Vikan


Vikan - 20.12.1994, Síða 65

Vikan - 20.12.1994, Síða 65
í SALFRÆÐIHORNINU ANNA S. BJÖRNSDÓTTIR Það er mikið talað um orku og orkuleysi í sambandi við andlega líðan fólks og því jafnvel haldið fram, að samskipti fólks byggist á baráttu um orku, að fólk steli orku hvert frá öðru. Þegar ég var stödd í Frakklandi í haust og dvaldist á einkaheimili hjá hjónum, sem ég þekki ekki mikið, þá hrökk ég í kút þeg- ar frúin á heimilinu sagðist vera svo undarlega þreytt og leit á mig þegar hún sagði þetta. Nú áleit hún ef til vill að ég hefði tekið frá henni orkuna og nýtt mér hana sjálf. Ekki skildi ég hvernig þetta mætti vera en þegar vinkona mín spurði mig um daginn hvort hún hefði rænt mig allri orku af því að henni leið svo vel eftir að hafa tal- að við mig um erfiðleika sína, þá gat ég fullvissað hana um að mér liði Ijómandi vel þótt ég hefði ef til vill haft góð áhrif á hana í viðræðun- um og gefið eitthvað af mér. Ég samþykki ekki alveg þetta orkutal og langar ekki til að lifa við það og vil ekki kenna öðrum um það ef ég er ekki í formi. Einu sinni heyrði ég konu segja að vinnufélagi hennar stæli allt- af fjólubláa litnum frá henni. Við svona orðræður verð ég alltaf hálf ringluð og hugsa hvort mér hafi ekki misheyrst - en nei, allur fjólublái litur- inn var horfinn. En það má alveg stela fjólubláa litnum af mér, ef því er að skipta, vegna þess að mér finnst hann ekkert fallegur. En fyrst ég er í sálfræðihorninu í dag þá langar mig til að tala um þá stjórnsemi sem margir hafa í frammi og hafa ekki hugmynd um að vera haldn- ir. Þessi stjórnsemi er því miður ómeðvituð og þegar ég verð fyrir henni syfjar mig undarlega en gallinn á stjórnsama fólkinu er sá að það heyrir ekki mótbárur eða óskir annarra, hefur alltaf í frammi sinn eigin vilja en þykist jafnframt vera að gera öðrum til hæfis. Ég þekki mann sem spilar alltaf uppáhaldstónlistina sína fyrir mig og verður alltaf jafn undrandi þegar ég fer að geispa og spyr hvort mér þyki þetta ekki skemmtileg tónlist. Síðast þegar þetta gerðist svaraði ég á þá leið að mér þætti þessi tónlist hundleiðinleg en þá setti hann bara hina uppáhalds- tónlistina sína á fóninn og ég minnist einnar kunningja- konu minnar sem þráði svo að mennta mig á sviði tón- listar og langaði svo til að ég hlustaði á Bach þegar ég væri að skrifa. Ég borgaði rækilega fyrir mig með því að segja að þegar ég vildi virkilega vera í stuði þá spil- aði óg Árna Johnsen og Gretti Björnsson tímunum saman. En þá kemur spurn- ingin. Af hverju vill fólk vera að ráðleggja miðaldra Ijóð- skáldi hvað það eigi að hlusta á þegar það skrifar eða þykist það vera að gera miðaldra Ijóðskáldi greiða, en vera í laumi að reyna að mennta viðkomandi á tónlist- arsviðinu? En ég segi það hér og nú að þetta fólk og aðrir, sem haldnir eru sjúk- legri stjórnsemi, ættu að spara kraftana i annarra þágu á þessum vettvangi. Það er vita tilgangslaust að reyna að hafa stjórn á þeim sem hafa þekkingu á þessu fyrirbæri en ástæðan fyrir því að ég útskúfa ekki svona fólk úr lífi mínu er sú að því er oft margt annað gefið og ég hef svolítið gaman af að koma því skemmtilega á óvart. Eru þetta ef til vill orkuþjófarnir margumtöl- uðu? En maður lætur nú ekki ræna sig um hábjartan, eða ætti ég frekar að segja, um vetrarmyrkvan daginn. Spilum bara Árna og Gretti eða það sem gleður hjarta okkar hverju sinni og gerum sem oftast það sem okkur sjálfum finnst skemmtilegt. Það leysir ýmsan vanda. □ DJÁSN Undir grímunni er vangi þinn þreyttur af sorg. Undir grímunni er barnið blíða að leita að djásninu sínu bak við grímuna eru dagar sem enn hafa ekki tekið enda. Við þetta veglausa fólk í viðjum gærdagsins. Látum grímuna falla. Leitum okkar djásna og endalausra daga. BAKVÍSANDIBARNASTÓLL BJARGAÐILÍFIBARNSINS að tók langan tíma að þróa og hanna barna- bílstólana MICRO og MACRO sem VÍS leigir við- skiptavinum sínum. Stólarnir voru þróaðir hjá sænska tryggingafélaginu FOLKS- AM. Markmiðið var að stól- arnir yrðu þeir öruggustu á markaðnum. Eftir mikið starf komu fyrstu stólarnir á mark- aðinn í Svíþjóð seint á árinu 1993. Hliðarárekstrarvörn stólanna er einstök og er hún árangur fjölda prófana á árekstursbraut félagsins. Eitt meginvandamálið við hönn- un stólanna var að búa svo um hnútana að einungis þyrfti að festa þá með örygg- isbeltum bifreiðarinnar. Verk- ið var ekki auðvelt en tókst að lokum á farsælan hátt. Ekki leið á löngu þar til á styrk stólsins reyndi svo um munaði. Ökumaður í suður- hluta Svíþjóðar missti stjórn á bíl sfnum sem var af gerð- inni OPEL OMEGA Station. Heimilisfaðirinn ók og var elsta dóttir hans í hinu fram- sætinu. Yngra barnið var í bakvísandi stól í aftursæti bifreiðarinnar ásamt móður- inni. Bíllinn, sem var aftur- hjóladrifinn, slengdist til í hálku og rann á mikilli ferð þversum á steinsteyptan burðarstólpa utan vegarins. Stólpinn lenti á bílnum rétt fyrir framan burðarstafinn milli fram- og afturhurðar. „Ef um venjulegan stól, án hliðarárekstrarvarnar, hefði verið að ræða, hefði barnið látist samstundis," segir prófessorinn Claes Tingvall, yfirmaður rannsóknardeildar Folksam. „Höfuðið hefði kastast til hliðar og höfuð- kúpan mölbrotnað annað hvort á hurð bílsins eða hurðarstafnum. En hliðar- árekstrarvörnin kom í veg fyrir að illa færi jafnvel þótt höggið sem þarna varð væri miklu þyngra en við gátum framkvæmt á tilraunabraut okkar.“ Barnið fékk sprungu í höf- uðkúpuna, en varð ekki fyrir neinum varanlegum meiðsl- um. Móðirin, sem sat ( miðj- unni, rifbeinsbrotnaði þegar barnabílstóllinn hentist til inni í bílnum. Dóttirin sem sat í framsætinu varð fyrir al- varlegustu meiðslunum en mun ná heilsu á ný. Hún var heppin að stólpinn lenti ekki tuttugu sentimetrum framar á bílnum. □ Opelinn rann þversum á burðarstólpa. Myndin sýnir MACRO barnabílstólinn eftir áreksturinn. Stóllinn bjargaði lífi barnsins. 12. TBL, 1994 VIKAN 65 GERÐUR KRISTNY ÞYDDI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.