutningi Ellýar Vil-
hjálms þegar ég hef verið
svona fimm ára og ég varð
alveg gagntekin af því.“ □
SENDU
IÚ GULI
■gninI
22 VIKAN 12.TBL. 1994