Vikan


Vikan - 20.12.1994, Side 82

Vikan - 20.12.1994, Side 82
, LITRIK LIST AJOLUNUM TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR / UÓSMYNDIR: HREINN HREINSSON A „jólatrénu", sem er ekki með heföbundu sniði, má sjá jólapakka og lítil jólatré sem Sigríður hefur gert, stærri glertrén, bjöllurnar, epl- in og stjörnurnar eru verk Ásrúnar og leirfígúrur eftir Auði. Undir trénu eru jólapakkar vafðir í heimatil- búinn jólapappír og gömlum dag- blöðum, máluðum í jólalegum litum. Þessi snjókarl eftir Sigríöi myndi sóma sér vel í glugga. amir undir trénu eru ekki vafðir í hefðbundinn jóla- pappfr heldur ósköp hvers- dagsleg dagblöð, sem Ása María hefur sjálf málað og skreytt. Jólaböndin eru úr basti! Þrjár listakonur eiga heið- urinn að skrautinu á trénu, þær Ásrún Aðalsteinsdóttir sauðfjárbóndi í Bárðardal, Sigríður J. Sigurðardóttir, sem vinnur hjá Tölvumiðiun í Reykjavík, og Auður Ólafs- dóttir myndmenntakennari í Hagaskólanum. Auk þess birtum við myndir af jóia- stjökum eftir Elínborgu Ing- ólfsdóttur sem er hjúkrunar- fræðingur á Borgarsjúkra- húsinu. Kertaljós eftir Elínborgu. Glerstjarnan er til komin úr smáglerbút sem hún fékk einu sinni í glerverksmiðju. Stærð stjakans markaöist af stærð stjörnunnar sem er eins og snjókorn, sem horft er á í gegnum stækkunar- gler, aö sögn Elínborgar. Grenitré, jólasería og jólakúlur eru í hug- um flestra eitthvað sem tengist jólunum. Ýmsir leita þó nýrra leiöa við jóla- skreytingarnar eins og Ása María Björnsdóttir hjá Smíð- ar & skart sem skreytti „jóla- tré“ fyrir Vikuna. Jólatréð er blaðlaust birki og skrautið er íslenskur listiðnaður, bæði úr steindu gleri og leir. Pakk- Jólsveinn eftir Sigríöi. Árið 1990 fór Elínborg á námskeið hjá Listgleri í Kópavogi og byrjaði strax eftir það að vinna úr gleri. Hún hefur búið mikið til af kertastjökum, glermyndum og lampaskermum. Einnig hefur hún gert veggmyndir úr spegilgleri og gleri sem nýtur sín þótt Ijós skíni ekki í gegnum það. Arið 1992 stóð kvenfé- lagasambandið í Þingeyjar- sýslu fyrir glerlistarnám- skeiði í gamla kvennaskól- anum á Laugum. Listgler í Kópavogi annaðist kennsl- una. Ásrún Aðalsteinsdóttir var ein átta kvenna sem sóttu námskeiðið. í framhaldi af því setti hún, auk tveggja annarra kvenna, á fót verk- stæði þar sem þær vinna nú einn dag í viku að hugðar- efnum sínum. Ásrún býr til margs konar smáhluti úr gleri en áður vann hún mikið við tauþrykk. Sigríður segir okkur að hún vinni mikið við alls kyns handavinnu og hand- verk. Fyrir rúmum tveimur árum fór hún á glerlistarnámskeið. Fyrsta verkið þar var að vinna mjög stóran glugga úr steindu gleri. Síðan hefur hún búið til marga glerhluti, bæði stóra og smáa. Auður Ólafsdóttir lauk námi úr Myndlista- og hand- íðaskólanum árið 1985 og hefur aðallega helgað sig myndverki og haldið mynd- listarsýningar. Fyrir þremur árum fór hún að vinna alls konar fígúrur í leir sem hún bakar í ofninum heima hjá sér. Auk jólafígúranna býr hún til sitthvað annað, til dæmis lækna, smiði og flug- menn og alls konar fólk bæði í fötum og án, eins og hún komst að orði. Einkunnarorð verslunar- innar Smíðar & Skart, sem er í einu af Bláu húsunum við Fákafen en telst þó vera við Suðurlandsbraut, nánar tiltekið númer 52, eru GJAF- IR f LIT. Það má með sanni segja að þetta skraut setur lit á híbýli manna. Steinda gler- ið er litríkt og þegar jólaljósin falla í gegnum glerið kvikna stjörnur í augum þeirra sem á það horfa. □ 82 VIKAN 12. TBL. 1994 I HEILSAN TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR BULIMIA NERVOSA alið er að þriðjungur allra kvenna þjáist af „bulimia nervosa" eða sjúklega mikilli matarlyst ein- hvern tímann á lífsleiðinni og er það tvisvar til þrisvar sinn- um algengara en megrunar- sjúkdómurinn „anorexia" eða lystarstol. Þær konur sem þjást af „bulimia nervosa” borða í óhófi og losa sig síð- an við matinn með því að taka hægðarlyf og kasta upp. Súkkulaði og sjoppu- fæði nýtur mikilla vinsælda meðal þessara kvenna. Markmiðið getur virst vera megrun en raunverulega ástæðan er yfirleitt sálfræði- leg. Líkamleg afleiðing síend- urtekinnar „hreinsunar" er mikil þreyta, óreglulegar blæðingar, þrálátur maga- verkur og skemmd á þarma- vöðvum. Við uppköst geta magasýrurnar skemmt tann- glerunginn. Þrátt fyrir sál- fræðilega hjálp og ráðgjöf getur það tekið marga mán- uði að ná fullum bata. BRJÓSTAGJÖF OG BRJÓSTAKRABBAMEIN Niðurstöður nýrra rann- sókna sýna fram á að ef kona gefur barni sínu brjóst í að minnsta kosti fjóra mán- uði minnka líkurnar á að hún fái brjóstakrabba. Læknar telja að aukahormónar, sem myndast við brjóstagjöf, valdi þessu. KOMIÐ í VEG FYRIR KRABBAMEIN Ef borðað er mikið af fersk- um ávöxtum og grænmeti mínnka líkurnar á krabba- meini. Það er því tilvalið að borða: - ávöxt í morgunmat - salad í hádeginu - a.m.k. tvær grænmetisteg- undir með kvöldmatnum - ávöxt á kvöldin.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.