Vikan


Vikan - 20.12.1994, Side 32

Vikan - 20.12.1994, Side 32
LIFSSTILL París er borg rökkurs og bleks og háhýsin hjálpa til viA aö halda utan um hugmyndir og hugsanir. JOHANNA SVEINSDOTTIR SEGIR FRA NÝRRI UÓÐABÓK OG LÍFI SÍNU í PARÍS TEXTI: GERÐUR KRISTNÝ UÓSM.: BRAGI ÞÓR Eftir þrumuveöriö er hljótt og svalt í þröngu og blautu strætinu, hvorki gól í barni né sífur í söngvara þegar á bresta háttbundin vein himneskra elskenda: Dio! Dio! Mamma mia! Dio! Dio! Mamma mia! Svo dettur í hljótt og svalt á ný. Þetta er titilljóð Ijóðabókar Jóhönnu Sveinsdóttur, Guö og mamma hans, sem kom- in er út hjá Máli og menn- ingu. „Ég heföi eflaust getað gef- iö út Ijóðabók fyrr en ég hef ákveðnar hugmyndir um lengd og uppbyggingu Ijóöa- bóka og vildi aö bókin yröi heildstæö. Ég geri miklar kröfur til sjálfrar mín og hef því einungis birt Ijóö í tíma- ritum og sýnisbókum fram til þessa. Fólk verður aö hafa langan samfelldan tíma fyrir skáldskap og það er svo stutt síöan mér bauðst slíkur tími," segir Jóhanna. Hún situr í einum af vínrauðu stólunum á Borginni og pantar sér rommtoddý. Hún þjáist af hálsbólgu enda nýstigin á kalda fósturjöröina. Jóhanna hafði fyrir löngu ákveðið að þegar hún hefði komið einkadótturinni til manns myndi hún halda út í heim til frekara náms. Fyrir þremur árum fannst henni tíminn vera kominn. Hún sagði því upp kennarastarf- inu, seldi íbúðina sína og settist að á Ítalíu. Undanfarin tvö ár hefur Jóhanna svo bú- ið í París og bera Ijóð henn- ar óneitanlega keim af utan- landsdvölinni. Bakgrunnur flestra þeirra eru staðir á ít- alíu og í Frakklandi. „Það er gott að yrkja í París. Þar ríkir himnaríkis- friður og mér finnst þægilegt að vera þar ein með sjálfri mér. Mér finnst líka svo gaman að rölta um borgina enda gegna gönguferðir veigamiklu hlutverki í frönsk- um bókmenntum. Ég nýt þess að baða mig í mann- hafi Parísar. Borgin er afar bókmenntaleg. Til dæmis þarf ekki að ganga nema nokkur skref til að koma auga á byggingu eða götu sem tileinkuð er látnum rit- höfundi. París er borg rökk- urs og bleks og háhýsin hjálpa til við að halda utan um hugmyndir og hugsanir. Þær rjúka ekki út í veður og vind eins og oft vill verða í rokinu hér.“ Þrátt fyrir erlendan bak- grunn Ijóða Jóhönnu eru þau rammíslensk enda bendir hún á að allur texti, sem maður skrifi, sé að einhverju leyti meðvitað eða ómeðvit- að samtal við texta sem maður hafi áður lesið. Ekki þarf heldur að leita lengi til að koma auga á tilvísanir í höfunda á borð við Dag Sig- urðarson, hvað varðar hluta- bréf í sólarlagi. BARFLUGUR A BRAUTARPALLI Sjálfsmorösstíll flugna, œði fjölbreytilegur við lítils- háttar barborð; ein afvelta ballerína á hröðum rang- snúningi og önnur á mótor- hjóli tœtir af stað milli skinns og hörunds, feykir upp úr minninu draumsól- eyjum, fiskiflugum, jafnvel síðustu tónunum fyrirfréttir: Brennið þið vitar. Sú þriðja stingur sér hiklaust ofan í freyði vínsglas. Hef ekki komist yfir nein hlutabréf í þessu sólarlagi frekar en þœr. Skipti í stað- inn mýmörgum elskendum milli lína og drep tímann, afvelta pöddu, slít af vœng fyrir vceng, limina, þar til lestin b/ees og ber mig til nœstu skýjaborgar, annars sólarlags. „Þótt ég búi í útlöndum er ég alltaf heima í móðurmáli mínu og legg mig fram um að rækta það. Mér finnst gaman að leika mér með tungumálið og nota orðtök í nýju samhengi, líka að smíða nýrði.“ i París fæst Jóhanna við að semja cand. mag.-ritgerð um franskan og íslenskan súrrealisma og flutti hún til Parísar til að geta nálgast betur heimildir. „Ég þarf að leita svo langt aftur í tímann til að rannsaka súrrealismann og það er ekki hægt án þess að kanna skrif skálda á borð við Jarry, Baudelaire og Sade. Það, sem hrffur mig við súrrealist- ana er hvað þeir brúuðu vel bilið milli fortíðar og nútíðar. Þeir völdu til að mynda það bitastæðasta úr rómantík og dulspeki. Súrrealisminn hef- ur líka elst býsna vel. Ég er að kanna textatengslin milli franskra bókmennta og þaö sem íslenskir höfundar hafa skrifað eins og til að mynda FRH. Á BLS. 80 32 VIKAN 12. TBL.1994

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.