Vikan


Vikan - 20.12.1994, Qupperneq 62

Vikan - 20.12.1994, Qupperneq 62
SÁLRÆN SJÓNARMIÐ E lins og við vitum flest I skipta stórhátíðir mjög lmiklu máli í lífi’okkar flestra og það ekki að ástæðulausu því þær hefð- bundnu, eins og allir' vita, tengjast fæðingu og dauða frelsarans. Þótt þetta sé staðreynd þá verður ekki hjá þvj horft að hnargur maður- inn notar tilefni hátíðanna til að drekka áfengi í óhófi og til að skemmta sér ótæpilega, öðrum til vonbrigða. Verst er ef í kringum gerandann er heil fjölskylda því þá líða börn heimilisins óheyrilega fyrir þau vandamál sem upp koma vegna drykkjunnar sem er náttúrlega afleitt. Við svörum að þessu sinni bréfi frá konu sem kýs að kalla sig Stebbu. Hún lýsir á átak- anlegan hátt þeim erfiðleik- um sem hún á við að stríða vegna eiginmanns síns á stórhátíðum. OFBELDI OG BERSERKSGANGUR „Auðvitaö eiga margir erfiðara en ég og börnin mín en það breytir því ekki aö ég er gjörsamlega að verða vitlaus út af öllum þessum jólum og öörum hátíöum sem maöurinn minn hefur eyðilagt fyrir mér og fjölskyldu okkar. Viö eigum fimm börn sam- an. Hvernig sem á því sendur tekst honum alltaf aö gera allt brjálaö skömmu fyrir heigar og hátíöir meö því aö fara á fyllirí og þá er hann drukk- inn og leiðinlegur, jafnvel dögum saman,“ segir þessi hrygga kona." Hún segir að áfengið fari mjög illa í mann- inn og hann eigi það til að missa svo gjörsamlega stjórn á skapsmunum sínum að hann gangi jafnvel ber- serksgang heima og geti átt það til í þokkabót að leggja hendur bæði á hana og börnin ef sá gállinn er á hon- um sem vitanlega er ömur- legt og óhuggulegt. SAMSKIPTA- ERFIDLEIKAR OG FLÓTTI „Mér þykir mjög vænt um manninn minn og vildi svo mikiö til vinna aö hann hegöaði sér ööruvísi. Ég hef oft orðiö aö flýja und- an því| offprJJPsf nj^ grj hann ur yndir ^áfengWéhrifi Ódpíi^r^e|-haprr*gijpg| þaegilec öllum vel drykkjuna sem vandamál og heldur aö hann geti stjórnaö henni eins og hann vill þótt staöreynd mála sé önnur,“ segir Stebba og lýsir raunum fjöl- skyldunnar ýtarlega í löngu bréfi. Hún segir að tvö barn- anna, sem eru unglingar, eigi erfitt með aö stunda skólann og mörg vandamál séu þjakandi í samskiptum þeirra við föður sinn. FJÖLSKYLDUFJÖTRAR OG ÁFENGISÁSTRÍDA™ „Þau álasa mér en forö- ast aö gagnrýna hann. Þau óttast aö það hafi fyllirí í för með sér. Ég reyni líka aö láta lítið fyrir mér fara og þóknast þessari áfeng- isástríðu hans þess vegna of mikiö. Fólkiö mitt hefur hvatt mig til aö skilja viö hann og sum barna okkar jafnframt," segir Stebba og það er nokkuð Ijóst að henni blöskrar ástandið. Maðurinn er í góðri stöðu og efnahag- ur þeirra er góður. Þessir fjölskyldufjötrar er ömurlegir vegna þess að án þeirra væru vandamál þessarar fjölskyldu nánast engin. ER ÉG ALGJÖR ROLA? r>fS9tt \lð sig og t|luT>si|^pfelfstalft gungu hwi tekst getur launa sinna vegna auðveldlega séð bæði fyrir sér og börnunum. Hún getur bara svo illa séð sjálfa sig í þeirri stöðu að búa án mannsins síns. Þau hafa verið saman frá þvi að þau voru bæði unglingar. „Kæra Jóna Rúna, hvað á ég að gera? Á ég aö tala við prest? Get ég læknaö manninn minn af áfengis- löngun hans? Heldur þú aö börnin okkar skemmist vegna þess hvernig heim- ilisástæöurnar eru á milli þess sem allt er í lagi? Er ég algjör rola aö þínu mati? Er ofbeldi læknan- legt eins og áfengissýki virðist vera?“ HEIMASMÍÐUÐ VANDAMÁL OG HYLDÝPI VONBRIGDA Það er vissulega vandlifað fyrir þessa ágætu fjölskyldu á stundum. Auðvitað er öm- urlegt til þess að vita að fjöl- skyldufaðir skuli nota hvert það frí, sem hann fær og tengist hátíðum, tij að gera allt brjálað heima hjá sér. Við köllum þannig framferði „óæskilegan og neikvætt arðbæran heimilisiðnað" sökum þess að þau vanda- mál, sem fylgja í kjölfar vín- drykkju hans, eru með öllu óþörf. Hann hreinlega býr þau til sjálfur og þykir það því miður í góðu lagi. Hann veldur með hegðun sinni gíf- urlegu andlegu öngþveiti og fyllir alla vonbrigðum og von- leysi inni á heimilinu. Best væri aö hann leitaði sér hjálpar hjá t.d. SÁÁ eða hjá sambærilegum meðferðar- stofnunum og fengi þar ráð- gjöf og mppbyggingu vegna greinilegrar áfengissýki sem er rólega að steypa bæði honum og fjölskyldu hans (► Ó2 VIKAN 12. TBL. 1994
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.